Kvennalistinn - 01.01.1987, Qupperneq 8
Hugleiðingar um fæðingarorlof
Þegar líður að fæðingu nýs
einstaklings fara margar kon-
ur að huga að fæðingarorlofi.
Við athugun á rétti kvenna til
fæðingarorlofs kemur ýmis-
legt fróðlegt í Ijos. Virðist sem
enn viðgangist töluvert mis-
rétti í þessum efnum þó margt
hafi breyst til batnaðar. Fullt
fæðingarorlof í dag eru tæpar
40.000.- kr. á mánuði, en þetta
segir litla sögu.
Lítum nánar á.
Til að fá fullt fæðingarorlof
þarf kona að vera útivinnandi
og vinna lágmark 1032 stundir
á árinu, talið frá fæðingardegi
væntanlegs barns.
2/3 hlutar af fæðingarorlofi
eru 516-1031 vinnustundir, 1/3
hluti eru 515 stundir og færri.
Námsfólk, bændur o.fl. fá fullt
fæðingarorlof. Heimavinnandi
húsmæður fá 1/3 hluta.
Heimavinnandi húsmæður í
sveit fá 2/3 hluta. Eins
og sjá má sitja ekki allir við
sama borð í þessu máli. En við
sem munum þá tíð að t.d.
heimavinnandi húsmæður
fengu ekkert ættum kannski
að þegja - eða hvað?
En þegarheimerkomið með
nýja barnið eru nú áhyggj-
urnar af fæðingarorlofinu ekki
þær þyngstu til að byrja með.
Þá taka við aðrar ahyggjur, t.d.
af óværð barnsins, afbrýði-
semi eldri systkyna ef þau eru
fyrir hendi, og af brjóstagjöf-
inni. Þá fá konur fullt af ráðum
, gefnum af góðum hug, sem
oft gera þó konuna enn
ruglaðri í ríminu.
En nú er smá Ijóstýra byrjuð
að loga í myrkrinu. Konur sem
sjálfar eru með börn á brjósti
hafa nú haft áræði og dug til að
stofna ,,Áhugamannafélag um
brjóstagjöf”. Þar geta allar
I"---------------------------
konur komið og fengið sið-
ferðislegan stuðning og upp-
örfun ef þær vilja. Þær hittast
1. og 3. mánudag í hverjum
mánuði, í Snorrabúð í Borgar-
nesi milli kl. 17 og 18.
Þið ættuð að drifa ykkur og
hitta konurnar, það gæti orðið
virkilega gaman.
Allar nánari upplýsingar gefur
Elín Bjarnadóttir S: 71618.
Góða skemmtun og gott
gengi.
BGK
-----------------------------,
Staðreyndir um atvinnumál
Nokkrar Kvennalistakonur
fóru á stúfana í byrjun þorra og
könnuðu atvinnuástand á
Vesturlandi. Eins og sjá má af
neðangreindu er það mjög
mismunandi.
Könnun gerð miðvikudag-
inn 20. janúar á öllum stöðum.
Hellissandur og Rif: Enginn á
atvinnuleysisskrá.
Grundarfjörður: Einn á at-
vinnuleysisskrá.
Ólafsvik: Tveir atvinnulausir.
Stykkishólmur: Tveir á at-
vinnuleysisskrá.
Dalasýsla: Á félagssvæði
Verkalýðsfélags Dalasýslu
voru fimm á atvinnuleysisskrá.
í Þeim hópi voru konur sem
störfuðu á saumastofunni
Karitas. Þar hefur starfsemin
legið niðri síðan í sumar. í
Dalasýslu (Búðardal) er vitað
um fleiri atvinnulausa sem af
einhverjum ástæðum hafa
ekki látið skrá sig.
Borgarfjörður: Á félagssvæði
Verkalýðsfélags Borgarness
er ástandið uggvænlegt.
48 manns voru á atvinnu-
leysisskrá þar af 27 í Borgar-
nesi. Konum fjölgaði á skrá
eftir að saumastofa Prjóna-
stofu Borgarness hætti störf-
um.
En margir fleiri eiga þar um
sárt að binda vegna samdrátt-
ar í atvinnulífinu á svæðinu.
Akranes: Þar voru 134 á
atvinnuleysisskrá. Þar með er
talinn hópur kvenna er vann á
saumastofu Henson. Einnig
voru tvö fiskvinnslufyrirtæki
verkefnalaus á þessum tíma.
SB, BGK, o.fI.
Frá Kvennalistanum á Vesturlandi
Félagsfundir: Næstu félagsfundir verða laugardagana 5. mars og 9. apríl.
Allir fundir eru haldnir
í Kvennahúsinu í Borgarnesi.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Síminn er: 93-71105.
8