Lystræninginn - 01.11.1979, Side 26
Gunnar Sverrisson
SUMARMYND
Sól frá tekur, þunga lund,
sumartíðin dunar,
grænt svo eygir, vítt
um grund,
skógarfossinn bunar,
áa margir áum við,
hér um þessar grundir,
munngát kemur, oss í lið,
ljúfir þinga fundir,
eg vildi lifa lengst,
um þessar stundir.
GRANDA-VOGS ÁSTIR
Dálítið hlutlaust
grín eða skemmtiljóð
hugsað til að hressa
upp dapurt geð, í garð þeirra
sem eru haldnir slíku.
Grandi-Vogar, ástin logar,
í bílnum þeim ....
hann til sín togar,
hún til hans vogar,
þau til hans heim . . .
því Grandi-Vogar,
þar ástin bogar, í bílnum þeim,
því ást í tækjum, far tíðkast
víst, um þennan heim,
þó segi fátt frá leyndra gjörðum . . . .
margra tveim,
unz fréttin flýgur,
fylling tímans,
burt frá þeim ....
Grandi-Vogar, fram hjá
þýtur, Amor skýtur,
þau hvort í toga,
mörg ástar vein ....
Svo lyktar sögn,
um Granda-Voga, hér ljóðið
þrýtur,
drótt ástar nýtur ....
Grandi-Vogar.
26