Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 26.11.2016, Síða 15

Fréttatíminn - 26.11.2016, Síða 15
| 15FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 26. nóvember 2016 ingnum, og klufu þannig land og íbúa á milli tveggja landa. Tohono O ódhamar hafa búið á þessu svæði frá því löngu fyrir tilkomu markanna og gera enn. Fram að þessu hafa þeir verið frjálsir ferða sinna landanna á milli, á eigin landi, til að heimsækja ættmenni og vini. Hvernig ætlar Trump að reisa múr eftir 2.000 kílómetra löngu fljótinu? Þar eru fjöll, gil og gljúf- ur – og þjóðgarðurinn Big Bend. Hvernig ætlar hann að reisa múr á milli þéttbýlisstaðanna sem standa við fljótið þar sem brýr hafa fram að þessu sameinað þá? Hvern- ig ætlar hann að koma múrnum fyrir á víðáttumiklum flæðilönd- um við árósa Mexíkóflóa? Þar eru fellibyljir ekki óalgengir. Hvernig ætlar hann að reisa múr yfir fjöllin í Coronado National Forest-þjóð- garðinum? Þar eru fjallstindar allt að tvö þúsund metra háir. Hvernig ætlar hann að reisa múr í náttúr- verndargarðinum Organ Pipe Cact- us National Monument? Og hvar fást peningar í þetta allt saman? Svo mætti lengi spyrja. Annað vandamál er landareign. Landið Bandaríkjamegin er ýmist í eigu ríkisins, sveitarfélaga, indíána eða í einkaeign. Mörg dómsmál eru nú rekin, ekki síst vegna óánægðra nautgripabænda í Texas og fólks sem býr bókstaflega upp við mörk- in og vill halda landi sínu órösk- uðu. Margar jarðir og einkalóðir hafa þegar verið teknar eignar- námi. Umhverfis- og náttúruverndar- sinnar hafa lýst áhyggjum sínum yfir röskun á náttúru- og dýralífi og vistkerfinu öllu, bæði í eyðimörk- inni og meðfram fljótinu, sérstak- lega í Río Grande Valley, þar sem er að finna eitt fjölbreyttasta dýra- líf Bandaríkjanna. Garðyrkjubænd- ur í Bandaríkjunum hafa oftsinnis varað við því að komi ekki verka- menn frá Mexíkó muni ávextir og grænmeti rotna á ökrum þeirra. Kaupmenn í landamæraborgum beggja vegna hafa lýst áhyggjum sínum yfir því að múrinn muni hafa áhrif á verslun í systurborg- unum og í raun á öll viðskiptasam- bönd, en stór hluti af framleiðslu í Mexíkó fer á Bandaríkjamarkað. Mörg mannréttindasamtök í báð- um löndum hafa látið í sér heyra og benda á að farandverkamenn séu hvorki glæpamenn né hryðju- verkamenn. Spurningunum hér að ofan er ekki auðsvarað. Árum saman hef- ur verið bent á að hár múr muni ekki leysa vandann, slíkur múr verði alltaf óskilvirkur. Vandamál ólöglegra ferða um landamærin verður ekki leyst nema með því að gengið sé út frá sameiginlegri sögu landanna og horfst í augu við það hve löndin eru háð hvort öðru. Kannski sýna orðaskipti verðandi forseta Bandaríkjanna og sitjandi forseta Mexíkó best hvað gerist þegar það er ekki gert: „Þið borgið múrinn.“ „Nei, þið borgið hann.“ Heimildir má finna á vefsíðu Hugrásar. Rimlagirðing milli Calexico, Bandaríkjunum og Mexicali, Mexíkó. Mynd | Kristín Guðrún Jónsdóttir. Landamærahliðið á landi Tohono O´odham fólksins. Mynd | Kristín Guðrún Jónsdóttir Umhverfisvernd er hluti af samfélagslegri ábyrgð. Berðu saman plastpoka og fjölnota poka. Eftir það berðu bara fjölnota poka. FJÖLNOTA KOSTAR MINNA – LÍKA FYRIR UMHVERFIÐ! E N N E M M / S ÍA SVARTUR sterkur og notadrjúgur120 KR. 150 KR. GRÁR með hólfum fyrir flöskurRAUÐUR léttur og passar í veski180 KR.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.