SÍBS blaðið - 01.01.2007, Side 25
25
Þverfagleg teymisvinna skipar stór-
an sess í geðteymi Reykjalundar.
Þar starfa félagsráðgjafi, geðlæknar,
heilsuþjálfari, hjúkrunarfræðingar,
iðjuþjálfar, ritari, sálfræðingur og
sjúkraþjálfarar.
Algengast er að sjúklingar geðsviðs
glími við langvinnt þunglyndi eða
kvíða. Yfirleitt er samt um margvísleg
vandamál að ræða. All flestir hafa
verið á þunglyndislyfjum í marga mánuði eða
mörg ár áður en þeir koma á Reykjalund. End-
urhæfingin felur meðal annars í sér fræðslu,
hreyfingu, meðferð og stuðning.
Hugræn atferlismeðferð (HAM)
HAM miðar að því að kenna fólki leiðir til að
takast á við neikvæðar
hugsanir og breyta
hegðun sem hefur
áhrif á líðan (nánari
upplýsingar á www.
ham.is. Boðið hefur
verið upp á HAM fyrir
sjúklinga á geðsviði
Reykjalundar frá 1997.
HAM hefur í aukn-
um mæli einnig verið
notuð á öðrum sviðum
Reykjalundar svo sem
á verkjasviði, gigtarsviði, næringarsviði og í
atvinnulegri endurhæfingu.
HAM-skóli
Allir starfsmenn geðteymis og verkjateymis
hafa grunnþekkingu á HAM. Margir hafa sótt
námskeið og ráðstefnur og hafa samtals 25
(félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálf-
ar, læknar og sálfræðingar) lokið meðferð-
arnámi í HAM-skóla Reykjalundar.
Meðferðarhandbók
Stuðst er við meðferðarhandbók sem geðteymi
Reykjalundar hefur tekið saman meðal ann-
ars með efni frá Pétri Tyrfingssyni sálfræðingi.
Auk þess hafa fjölmargir sjúklingar lagt sitt af
mörkum við að semja og laga efni, þýða erlent
efni og koma með jákvæðar og uppbyggilegar
ábendingar.
I n g a . H r e f n a . J ó n s d ó t t i r, . f o r s t ö ð u s á l f r æ ð i n g u r :.
Fyrstu niðurstöður úr rannsókn
geðsviðs Reykjalundar
H u g r æ n a t f e r l i s m e ð f e r ð v i ð l a n g v i n n r i g e ð l æ g ð :
S a m a n b u r ð u r á e i n s t a k l i n g s - o g h ó p m e ð f e r ð
Rannsókn geðsviðs
á árangri HAM
Markmið rannsóknarinnar var að kanna árang-
ur hugrænnar atferlismeðferðar við langvinnri
geðlægð. Rannsóknin hófst árið 2002 og mun
gagnasöfnun ljúka 2007. Meðferðarhlutanum er
lokið og eftirfylgd er vel á veg komin. Þátttak-
endur eru samtals um 170. Bornir voru saman
þrír hópar inniliggjandi sjúklinga. 54 fengu
einstaklings HAM, 77 fengu hóp HAM og 39
voru í samanburðarhópi sem fékk ekki HAM en
var að öðru leyti í hefðbundinni endurhæfingu.
Niðurstöður
Fyrstu niðurstöður benda til þess að einstakl-
ings HAM skili meiri árangri en hóp HAM.
Samanburðarhópurinn nær líka góðum árangri
sem sýnir að hin almenna endurhæfing hentar
vel þeim sem eru með langvinna geðlægð. Auk
þess fellur HAM vel að endurhæfingarstefnunni
því í báðum tilfellum er mikil áhersla á atferl-
isþáttinn, að auka virkni og að styðja fólk til
sjálfsbjargar. Rannsóknin var kynnt á árlegri
ráðstefnu Evrópusamtaka um hugræna atferl-
ismeðferð í Þessalóníku á Grikklandi árið 2005
og í París í Frakklandi í september s.l.
Styrkir
Rannsóknin hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna sumarið 2003 og mótframlag frá
Reykjalundi. Innkoma fyrir sölu HAM-með-
ferðarhandbókarinnar hefur runnið í rannsókn-
arsjóð. Rannsóknin hlaut síðan veglegan styrk
úr Vísindasjóði Reykjalundar í fyrstu úthlutun
R
e
y
k
ja
lu
n
d
u
r