SÍBS blaðið - 01.01.2007, Qupperneq 20

SÍBS blaðið - 01.01.2007, Qupperneq 20
20 Olgeirssonar segir Jón um þessa framleiðslu: „Sem dæmi má nefna að plastkápan vildi í fyrstu ekki tolla nægilega vel við vírinn og því gat komið fyrir að hún drægist til þegar rafvir- kjarnir voru að draga í. Þá smíðaði ég sérstakt tæki sem vírinn fór í gegnum og hitaði hann upp í 100 gráður áður en hann var húðaður og þá varð hann vel fastur í kápunni og allir ánægðir. En auðvitað tók þetta tíma og þurfti yfirlegu og heilabrot. Við urðum líka að smíða útbúnað til að geta gert þetta. Við hættum þessari framleiðslu laust fyrir 1960 vegna erf- iðleika við að ná hagkvæmum innkaupum á koparvírnum. Á sama tíma og við hættum með vírinn var að hefjast framleiðsla vatnsröra úr plasti erlendis, framleidd úr svokölluðu poly- ethylene, PEL, sem er mjúkt efni, og okkur þótti tilvalið að reyna okkur við þá framleiðslu. Fyr- irtæki í Bandaríkjunum framleiddi efnið í þessi rör og við vorum í hópi þeirra fyrstu í heim- inum sem byrjuðu að framleiða rör úr þessu plastefni. Fyrst framleiddum við hálftommu til tveggja tommu rör en árið 1965 fórum við að nota PEH sem var harðara plastefni og þá var hægt að framleiða miklu sverari rör, 20 –400 mm. Framleiðslan var seld til vatnsveitna um land allt og þessi rör hafa síðan verið uppistað- an í framleiðslu Reykjalundar. Rörin eru soðin saman með sérstakri vél þar sem þau eru lögð. Þegar best lét framleiddum við úr 700 –750 tonnum af hráefni á ári sem gerði 600-700 km af rörum” Það er óhætt að segja að Reykjalundarrörin hafi slegið í gegn og um áratuga skeið voru þau notuð í flestum sveitarfélögum. Í kjölfar- ið á þessari framleiðslu hófst framleiðsla á plastpokafilmu árið 1961 og stóð sú framleiðsla í fjóra áratugi. Upphaflega var notuð erlend tækni við framleiðslu og kælingu filmunn- ar. Jón fann upp og teiknaði flókið tæki sem kældi filmuna báðum megin í framleiðslunni sem var algjör nýjung á þessum iðnaði. Afköst gátu aukist um 40 – 50% í sömu vélum. Bæði var unnt að framleiða meira og filman varð betri. Tækið fékk nafnið Iceator og fékk Jón einkaleyfi bæði í Evrópu og USA. Fjallað var um þessa merku nýjung í tækniblöðum vítt um heim og smíðað tæki í Noregi og víðar sam- kvæmt þessu leyfi. Framleidd voru allt að 500 tonnum á ári af plastfilmunni á Reykjalundi en markaðurinn reyndist þröngur og Reykjalundur lenti í verulegum skakkaföllum vegna þessarar framleiðslu undir lokin. Henni var svo hætt upp úr síðustu aldamótum. Á Reykjalundi var mikil framleiðsla á dósum og öðrum umbúðum undir margvíslegar mjólk- urvörur. Allt að 30 ílát spýttust úr steypuvél- inni á mínútu og það var mjög þreytandi vinna að taka frá henni og ganga frá í umbúðir. Jón hannaði, gerði vinnuteikningar af og lét smíða sjálfvirka stöflunarvél sem tók við dósunum úr vélinni og staflaði þeim í stauka. Þetta sparaði mjög mikla vinnu. Jón Þórðarson hætti störfum sem framleiðslu- stjóri á Reykjalundi árið 1991 en var við ýmis hönnunarstörf hjá fyrirtækinu í tíu ár til við- bótar. Hann var stöðugt með hugann við nýjungar og hann einskorðaði sig ekki við plastið á Reykja- lundi. Hann smíðaði t.d. sjóknúna línurúllu fyrir báta, sem hann nefndi Linomat og reynd- ist vel, en um sama leyti kom fram svipuð rúlla sem knúin var rafmagni og varð hún vinsælli. Sú rúlla kom reyndar með sams konar armi sem kom í veg fyrir að fiskur slitnaði af í drættinum og hafði fyrst komið fram á sjónarsviðið með uppfinningu Jóns. En það var fleira sem Jón hafði áhuga á að gera. „Mér var orðin ljós vaxandi mengun í heiminum og vildi leggja mitt af mörkum til að draga úr henni” sagði Jón. Í því skyni hannaði hann og teiknaði lofthreinsibúnað fyrir mengað loft frá verksmiðjum sem var prófað víða og hann fékk einkaleyfi á framleiðslunni. Mörgum árum seinna ruddi sú aðferð sér rúms víða um heim sem Jón hafði þróað en þá undir merkj- um annarra. Í skýrslu frá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands 1980 var sýnt fram á að aðferð Jóns hreinsaði loftið 20 – 30 sinnum betur en nokkur önnur tæki á markaðnum. Þessi skýrsla var nídd niður en fékk uppreisn 10 árum síðar og hefur verið staðfest með erlendum rann- sóknum. Þessari meðferð á uppfinningu Jóns var í blaðagreinum síðar lýst sem „stærstu mistökum atvinnusögunnar“ og að Íslending- Linomat rúllan var vökvaknúin.

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.