Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 38

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 38
Margrét Jóhannesdóttir, fyrrv. forstöðukona: Lítið eitt frá lífi og starfi hjúkrunarkonu Einn af ritstjórum Tímaritsins, Sólveig Hannesdóttir, hefur farið þess á leit, að fá við mig samtal í tilefni brottfarar minnar frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Það er orðin eins konar hefð, að sögð séu helztu atriði úr starfsævi þeirrar, er fer frá ábyrgðarmiklu starfi og hinnar, sem við tekur — sbr. forstöðukvennaskipti á Landsspitalanum (Tímarit H.F.I. 4. tbl. 1968). En slíkar upplýsingar munu birtast í Hjúkrun- arkvennatalinu, sem sennilega verður komið út áður en þetta hefti sér dagsins ljós. Auk þess var samtal við M. J. um félagsmál, ritstjórn o. fl. í Tímariti voru 1964, svo nú virð- ist mælirinn fullur. Því var það, að ég bauð Sólveigu pistil með ofangreindu nafni, sem út kom í „Hlín“, MCMLIV, 36. árgangi, og sem sennilega fáar hjúkrunarkonur hafa séð. Sól- veig tók þessu reyndar með þökkum — svo hér birtist greinin: Ritstjóri „Hlínar“ hefur farið þess á leit við mig, að ég segi lesendum hennar eitthvað af starfi mínu. — Þetta mun ég nú leitast við að gera, í þeirri von, að pistillinn muni e. t. v. verða einhverjum til gagns eða ánægju. Mér þykir vænt um „Hlín“ síðan ég var útsölumað- ur hennar á Kristneshæli og vil gjarnan gera henni greiða. En menn verða að taka viljann fyrir verkið, því ævisaga mín er sam- ofin hjúkrunarstarfinu og þeir sem tala of mikið um sjálfa sig, þykja stundum leiðinlegir. Þetta vil ég biðja ritstjórann að at- huga, áður en greinin verður tekin til birtingar. Ég var nýlega orðin 17 ára þegar ég var ákveðin í því, hvaða ævistarf ég vildi velja mér. Atvik til þess voru, að þeg- ar ég var á kvennaskóla á Norð- urlandi, veiktist ein skóla- og herbergissystir mín og í minn hlut kom, að rétta henni hjálp- arhönd. Eftir það kvikaði ég ekki frá því marki að verða hjúkrunarkona. Og ekki varð heldur neinn til að telja mér hughvarf. Móðir mín var þá dáin, og faðir minn var dætr- um sínum of góður og eftirlát- ur til þess, að hann legði stein í götu þeirra á nokkurn hátt. Mér var gefin bókin „Hjúkrun sjúkra“ eftir Steingrím Matt- híasson, og hana las ég spjald- anna á milli og reyndi að afla mér meira lesmáls um líkt efni, þótt ekki gengi það greiðlega. 19 ára gömul byrjaði ég hjúkrun á Laugarnesspítalanum undir stjórn þeirra Sæmundar Bjarnhéðinssonar og Harriet Kjær. Þá voru á Laugarnesi um 40 sjúklingar og sumir mikið veikir. — Við vorum tveir hjúkrunarnemar og ein hjúkr- unarkona, auk frk. Kjær yfir- hjúkrunarkonu,svo og ein vöku- kona. — Frá því kl. 6 á morgn- ana til 8 á kvöldin, batt ég um og þvoði upp sár, lagði bakstra, bjó um rúm, baðaði sjúklinga og skammtaði þeim mat í vissum ílátum. (Hver vildi hafa sitt rétta ílát, og var stundum ekki gott að þekkja þau sundur). — Að vísu var 2ja klst. frítími á daginn, að öðru leyti en því, að svara þurfti hringingum. En ekki lagði ég mig til hvíldar í frítímanum, heldur sat við út- saum. Það var ekki siður á Laugarnesi að gefa heila frí- daga, heldur aðeins frá kl. 2 á daginn, einu sinni í viku. Samt naut ég þeirra fríðinda að fá frí allan jóladaginn 1926. — Á kvöldin máttum við nemarnir ekki fara út fyrir spítalalóðina, nema biðja um leyfi. Frk. Kjær bannaði mér líka að hlaupa á harðaspretti um gangana, en það gerði ég óspart í byrjun, þegar ég þurfti að flýta mér — og gat raunar aldrei vanið mig alveg af því. — 1 fyrsta skipti sem ég vatt bakstur, brenndi ég alla lófana og fingurna innan- verða, en ætlaði ekki að skeyta um það, heldur halda áfram hjúkrunarstörfunum. En yfir- hjúkrunarkonan tók eftir því, bannaði mér að vinna, bar joð- áburð á sárin og batt um. Sagði hún um leið, að ég væri of ung til að vinna þessi erfiðu störf, og skyldi ég bíða í tvö ár, en byrja svo aftur. Það var mér mjög fjarri skapi, enda gekk allt vel eftir þetta og að skiln- aði sagði frk. Kjær, að hún gæfi mér sín beztu meðmæli. — Ég var 8 mánuði á Laugarnesi, mér þótti mjög vænt um sjúkling- ana og líkaði þar vel. Enn stend- ur mér spítalinn fyrir hugskots- sjónum sem eitt hið fallegasta og hreinlegasta hús, sem ég hef á ævinni séð og mig verkjaði í hjartað er ég, 20 árum síðar, sá það brenna til kaldra kola á 128 TÍMARIT IIJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.