Fréttablaðið - 07.02.2017, Qupperneq 34
möndlur
bláber
trönuber
kotasæla
1
6
-0
2
5
0
-H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Nærandi millimál
… er létt mál
Gríptu með þér kotasælu eða gríska jógúrt
Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með
hreinum grunni og hollum og stökkum toppi.
Kotasæla með berjum og möndlum eða grísk
jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum.
Leikhús
Vísindasýning Villa
HHHHH
höfundar: Vilhelm Anton Jónsson,
Vala kristín eiríksdóttir og Vignir
Rafn Valþórsson
Borgarleikhúsið – Litla sviðið
Leikarar: Vilhelm Anton Jónsson og
Vala Kristín Eiríksdóttir
Leikstjórn: Vignir Rafn Valþórsson
Leikmynd og búningar: Sigríður
Sunna Reynisdóttir
Lýsing og myndband: Magnús Helgi
Kristjánsson
Tónlist: Vilhelm Anton Jónsson
Hljóð: Garðar Borgþórsson
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir
Á síðastliðnum árum hefur Vísinda
Villi víkkað huga fjölmargra barna
með tilraunum sínum og komið
sér vel fyrir í hjörtum þeirra. Hann
hvetur börn en ekki síður fullorðna
að vera ávallt forvitin og að gefa
ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Nú er Villi mættur á Litla svið
Borgarleikhússins að kynna okkur
frekar fyrir ótrúlegum heimi vísind
anna og fær að þessu sinni hjálp úr
óvæntri átt …
Vilhelm Anton Jónsson er fjöl
hæfur listamaður og hlýr sem nær
áhorfendum á sitt band frá fyrsta
lagi sem hann framkallar úr raf
magnsgítarnum. Vala Kristín Eiríks
dóttir villist inn í sýninguna eftir að
hafa heillast af tónlistinni en hún er
að æfa sitt eigið leikrit. Samvinna
þeirra á sviðinu er hin fínasta þar
sem góð kómísk tímasetning Völu
og smitandi einlægni Villa blandast
skemmtilega saman.
Því miður, eins og með svo
margar sýningar á þessu leikári, er
handritið hvorki sannfærandi né
nægilega vel unnið. Hugmyndir eru
útskýrðar frekar en framkallaðar á
sviði. Alltof mörgum vísunum er
hent fram án úrvinnslu og stöðug
notkun á orðinu „mónólóg“ var
þreytandi, sérstaklega þegar fallegri
íslensk orð á borð við „einræða“ og
„eintal“ eru í boði.
Eftirfarandi þráður í handritinu
er gott dæmi: Æðsti draumur Völu
er að syngja ástardúett úr kvik
myndinni Moulin Rouge! en hana
vantar sárlega söngfélaga. Spurn
ingin er þessi: Hvað er langt söng
atriði með samansettu lagi úr fimm
tán ára gamalli bíómynd að gera í
barnasýningu árið 2017? Bæði er
Elephant Love Medley einstaklega
erfitt í söng, sem þau bæði rétt kom
ast í gegnum, og passar alls ekki inn
í sýninguna. Hugmyndin um stórt
söngatriði er góð en úrvinnslan
afleit.
Leikstjórinn Vignir Rafn Val
þórsson hefði betur sýnt meira af
töfrum vísindanna og leikhússins
frekar en að segja frá þeim. Margt er
samt sem áður mjög gott s.s. atriði
þar sem Villi reynir að rata í rétta
lýsingu og endar einn í vonskuveðri.
Líka þegar klósettrúlla vekur gríðar
lega kátínu meðal yngstu áhorfend
anna, þarna voru þau hjartanlega
boðin velkomin á alvöru vísinda
sýningu með hörkustuði. Tónlistin
er valin af Villa sjálfum en er ekki
nægilega vel komið fyrir innan
sýningarinnar.
Sigríður Sunna Reynisdóttir
hannar bæði búningana og leik
myndina af skarpskyggni og upp
finningasemi. Krítartöflurnar þjóta
um sviðið, leynihólf eru framkölluð
og Rube Goldberg maskínan er
afburðasnjöll smíði. Þá eru flestir
búningar og hröð búningaskipti
Völu augnakonfekt. En af hverju
þurfti tilraunajakkinn hennar
endilega að vera aðþrengdur?
Myndbandavinna Magnúsar Helga
á lokametrunum er sérlega góð en
hún er svolítið samhengislaus ef
myndirnar af fólkinu sem er varpað
á leikmyndina eru ekki útskýrðar.
Sömuleiðis er lýsingin bæði fjöl
breytt og faglega framsett.
Öll grunnefni eru fyrir hendi í
Vísindasýningu Villa og á blaði
hefur sýningin alla burði til að
sprengja skemmtunarskalann. En
eins og hálfkláruð Goldberg vél þá
höktir handritið alltof mikið til að
sýningin gangi nægilega vel upp.
Aftur á móti þegar Vísindasýning
Villa hrekkur í gang þá er hún hin
besta skemmtun.
Sigríður Jónsdóttir
NiðuRstAðA: Prýðilegasta
skemmtun þrátt fyrir gloppótt
handrit.
Vísindamall sem nær
aldrei suðupunkti
Vala Kristín Eiríksdóttur og Vilhelm Anton Jónsson í miklu stuði í hlutverkum
sínum í Vísindasýningu Villa. Mynd/GríMur BJArnASon
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
7 . f e B R ú A R 2 0 1 7 Þ R i ð J u D A G u R18 M e N N i N G ∙ f R É t t A B L A ð i ð
menning
0
7
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
E
-0
2
B
4
1
C
2
E
-0
1
7
8
1
C
2
E
-0
0
3
C
1
C
2
D
-F
F
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
6
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K