Morgunblaðið - 31.12.2016, Page 48

Morgunblaðið - 31.12.2016, Page 48
48 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016 Ítilefni af aldarafmæli Kristjáns Eldjárns (1916-1982), sem minnst varmeð ýmsu móti 6. desember síðastliðinn, langar mig að birta eftirfar-andi lista yfir ýmis svarfdælsk orð og orðatiltæki og merkingar þeirrasem hann mundi úr uppvexti sínum og skráði sér til gamans: Ábyggilegur: Mig minnir að þetta orð væri notað í eiginlegri merkingu, traustur, t.d. um stein í vegg sem verið er að hlaða. Áttarígur: Þegar veðri var þannig háttað að áttir toguðust á og tvísýnt var hvor ofan á yrði. Behollari: Mjög algengt, sama sem olíuhús (á lampa). Beholling eða beholning, taka beholningu: Gera vörutalningu. Faðir minn sagði þetta ætíð. Búi: Loðkragi um háls á konu, laus. Í damminum, í stellunni: Í rennandi blautum útiföt- unum. Dasi: Óáreiðanlegur, svikull maður, ræfilsmenni. „Dasinn sá arna.“ „Þetta er óttalegur dasi.“ Djúnki: Eitthvað stórt, t.d. bíll, notað eins og t.d. orðið dreki. Að dumma: Þrauka, halda út með hægðinni. „Hún María dummaði í ljánni allan daginn, þó kalt væri.“ Fett: Ævinlega var sagt fett, aldrei fernt. Flummur: Algengt orð: Dugnaðarmaður til verka, forkur duglegur. Maður var í dalnum sem kallaður var Siggi flummurinn. Hefða, var mikið notað: „Hann sagðist hefða látið mig vita ef …“ Hefði skulað, heyrði ég oft og iðulega. Hupplegur: Alminlegur, hugulsamur. Ætíð borið svona fram. „Þér leiðist ekki“ voru kerlingar í Svarfaðardal vanar að segja þegar þeim var vikið einhverju, svo sem í þakkar skyni. Ljótalíf: „Þetta er nú meira ljótalífið.“ Lúnkúnlegur: Þannig framborið, um hesta, ég held það merki sama og luntalegur eða þvílíkt. Mella: Móðir í dýraheiminum. Til dæmis sagði faðir minn oft um gimbr- arlömb: „Hún er falleg eins og mellan.“ Eða: „Svona var mellan.“ Pússipómaði: Fægilögur. Skilvunda: Þannig bárum við þetta orð fram á mínu heimili. Að ganga í skurðinn: Bila, skemmast. „Það hefur eitthvað gengið í skurð- inn.“ Að fara í slöngur: Að týnast, eða lenda á öðrum stað en venjulega. Sosskúffa, sögðum við, en sá gripur nefnist víst oftast fægiskúffa. Ekki vissi ég að í raun væri þetta „sorpskúffa“. Að stípa á einhverju: Að taka hressilega til matar. „Mér þykir þú stípa á því.“ Sælinú: Mjög algeng kveðja, óhátíðleg, einkum milli fólks sem sást oft. Tómos: Þannig var þetta nafn oftast borið fram, með o en stundum Tómás, sjaldnast Tómas, finnst mér. Vappla, vöpplur: Ætíð borið svona fram. Villibráð: Kássa úr kálfsblóði (og ekkert annað). Þá: Há, seinni sláttur, var nokkuð algengt. Þoldull: trimm, skokk. Þvíeins: Stefán Stefánsson í Winnipeg notar mikið samtenginguna þvíeins sem var svo ákaflega algengt í Svarfaðardal. „Þvíeins var,“ sögðu menn. Föðurmál Tungutak Þórarinn Eldjárn thorarinn@eldjarn.net Dr. Kristján Eldjárn Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Einstaklingar vinna með ýmsum og ólíkumhætti úr áföllum, sem þeir verða fyrir í líf-inu. Sumum tekst það og öðrum ekki. Hiðsama á við um fjölskyldur. Stundum ræður þögnin ríkjum. En staðreyndir hafa tilhneigingu til að brjótast fram, jafnvel þótt það taki kynslóðir. Í raun og veru eiga sömu lögmál og gilda í þessum efnum um einstaklinga og fjölskyldur við um þjóðir. Sums staðar ríkir enn þögn um þau hlutverk, sem ein- stakar þjóðir í Evrópu gegndu í heimsstyrjöldunum tveimur á 20. öld. En annars staðar er tekizt á við þá hryllilegu og blóðugu fortíð. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með því, hvað Norðurlandaþjóðirnar fjalla lítið um hlut sinn í þeim átökum. Mest þó í Noregi, enda hafa Norðmenn ekkert að fela. Lítið sem ekkert í Svíþjóð enda hafa Svíar mikið að fela. Í Danmörku er áherzlan á and- spyrnuhreyfinguna en minna á upphafið og viðbrögð Dana við hernámi Þjóðverja. Þegar litið er til lengri tíma en styrjaldaráranna hafa Bretar lagt áherzlu á að búa til eins konar glæsi- mynd af nýlenduveldi sínu en minna fjallað um ofbeld- isverk sín í þeim löndum og enn minna rætt um fram- ferði sitt gagnvart Írum á 19. öld og snemma á 20. öld. Nú eru Þjóðverjar að íhuga að bæta fyrir þjóðarmorð sín í Afríku, þar sem nú er Namibía, en þar nánast gjör- eyddu þeir heilum ættbálkum. Þeir eiga í viðræðum um greiðslu skaðabóta og afsök- unarbeiðni er ekki óhugsandi. Ekki hefur frétzt af því að Belg- ar hugleiði það sama vegna voðaverka á þeirra vegum í Kongó. Þýzkir sagnfræð- ingar spyrja hvort Þjóðverjar hafi verið að „æfa sig“ í Afríku í manndrápstækni sem síðan hafi verið „full- komnuð“ á Gyðingum (og geðveikum og þroskaheft- um) undir miðbik 20. aldar. Þjóðverjar hafa gengið lengst í að gera upp fortíð sína enda gengu þeir lengra í glæpaverkum en flestar aðrar þjóðir að Sovétríkjum Stalíns og Kína Maós undanskildum. Þó virðist það hafa tekið þá um 25-30 ár að hefja þá sjálfsskoðun. Þessar hugleiðingar vakna við lestur merkrar bók- ar, sem út kom fyrir jólin á vegum bókaforlagsins Uglu og nefnist Land föður míns – Saga þýzkrar fjöl- skyldu eftir konu að nafni Wibke Bruhns, sem er þekkt kona í Þýzkalandi, sem sjónvarpsþula í upphafi, síðar blaðamaður og rithöfundur. Faðir hennar var hengdur fyrir aðild að samsærinu gegn Adolf Hitler, þegar hún var 6 ára eða þar um bil en mynd af hon- um, sem birtist allt í einu á sjónvarpsskjá við rétt- arhöldin yfir honum og öðrum vöktu þá spurningu hjá henni, hvers vegna það gerðist, sem gerðist í Þýzka- landi á þeim árum. Og til þess að reyna að skilja sitt fólk lagðist Wibke Bruhns í rannsókn á sögu fjöl- skyldu sinnar. Höfundurinn er miskunnarlaus í garð foreldra sinna og ættmenna og stundum um of, fannst alla vega þessum lesanda. En bók hennar sem seldist í yfir hálfri milljón eintaka í Þýzkalandi er augljóslega at- hyglisvert framlag til uppgjörs Þjóðverja við fortíð sína. Hún sýnir svo ekki verður um villzt að Adolf Hitler var ekki eyland, jarðvegurinn var til staðar, bæði í afstöðu til og andúð á Gyðingum, sem átti sér miklu lengri sögu, bæði í þýzkumælandi ríkjum og meðal annarra þjóða í Evrópu og í þjóðerniskennd en hvort tveggja hagnýtti hann sér í pólitískri baráttu sinni. Í byrjun áttunda áratugarins kynntist ég Ungverja, sem reyndist opnari fyrir umræðum um málefni lepp- ríkja Sovétríkjanna, en aðrir og spurði hann m.a. þessarar barnalegu spurningar eftir að hafa virt fyrir mér ummerki, sem þá var enn að finna í Búda og Pest eftir athafnir sovézkra skriðdreka þar haustið 1956: Hvernig getið þið þolað þetta? Og svarið var: Þið verðið að skilja að við verðum að lifa af. Að hluta til er svarið við þeim spurningum, sem leita á Wibke Bruhns, þegar hún veltir fyrir sér við- brögðum foreldra sinna við Adolf Hitler, að þau þurftu að lifa af. Faðir hennar og afi ráku myndarlegt fyrirtæki, sem átti sér rætur á 19. öld. Þar störfuðu um og yfir hundrað manns. Bein andstaða þeirra við Hitler og hans menn hefði þýtt að fyrirtækinu hefði verið komið á kné, starfsmennirnir og fjölskyldur þeirra skildar eftir og þeir sjálfir hnepptir í fangelsi. Og jafnvel þar sem um var að ræða hrifningu á því sem var að gerast má spyrja, ef við lítum í eigin barm: Hvað mundum við hafa gert? Er það víst að við hefðum ekki hrifizt með? En jafnframt vekur þessi bók aðrar og nærtækari hugsanir: Hrunið 2008 er mesta áfall, sem íslenzka þjóðin hef- ur orðið fyrir á lýðveldistímanum. Við tókumst á við það með skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og þeim dómsmálum, sem fylgt hafa í kjölfarið. En er það nóg? Stjórnmálaflokkarnir, sem við sögu komu hafa lítið gert af því að horfa í eigin barm. Það á við um Sjálf- stæðisflokkinn, sem segja má að hafi fallið frá innra uppgjöri í miðjum klíðum með rökum sem standast ekki skoðun. Það á við um Framsóknarflokkinn, sem átti aðild að ríkisstjórn frá 1995 til 2007 og virðist ekki telja að hann hafi þurft að spyrja spurninga um eigin verk og það á við um Samfylkinguna, sem átti aðild að ríkisstjórn frá sumrinu 2007 og virðist ekki heldur telja að hún þurfi að svara spurningum. Og það á við um þjóð, sem horfist ekki í augu við meðvirkni sína. Kannski þurfum við lengri tíma til að ná áttum. Þýðing Vilborgar Auðar Ísleifsdóttur er frábær. Að horfast í augu við fortíðina Fjölskyldusaga Wibke Bruhns er merkt framlag til uppgjörs Þjóðverja við sjálfa sig. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Baldur Þórhallsson, Jean Mon-net-prófessor á vegum Evrópu- sambandsins í Háskóla Íslands, hef- ur í fjölda ritgerða haldið því fram, að Ísland þurfi skjól af Evrópusam- bandinu. Bandaríska öldin í sögu Ís- lands sé liðin, en Evrópska öldin tek- in við. Í einni ritgerðinni, sem birtist í European Political Science 2011, minnist hann (bls. 328-329) á Rússa- lán, sem rætt var um í banka- hruninu: „Bandaríkjamenn sögðust vera fegnir, þegar Rússastjórn gaf í skyn, að hún væri reiðubúin að leysa lausafjárvanda Íslendinga með stóru láni, eftir að kreppan skall á (Upp- lýsingar úr Sendiráði Bandaríkj- anna í Reykjavík 2009).“ Þetta getur ekki verið rétt. Auð- vitað hefðu Bandaríkjamenn ekki sagst vera fegnir („expressed relief“ eins og Baldur orðar það), hefðu Rússar eignast hér veruleg ítök. Þótt Bandaríkjamenn hefðu um þær mundir engan sérstakan áhuga á hernaðaraðstöðu á Íslandi, var markmið þeirra að sjálfsögðu að koma í veg fyrir, að önnur ríki og ekki vinveitt öðluðust hér áhrif. Svo vill líka til, að þessa missögn má hrekja með gögnum. Í Wiki- leaks-skjölunum á Netinu er skýrsla um Rússalánið frá bandaríska sendi- herranum á Íslandi, Carol van Vo- orst, sem send var utanríkisráðu- neytinu í Washington 8. október 2008. Þar segir: „Bandaríkin hafa hernaðarlega hagsmuni í hánorðri þrátt fyrir brottför varnarliðsins og traust samstarf í öryggismálum við Ísland, sem báðir aðilar hafa lagt sig fram um að bæta. Í dag bað Sendi- ráðið fólk í trúnaðarstöðum í forsæt- isráðuneytinu og annars staðar að kanna, hvaða traustvekjandi sam- starf væri hugsanlegt (annað en gjaldmiðlaskiptasamningar, sem Bandaríski seðlabankinn vill ekki gera). Við efumst um, að það væri í hag Bandaríkjunum eða Atlants- hafsbandalaginu, að Íslendingar yrðu háðir Rússum, hversu „hag- stætt“ sem lánið frá þeim yrði.“ Eflaust var Baldur Þórhallsson í góðri trú, þegar hann skrifaði þetta. Hann er sekur um barnaskap, ekki vísvitandi fölsun. En í kappi sínu við að skilgreina Ísland frá Bandaríkj- unum og inn í Evrópusambandið horfir hann fram hjá sjálfsögðum sannindum um afstöðu ríkja á Norð- ur-Atlantshafi. Rætist hér sem oft- ar, að margt er missagt í sendiráðs- hjali. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Missögn Baldurs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.