Fréttablaðið - 07.02.2017, Qupperneq 20
Lexus Is 300h
Finnur Thorlacius reynsluakstur
Núverandi kynslóð Lexus IS 300h
er sú þriðja og kom fram árið 2013.
Því má segja að komið hafi verið að
andlitslyftingu á þessum eigulega bíl
og einmitt það hefur Lexus nú gert.
Í tilefni þess var bílablaðamönnum
alls staðar að úr heiminum boðið
að prófa bílinn í Róm á Ítalíu. Ekki
telst það slæmt staðarval og hreint
ágætlega við hæfi fyrir svo virðu-
legan bíl. Undirritaður hafði prófað
núverandi kynslóð Lexus IS 300h í
ítarlegum reynsluakstri fyrir hart-
nær fjórum árum og líkað einstak-
lega vel. En skyldi mikið hafa breyst
síðan þá? Hvað ytra útlit bílsins
varðar er breytingin ekki svo mikil,
helst þó á framanverðum bílnum en
hann hefur fengið enn stærra grill,
ný aðalljós og línurnar á hliðunum
hafa fengið enn sterkari svip. Í raun
þarf glöggskyggni til að greina á
milli fyrri gerðar og þeirrar nýju
frá flestum hliðum, en til hvers að
breyta því sem svo vel leit út áður.
Lexus IS 300h var og er mjög fallegur
bíll og fágað útlit hans er algjörlega
í stíl við gæði hans að öðru leyti,
því að hér fer mikill eðalfákur sem
þó verður að teljast af minni gerð
lúxusbíla, enda á hann mun stærri
bræður í GS og LS bílunum.
Gerbreytt fjöðrun og stýring
Breytingarnar á andlitslyftum Lexus
IS 300h eru mun frekar fólgnar í
fjöðrun bílsins og stýringu, tækni-
búnaði og öryggisbúnaði en í útliti
hans. Fjöðrun bílsins er algerlega
endurhönnuð og hver íhlutur þar
nýr, allt til að auka á aksturshæfni
bílsins og reyndar í leiðinni til að
létta bílinn. Stýrisbúnaður bílsins
hefur einnig verið endurhannaður
og fyrir vikið er stýringin nákvæm-
ari og betri og stífni bílsins hefur
aukist umtalsvert með endurhann-
aðri fjöðrun. Fyrir þessu fannst
mjög greinilega og því hefur hinn
ljúfasti akstursbíll orðið að flenni-
góðu aksturstæki. Feikilega gaman
var að aka bílnum í nágrenni höfuð-
borgarinnar og hlykkjóttir vegirnir
urðu að uppáhaldi því henda mátti
bílnum á dágóðri ferð í beygjurnar
Lúxus Is 300h
færður á hærra stig
Lexus IS 300h hefur nú fengið andlitslyftingu en er þó ekki mikið breyttur í útliti.
Aðalbreytingin nú er fólgin í breyttri fjöðrun og stýringu og stífari og þéttari akst-
ursbíl sem nú sem fyrr er hlaðinn lúxus. Sem fyrr fallegur bíll en nú ennþá fríðari.
KosTir oG Gallar
lexus is 300h
l Bensínvél með HyBrid
l 223 Hestöfl
l AfturHjólAdrif
Eyðsla 4,2 l/100 km í bl. akstri
Mengun 97 g/km CO2
Hröðun 8,3 sek.
Hámarkshraði 200 km/klst.
Verð frá 5.810.000 kr.
Umboð: Lexus á Íslandi
l Útlit
l Búnaður
l Verð
l innrétting
l Finna má sportlegri aksturs-
eiginleika keppinauta
JEPPADEKK
Úrval af 35” dekkjum fyrir
15, 16, 17, 18 og 20” felgur
Icetrack ehf. Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is
www.mtdekk.is
Lexus Is 300h
hefur frá upphafi verið ein-
staklega eyðslugrannur bíll
með sinni skilvirku hybrid-
tækni þrátt fyrir stærðina.
Fjöðrun bílsins er
algerlega endurhönnuð
og hver íhlutur þar nýr,
allt til að auka á aksturs-
hæfni bílsins og reyndar
í leiðinni til að létta
bílinn. stýrisbúnaður
bílsins hefur einnig verið
endurhannaður og fyrir
vikið er stýringin
nákvæmari og betri og
stífni bílsins hefur aukist
umtalsvert með endur-
hannaðri fjöðrun.
7 . f E b r ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r6 Bílar
0
7
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
D
-F
3
E
4
1
C
2
D
-F
2
A
8
1
C
2
D
-F
1
6
C
1
C
2
D
-F
0
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
6
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K