Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Blaðsíða 28
Mottuxfingar með hemiparesis-sjúklingum.
laug í sambandi við endurhæf-
ingardeildina.
Lungnaþjálfun er einnig stór
liður í okkar starfi og margir
sjúkraþjálfarar taka það sem
sérgrein.
Sjúkranudd hefur verið ákaf-
lega mikið notað við blátt áfram
öllu mögulegu með misjöfnum
árangri, enda hefur sú meðferð
sín takmörk eins og aðrar. Á
seinni árum hefur verið lögð sí-
fellt minni áherzla á þessa teg-
und meðferðar og hún horfið
undan fyrir sjúkraleikfiminni.
I dag er nudd næstum eingöngu
notað sem hluti af annarri með-
ferð, t. d. hiti, nudd, æfingar,
slökun og vinnustellingar. Það
er notað við „vöðvabólgu“ eða
myosis, sem getur orsakast af
t. d. ofþreytu, streitu (stress),
röngum vinnustellingum, tauga-
spennu, áhyggjum, bæklun o. fl.
Það liggur í augum uppi, að ef
ekki er reynt að komast fyrir
orsökina hlýtur afleiðingin að
endurtaka sig.
Leiðbeiningar um starfsstell-
ingar heyra einnig undir starfs-
svið sjúkraþjálfarans og er oft
mikilvægur þáttur til að koma
í veg fyrir atvinnusjúkdóma.
Þá má nefna leiðbeiningar um
innréttingar og tækjabúnað í
íbúðir fyrir bæklað fólk.
Mæðraleikfimi er töluvert
vinsæl grein innan starfsins og
eru margir sjúkraþjálfarar sem
eingöngu vinna við hina svo
kölluðu obstetrisk fysiologi.
Hinar verðandi mæður fá þjálf-
un undir þá miklu vinnu, sem
þær eiga fyrir höndum, upplýs-
ingar o. fl. Og eftir fæðinguna
fá þær æfingar, aðallega fyrir
kviðvöðva og mjaðmagrindar-
botn, til þess að ná sér sem fyrst
og fá síður legsig.
Hlutverk sjúki’a|»(s'i 1 i'a■*-
ans I lijúíffélaginu.
Sjúkraþjálfun ræður oft úr-
slitum um, hvort sjúklingur
verður vinnufær aftur eða ekki
og hefur hún því mikið gildi,
bæði fyrir einstaklinginn og
þjóðfélagið í heild.
Einnig styttir hún oft legu
sjúklinga til muna og það tíma-
bil, sem þeir eru að ná sér eftir
sj úkdóminn (rekurvationstíma-
bilið).
Markmið sjúkraþjálfunar er
að þjálfa sjúklingana til fyrri
vinnugetu eða ef það reynist
ókleyft, reyna að gera þá per-
sónulega óháða (þ. e. a. s. geta
klætt sig úr og í, ferðast um
í hjólastól eða við hækjur, þveg-
ið sér, borðað o. s. frv.). Vinnu-
þjálfarar (ergoterapeut eða
beskæftigelsesterapeut, ekki til
viðurkennt íslenzkt orð yfir það
svo ég viti) er önnur stétt, sem
gegnir mikilvægu hlutverki í
líkamlegri endurhæfingu sjúkl-
inga, en því miður er aðeins
einn slíkur starfandi hér á landi.
Starfsstaðir
sjnkraþjálfarans.
Sjúkraþjálfarar starfa á
margs konar stofnunum, sjúkra-
húsum, endurhæfingastöðvum,
geðsjúkrahúsum, barnaheimil-
um fyrir C-p. börn (fæðingar-
lömun) o. fl. Þeir hafa einnig
sjálfstæða starfsemi, t. d. einka-
æfingastofur eða slökun og
mæðraleikfimi. Einnig vinna
þeir erlendis á stórum vinnu-
stöðum við leiðbeiningar í
starfsstellingum og meðferð
vissra tegunda atvinnusjúk-
dóma.
Á íslandi eru nú starfandi 19
sjúkraþjálfarar í allt, en sam-
kvæmt mjög lauslegri áætlun
er gert ráð fyrir að 60 sé algert
lágmark, ef anna á þörfinni.
Sem betur fer er vaxandi áhugi
á starfinu meðal unga fólksins
jafnt kvenna sem karla og eru
nú þó nokkrir við nám. Aðal-
ástæðan fyrir áhugaleysi því,
sem ríkt hefur, tel ég vera lé-
legar upplýsingar um starfið
og þar af leiðandi vanþekking
og skilningsleysi
Áður en við getum vænzt
skilnings almennings á starfi
okkar, þurfum við að öðlast
hann meðal samstarfsfólksins
og það er von mín, að þessi fá-
tæklegu orð geti stuðlað örlítið
að því.
118 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS