Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 23

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 23
Erindi flutt á fundi í Domus Medica 2. okt. 1969 margvíslegu hjartaóreglur, sem oft koma fyrir án „beins“ sjúk- leika í hjartavöðva. Til dæmis mætti nefna Asystole, þar sem meðferðin er í slæmum tilfell- um Pacemaker fyrir sjúkling- inn. Aðgerðin er í því fólgin, að electro catheter er þræddur inn í hægra afturhólf hjartans og leiðir hann rafstraum frá batteríi og knýr hjartað til sam- dráttar. Batteríið verður sjúkl- ingur ætíð að hafa með sér, en hægt er að transplantera sjálf- hlöðnu batteríi undir húð, ef sjúklingurinn þarf á pacemaker að halda að staðaldri. Hin fullkomna tækniþróun með tilkomu hjartarafsjártækja varð undirstaða gjörgæzlu- hj úkrunarskipulags fyrir hjartasjúklinga. 1 fyrstu voru þessir sjúklingar lagðir inn á almennar gjörgæzludeildir, en fljótt kom í ljós, að vegna ýmsra orsaka um gang og hegðun sjúk- dómsins var ei æskilegt að hafa hjartasjúklinga á þannig deild- um. Því eins og vitað er, eru þeir mjög viðkvæmir fyrir utan að komandi áhrifum, sem geta beint orðið orsök á ýmsum hættulegum hjartsláttartruflun- um. Sjálfstæð gjörgæzludeild í sambandi við almenna hjarta- sjúkdómadeild, byrjaði feril sinn í Bretlandi, en hefur síð- an komið um allan heim og er talin ómissandi. En stærð og tilverurétt slíkra deilda verð- ur að meta og vega eftir íbúa- tjölda og tíðni hjartasjúkdóma ú hverjum stað. Ætla ég hér að nefna til fróðleiks tölur um ár- angur, sem er innifalinn í lækk- aðri dánartíðni í acuta fasan- um. 1 Bandaríkjunum lækkaði dánartíðni á einu sjúkrahúsi úr 36,6% í 60 tilfellum í 12,9% í 70 tilfellum. Við Central Midd- les Hospital London sýndu töl- ur frá árinu 1965, er þannig deild var sett á stofn, lækkun á dánartíðni um ca. 12%—15%. Síðan hefur deildin stækkað og fullkomnast. Líkar tölur eru að segja frá öðrum stöðum. Gerum nú ráð fyrir að sjúkl- ingur komi inn með acut infarc- tus myocardi á háu stigi. Hann kemur inn á gjörgæzludeild, sem er annað hvort stórt her- bergi með skilveggjum milli rúrna eða einstaklingsherbergi. 1 fyrra tilfellinu er yfirleitt sér- stakt pláss haft til endurlífgun- araðgerðar, þannig að aðrir sjúklingar hljóti eigi ónæði af. Þessi herbergi eru útbúin með nauðsynlegum hjálpartækjum: 1. Hjartarafsjártæki með inn- byggðum pulsteljara og al- armkerfi við hvert rúm. 2. Á vaktstofu eða vaktborði hjúkrunarkonu er rafsjár- skermur með innbyggðri al- armbjöllu og aðvörunarljós- merkjum frá öllum sjúkling- um deildarinnar. Einnig er þar hjartalínuritstæki, sem hjúkrunarkonan notar til að taka sýnishorn af óeðlilegum hjartsláttartruflunum, sem stundum koma fyrir en hverfa aftur. En það getur verið mjög þýðingarmikið fyrir lækninn að sjá þær vegna fyrirhugaðrar með- ferðar. 3. Defibrillator (hjartaraflosts- tæki). 4. Pacemaker og sterill electro catheter og hjartaástungu- nál. 5. Respírator (öndunarvél) og trachostomybakki. 6. Svæfingartæki. 7. Sog og súrefni eru við hvert rúm. 8. Lyfjabakki er sérstaklega út- búinn til skyndinotkunar, æðaástungu - og margt fleira s. s. nálar, sprautur o. þ. h. Aðalatriðið er að nákvæmt og gott fyrirkomulag sé á öllum sviðum, svo allt sé til reiðu hvenær sem er. Ekkert má vanta. Starfsfólk drilriarinnar. Hjúkrunarkonurnar verða að vera vandanum vaxnar með sér- menntun og góðri reynslu. Þeirra verk er að hafa nákvæmt eftirlit með líðan sjúklingsins, skynja hættumerki og bregðast þá fljótt og öruggt við. Sér- þjálfun er nauðsynleg og eru haldin námskeið fyrir gjör- gæzluhjúkrunarkonur við öll stærri sjúkrahús erlendis. Hjúkrunarnemar, sem og allir aðrir nemar, eru aðeins í kennslu og eru aldrei reiknaðir sem vinnukraftur. Sjúkraliðar og aðrir starfshópar deildarinnar hafa allir sérhæfingu í þannig hjúkrun. Fjöldi hjúkrunarliðs fer auðvitað eftir stærð deild- arinnar, en engan vinnukraft TÍMARIT HJÚKRUNARFÉI.AGS ÍSLANDS 113

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.