Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 30

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 30
„managerial nursing pattern", þ. e. eins konar stjórnandi hjúkrunarþjónusta, er algeng leið, sem farin hefur verið til lausnar vandans. Þá leiðbeina og stjórna hjúkrunarkonur öðru „skammsoðnara“ hjúkrunarliði við að sinna sjúklingunum („giving care through others"). Með þessum hætti hefur verið reynt að telja fólki trú um að viðunandi hjúkrun sé í té látin, og þótt slíkur fagurgali kunni að blekkja einhverja og dylji að nokkru hvað raunverulega er að gerast, þá eru gallarnir auð- fundnir og sjúklingarnir ganga vissulega með skertan hlut frá borði. Afleióingarnar. Hverjar eru svo afleiðingarnar af þessari stj órnandi h j úkrunarþj ónustu („managerial nursing patt- ern“) ? Fyrst og fremst hefur slíkt ástand dregið úr framfara- þróun „klíniskrar“ hæfni hjúkr- unarstéttarinnar. Til þess að öðlast leikni ásamt öryggi og árvekni í hinu „klíniska“ starfi verður hj úkrunarkonan að kanna heildarþarfir sjúklings- ins og beita framsýni og alúð. Þar, sem stjórnandi hjúkrunar- þjónusta er ríkjandi skapast hins vegar þær aðstæður, að at- hygli hjúkrunarkonunnar verð- ur fyrst og fremst að beinast að yfirstjórn ákveðins hóps og samhæfingu starfsliðsins. Nem- inn er uppalinn til „klíniskra“ starfa, en hjúkrunarkonunni er síðan falið stjórnarstarf, sem hún er illa undir búin. Frama- von í starfi verður einnig á óréttlátum forsendum byggð innan stéttarinnar, því sú hjúkrunarkona, sem sýnir góða stjórnunarhæfileika á sér skjót- ari framvon en hin, sem er framúrskarandi í hinni eigin- legu hjúkrunarlist. Áherzla stjórnenda virðist líka beinast fyrst og fremst að uppbyggingu skipulagseininga á sviði hjúkr- unar, fremur en að lögð sé al- úð við að veita sjúklingunum einstaklingsbundna umhyggju. Hvernig í ósköpunum á „klín- isk“ hæfni að blómgast í slíku andrúmslofti? Og hvernig lík- ar sjúklingunum þetta? Auk þeirrar togstreytu og óánægju, sem oft leynist með hjúkrunarkonum af þeirri sök að þær skortir fullnægingu í starfi, er þess einnig að gæta að staðgenglar þeirra við hin eig- inlegu hjúkrunarstörf eru tíð- um starfsfólk með ónæga þekk- ingu vegna hins skammvinna náms, sem þeim hefur boðist, miðað við þörf ábyrgrar og ör- uggrar upplýsingaþjónustu um ásigkomulag og líðan sjúklings- ins af hálfu þess, sem hjúkrun- ina veitir. Sálræn umhyggja sjúklinganna vill einnig verða tilviljanakennd og mjög ófull- nægjandi. Bæði almennar lýsingar og rannsóknir leiða í ljós, að verk- svið hjúkrunarkvenna er óljóst markað og illa skilgreint innan fjölda sjúkrahúsa og veldur slíkt gjarna óánægju og vafstri. Hvað má þá til bragðs taka? Hér á eftir fara nokkrar til- lögur: 1. Endurskvpulagning hjúkr- unarþj ónustunnar. Frumskilyrði er að hjúkrun- arkonum verði falin hin eigin- legu hjúkrunarstörf „klínisk“ að eðli, þ. e. hjúkrunarstörf, er varða fyrirbyggingu, bata eða stöðvun sjúkleika. Störf varð- andi ræstingu eða sýslan dauðra hluta ýmis konar skal falin öðr- um starfshópum. Þar, sem hið svo nefnda „service manager system“ (e. t. v. má kalla það þjónustu stjórnarkerfi) á fram- tíð fyrir sér, mun þjónustu- stjórinn fá þá ábyrgð og vald í hendur, sem þarf til að end- urskipuleggja og útdeila þess háttar störfum með sem fyllstri hagkvæmni. Þetta hafa hjúkr- unarkonur yfirleitt þurft að annast, án þess að hafa nægi- legt vald til að gera það almenni- lega. Þjónustustjóranum mun ekki ætlaður annar yfirboðari en spítalastjórnin (spítalastjór- inn) og því ætti vald hans að verða ótvíræðara. Sjúkraliðar og hjúkrunarfólk með 1—2 ára námsferil, sem undir fyrirkomulagi „stjórnandi hjúkrunarþjónustu“ á svo rík- an þátt í hjúkruninni, kemur e. t. v. ekki til með að eiga sér stað til frambúðar verði áherzla lögð á þróun „klíniskrar“ hjúkr- unar. Við þær aðstæður yrðu hj úkrunarkonurnar ríkulega sérhæfðar í mismunandi tækni, en um fram allt í einstaklings- bundinni faglegri umsjá hjúkr- unarþegans. Hátæknileg hjúkrunarstörf verða bezt unnin af tækniþjálf- uðum hjúkrunarkonum, sem hafa reglubundinn vinnutíma (hér er ekki átt við tæknistörf unnin af tæknimenntuðu fólki öðru en hjúkrunarkonum). Störf, sem krefjast verulegrar dómgreindar á „klíniskum" vettvangi skulu falin „klíniskt" þjálfuðum hjúkrunarkonum („professional nurses“). Slíkt starfsvið er ekki auðvelt að ríg- binda við reglubundinn vinnu- tíma og því nauðsynlegt að gera ráð fyrir sveigjanleika þar að lútandi. Þjónustustörf varðandi þæg- indi umhverfisins (samanber gistihúsaþjónustu) þarf að sam- ræma, þannig að ein og sama manneskjan (ekki hjúkrunar- kona) annist sem flest af slíku í umhverfi hvers einstaks sjúkl- ings. Slíkt myndi skapa aukið öryggi, draga úr óþarfa smit- burði og gera hlutverkið per- sónulegra fyrir alla viðkomandi aðila. 2. Hjúlcrunarliðið þarf aS eiga aðild að ákveðnum félagshópum■ Slíkir hópar eða einingar eiga að vinna að því markmiði að glæða framfarir á sviði hjúki'- unar innan spítalans. Nefndú' af þessu tagi má tilnefna, sem síðan vinna að auðveldari fram- kvæmd og framgangi helztu 120 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.