Alþýðublaðið - 16.12.1919, Síða 1

Alþýðublaðið - 16.12.1919, Síða 1
ublaðið €reíið út af Aiþýðuílokknum. 1919 Þriðjudaginn 16. desember 42. tölubi. jajaaðarmaðiir skrijar hoi jajnaðarmesskn. I. Morgunblaðið bykist hafa him- inn höndum tekinn, er það hefir dottið yfir grein eftir þýzka þjóð- félagsfræðinginn og stjórnmála- manninn Eduard Bernstein. Grein- in er samkvæmt því, sem Mgbl. segir, sérstaklega ætluð þýzkum , jafnaðarmönnum (socialistum) til umhugsunar og eftiibreytni. Enn- fremur segir blaðið, að hún hafi þótt svo réttmæt og sanngjörn, að hún hafi verið þýdd á dönsku (já, eru það nú meðmæli!) — — —„og á yfir höfuð heima allstað- ar þar sem jafnaðarmenska gerir vart við sig“. Öll meðferð Mgbls. lýsir svo eymdarlegum þekkingar- skorti, hvað snertir socialismann, að mér þykir rétt að athuga hana hér, svo heimska þýðandans verði nokkurn vegin leiðrétt. Þá er fyrst að fræða lesendur og jafnframt Mgbl. á því> hver „þýzki jafnaðarmaðurinn og lýð- veldissinninn E. Bernstein" sé, Þvi eftir meðferð biaðsins, virðist hann ver'a einhver „authoriserað- ur“ útskýrandi rita Karl Marx. Rit Karl Marx hafa hingað til ekki þurft skýringa við, þau hafa verið svo Ijós, að eg, sem ekki er mikill þýzkumaður, hefi getað komist nær klaklaust gegnum að- alrit hans, sem eg hefi hér,1) en ^rásum haía kenningar hans vit- ar>lega sætt, og m. a. frá E. Bern- stein, sem þykir kvæfur stjórnfræð- ingur, þótt engum hafi dottið í hug að jafna honum við Marx, höfund og föður hins vísindalega Socialisma. Bernstein er aðeins málsvari nýrra kenninga, sem smátt og smátt hrfa fjarlægst höfuðkjarna socialismans, gagn- 1) Karl Marx: Da8 Kaj ital, Kritik Ú08 politisohen Oeiionomi 1—111. rýninguna á þjóðfélagsskipun peirri, sem nú ríkir. Það, sem mér einkum finst auðkenna grein þessa, er tvent, o: þekkingarleysi þýðandans á fræðiorðum höfundarins og mis- skilningur á kenningum Marx um hið sögulega „hlutverk auðmagns- ins“. Eg hefi ekki sóð grein þá, sem hór ræðir um, en eg þykist vita, að hún sé rangt þýdd, annaðhvort af þýðanda Mgblaðsins, eða af því hinu danska blaði, sem hann hefir vizku sína úr. Enginn maður með snefil af vili á þjóðfélagsmálum, myndi rugla saman hugtökunum „kapital" og „kapitalismus8, allra sízt viðurkendur vísindamaður, sem Bernstein. Það er rétt kenn- ing, sem kemur fram í greininni og alment viðurkent, að k a p i- t a 1, sem má þýða auðmagn, o: hin sameinuðu verðmæti vinn- unnar, sé ekki skaðlegt verka- mönnum, enda mun enginn social- isti, eins og blaðið heldur, halda öðru fram, meðan nokkur vinna, sem er höfuðundirstaða auðmagns- ins, er til. Auðmagnið (kapital) er eins og Marx hefir réttilega tekið fram, samþjöppuð „krystaliseruð" vinna og verður því aldrei burtu kipt. En hringrás (cirkulations- proces) þess hefir hann gagnrýnt réttilega í bók sinni „Das Kapital", og hún getur orðið og er skað- leg, ekki aðeins verkamönnum, heldur og öllu þjóðfélaginu, en hin dauða undirstaða, auðmagnið (verð- giidi vinnunnar) getur ekki haft nein áhrif. Svo víkur höfundur (eða réttar sagt þýðandinn) að því, er hann segir hið þýðingarmesta í kenn- ingum Marx, sem sé það, að hann hafi sýnt glögglega „ekki aðeins •hættu þá, sem stafi af yfirgangi auðvaldsins,1) heldur miklu frem- ur sýni fram á, hve stórkostlegan þátt það á í þroska og vexti þjóð- félagsins alment, og þó einkum 1) Leturbreyting bér. hvað snertir verkalýðinn". Hér kemur önnur höfuðvillan, sem er sprottin af beinu þekkingarleysi. „Kapitalismus" er á íslenzku venjulegast nefnt auðvald og það hefir engan þátt átt „positivan" í þroskun verkalýðsins. Marx og allir aðrir socialistar ráðast á auð- valdið en hafa sízt lofsungið það eins og lítur út að Bernstein geri eftir greininni í Mgbl. Þessi villa stendur í nánu sambandi við það, sem minst er á sögulegt hlutverk auðmagnsins. Eg verð að víkja örfáum orðum að kenningum Marx í þessu efni, til að lesendur fái skilið hvað eg á við. Marx kennir það, að þjóðfélagið sé breytingum undirorpið og völdin á öllum svið- um fari niður á við, þar til þau lendi að síðustu hjá þeim, sem hann nefnir öreiga (Proletar). fá séu þau komin á það stig, að stéttum verði útrýmt. Öreigar eru allir þeir, sem lifa á því að selja vinnu sína öðrum og þeir eru nú orðnir leiksoppar auðvaldsins, en til þeirra beindi hann hinu fræga ávarpi: „Mættu hinar ríkjandi stéttir skjálfa fyrir hinni kom- munistisku byltingu öreiganna. Öreigarnir hafa engu öðru að tapa, en fjötrum sínum, en veröldina að vinna. Öreigar í öllum löndum, sameinist"!1) Öreigunum fer fjölg- andi, það er staðreynd og einung- is fyrir vöxt auðvaldsins, sem all- ir munu vera ásáttir um að sé skiljanlegt. Vólaiðnaður sá, sem hleypt hefir krafti í auðvaldið ger- ir hinn mannlega vinnukraft óþarf- an og eykur þannig atvinnuleysið. Iðnaðarmaðurinn getur ekki stað- ist hina ódýrari framleiðslu verk- smiðjanna. Hugsurn okkur t. d. skóiðnað. Fyrir nokkrum tugum ára voru allir skór búnir til af skósmiðum. Duglegir iðnaðarmenn sátu á vinnustofum sínum og saumuðu allan skófatnað. Svo kemur vélaiðnaðurinn til sögunn- 1) Marx e Engels: Das kommuuis- tisohe Manifeet.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.