Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Síða 47

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Síða 47
Læknisnicðfcrð, nlnienn. Ef sjúkdómurinn er ekki meðhöndlaður, getur barnið dáið vegna næringarskorts og vegna infectiona, t. d. lungnabólgu, þar sem mótstaða barnsins er mjög lítil gegn öllum smitunum. En séu þessi einkenni, sem að framan greinir, ekki mjög áberandi, og hægt er að halda næringarástandi barnsins í góðu horfi, fram til 3ja mán. aldurs, er engin ástæða til operationar. Við nútíma aðstæður er þó meir farið að hallast að því að operera þessi börn, þar sem nú er ekki stefnt í tvísýnu með barnið, þótt það sé opererað, og almenn medicinsk meðferð krefst þess, að barnið liggi e. t. v. 1—2 mánuði á sjúkrahúsi. Að síðustu má geta vægustu ,,Pylorus-barnanna“, sem meðhöndluð eru í heima- húsum. Móttakii (lrengsins. Þegar litli drengurinn kom inn á deildina, var búið að undir- búa komu hans. Hjúkrunarkonan, sem tók á móti honum, reyndi að ná heildaryfirsýn yfir líðan hans, og sá, að hann var með- tekinn, horaður og reageraði lítið við ytri áhrifum, grét veikt og lítið. Var drengurinn settur á hreina ungbarnastofu með börnum, sem höfðu enga infection. Drengnum var þvegið fyrst lauslega og um leið observeraði hjúkr- unarkonan almenna húðhirðingu, s. s. skóf í hári, eyru, ,,bossa“, einnig obs. hún hvort nokkur útbrot væru á húðinni, ekkert af þessu var neitt athugavert. Síðan var barnið vigtað, 3.600 gr., mæld lengd og mældur líkamshiti, 36.3°C, púls var 120 pr. mín. Eftir þetta var drengurinn klæddur í sjúkrahússfötin og lagður í grindarúm, þar sem hækkað var til höfða, lagt ullarteppi yfir sængina og aðgætt að nógu hlýtt væri inni á stofunni til að halda líkamshita hans jöfnum og heitum. Allar upplýsingar um drenginn voru fengnar frá foreldrum hans, s. s. nafn, fæðingardag, fæðingarstað, dvalarstað og síma- númer þeirra meðan á legu drengsins stóð, ásamt sjúkrasamlags- númeri og nafni heimilislæknis. Einnig fékk hjúkrunarkonan upplýsingar um sjúkrasögu drengsins hjá móður hans til þess að hún kynntist barninu betur og einnig til að koma á móts við móður þess. Að síðustu var móðurinni afhent kort, þar sem á voru ritaðar reglur barnadeildarinnar. Var foreldrunum síðan vísað til vakthafandi læknis. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 137

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.