Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1975, Blaðsíða 39
konur sátum með héraðslækni, Brynleifi
Steingrímssyni ásamt nefnd er athugar mál
um stofnun heimilishjálpar, en þar inn í
hefðum við viljað fella heimilishjúkrun
þá með hjúkrunarkonu sem forstöðukonu.
Við höfum aflað okkur bæklinga um
tryggingamál og gerst áskrifendur að
Fréttabréfi um heilbrigðismál okkur til
fróðleiks.
Á fundi 21. mars 1975 kusum við full-
trúa á aðalfund HFI. Lilja Hannibalsdótt-
ir var kjörin til fararinnar en til vara
Margrét Svane. - Við lýsum yfir ánægju
okkar með útdrátt úr fundargerðum HFÍ
sem sendar eru deildunum. Ætti það að
auðvelda okkur að fylgjast með því sem
er að gerast í okkar stétt.
17. apríl 1975 komum við enn saman og
flutti Guðjón Sigurkarlsson læknir fróð-
leiksmola um berkla og ræddum við þá
hluti við liann. Á þessum fundi höfðum við
undir höndum teikningu af hinu nýja
sjúkrahúsi Suðurlands og varð ]>að til þess
að héraðslæknirinn, Brynleifur Steingríms-
son, kom kvöldstund og skýrði betur frá
teikningunni.
Von okkar er að byrlega blási áfram hjá
deild okkar og að byrjunarörðugleikar
verði sem fyrst yfirstignir.
Siiðnriiesjadclld IIFÍ
Suðurnesjadeildin var formlega stofnuð
4. júlí 1974. Búsettar á svæði deildarinnar
eru 17 hjúkrunarkonur.
Fundir hafa verið haldnir einu sinni í
mánuði. Á fundunum hafa verið tekin fyr-
ir ýmis málefni og höfum við fengið til
okkar gesti með fyrirlestra og fræðslu-
efni.
Aðaláhugamál okkar hingað til hefur
verið að komið yrði á fót heilsugæslustöð
fyrir Suðurnes og hafa forsvarsmenn bæj-
arfélaganna á Suðurnesjum komið á fundi
og svarað fyrirspurnum um það mál.
Komst góður gangur í það eftir áramót og
verður Heilsugæslustöðin opnuð 17. maí.
Einnig höfðum við fengið til viðræðna
menn úr byggingarnefnd sjúkrahússins.
Þar er áætlunin að byggja nýja álmu við
það gamla, en framkvæmdir þeirra mála
hafa gengið mjög hægt og áformum við að
reyna að þrýsta á það mál eða í það
niinnsta að halda málinu vakandi.
Á aðalfundi deildarinnar sem haldinn
var 6. febrúar var ákveðið félagsgjald kr.
500,00 og í sjóði voru þá kr. 10.743,00.
F. h. Suðurnesjadeildar HFI
Eygló Geirdal.
Kcnnaradeild HFÍ
Þrír fundir hafa verið haldnir síðastlið-
ið starfsár.
5. júlí 1974 kynnti Ingibjörg R. Magn-
úsdóttir námstilhögun öldungadeildar
Menntaskólans við Hamrahlíð. Gestur
fundarins var Stefán Olafur Jónsson deild-
arstjóri í verk- og tæknimenntunardeild
menntamálaráðuneytisins. Kynnti hann
fyrirhugað náin í Kennaraháskólanum fyr-
ir kennara í sérskólum er ekki hafa kenn-
arapróf.
6. nóvember 1974 var aðalfundur deild-
arinnar haldinn.
Borist hafði hréf frá skrifstofu Hjúkr-
unarfélagsins þess efnis, að María Péturs-
dóttir léti af störfum sem formaður félags-
ins en við tæki Ingibjörg Helgadóttir.
Voru Maríu þökkuð vel unnin störf í þágu
hjúkrunarstéttarinnar. Jafnframt sendu
fundarmenn henni kort með kveðjum á,
en María dvaldist um þessar mundir í
Kanada.
Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir sagði
okkur frá för sinni til Noregs síðastliðið
sumar, en þar sótti hún námskeið í klin-
iskri kennslu. í lokin bar Guðrún Margrét
fram þá tillögu að klinisk kennsla hjúkr-
unarnema hér heima yrði tekin til athug-
unar og umræðu í deildinni og var það
einróma samþykkt.
Guðrún Margrét hafði með sér gjöf til
deildarinnar er hún kom frá Noregi. Voru
það eintök af „Pediologen“-tímariti sem
norska kennsludeildin gefur út.
Á fundi sínum 12. febrúar 1975 var
klinisk kennsla rædd og ýmis gögn þar að
lútandi kynnt.
Dorote Oddsdóttir kennari í HSI sagði
frá hjúkrunarnámi sínu í Bandaríkjunum,
en hún hefur „associate degree" frá
Kentucky háskóla.
Gestur fundarins var Rósfríður Kára-
dóttir hjúkrunarkona frá Akureyri. Dvaldi
hún eina viku í Hjúkrunarskóla íslands til
að kynna sér tilsagnir og próf hjúkrunar-
nema á sjúkradeildum.
Breyting á stjórn félagsins varð sú, að
Rögnvaldur Stefánsson kom inn í vara-
stjórn fyrir Guðrúnu Marteinsson er stund-
ar hjúkrunarkennaranám við University of
Manchester, Englandi. Rögnvaldur stund-
aði sitt nám við Helsingfors svenska
sjukvárdsinstitut, Finnlandi.
Félagar eru 14, aukafélagar 9.
F. h. Kennaradeildarinnar,
Sigþrúður Ingimundardóttir formaður.
Dciltl licilsuvcriular-
li j úkr iiiiarkveiina
Aðalfundur deildarinnar var haldinn 24.
janúar 1974.
I stjórn voru kosnar Sigríður Þorvalds-
dóttir og Þuríður Aðalsteinsdóttir. Fyrir
voru í stjórninni Mary Sigurjónsdóttir og
Kristbjörg Þórðardóttir. Stjórnin skipti
þannig með sér verkum að Sigríður er
formaður, Mary ritari, Þuríður gjaldkeri
og Kristbjörg meðstjórnandi.
Nokkrar breytingar voru gerðar á lögum
deildarinnar.
Á fundinum las Sigríður Jakohsdóttir
upp drög að starfslýsingu heilsuverndar-
hjúkrunarkvenna.
Auk aðalfundar voru haldnir tveir
fundir í deildinni, hinn fyrri 3. apríl. Þar
var rætt um möguleika á framhaldsnámi í
heilsuvernd hér á landi. Voru Elín Sigurð-
ardóttir, Pálína Sigurjónsdóttir og Sigríð-
ur Þorvaldsdóttir kosnar í nefnd til að
kanna aðstæður. Nefndin hefur ekki lokið
störfum.
Síðari fundurinn var haldinn hinn 23.
október. Þar flutti Ragnhildur Ingibergs-
dóttir yfirlæknir, erindi um starfsemi
Kópavogshælis. Einnig var sýnd kvikmynd
um hliðstæða starfsemi erlendis.
I ársbyrjun voru félagar deildarinnar 21.
Á árinu gengu í deildina þær Unnur
Gígja Baldvinsdóttir, Hanna Kolbrún Jóns-
dóttir, Ástríður Tynes, Kolbrún Ágústs-
dóttir og Ragnheiður Þorgrímsdóttir sem
allar hafa lokið prófi frá Statene helse-
sösterskole í Oslo. Deildarkonur í árslok
voru 26. Fjórar þeirra er gengu í deildina
1974 starfa við Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur, en ein, Unnur Gígja, í Vestmanna-
eyjum.
Sigríður Þorvaldsdótlir.
S væf ingarli j úkr miarf clag
fslands
Á árinu voru haldnir tveir fundir, auk
aðalfundar. Aðal áhugamál félagsins er og
hefur verið frá stofnun þess að fá ríkis-
viðurkennda reglugerð um svæfingarnám
hér á landi. Mál þetta hefur einkennt
fundi nú í ár sem og fyrr.
Á fyrsta fundinum greindi Margrét Jó-
hannsdóttir frá viðtali sem hún átti við
Ingibjörgu Magnúsdóttur og kom þá fram
að HFI yrðu send boð um að hvert sérfé-
lag innan HFI tilnefndi 2 félaga til að
vinna að málum þessum.
Á aðalfundinum 17. febrúar þótti félög-
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 133