Kvennalistinn á Vesturlandi - 01.05.1995, Qupperneq 3
3
Við opnun kosningaskrifstofu í Borgarnesi.
Helga: Það er mjög varasamt að
halda að sér höndum og halda að ein
verksmiðja leysi allan vanda. Það
getur vel verið að sinkverksmiðja geti
leyst atvinnuvanda á Akranesi og í
Borgamesi, en hún leysir engan
vanda á Snæfellsnesi eða í Dölunum.
Það em ekki til neinar töfralausnir og
varasamt að halda að sér höndum og
bíða eftir stóriðju eins og gerðist á
Reyðarfirði. Akranes er dæmi um bæ
sem hefur lagt áherslu á stóra vinnu-
staði og fremur lítið er um smáfyrir-
tæki, hvort sem er í smáiðnaði eða
þjónustu. Ahersla Kvennalistans á að
„margt smátt geri eitt stórt“ á vel við
Vesturland.
Sigrún: Heimurinn er að minnka
og samskipti og viðskipti við aðrar
þjóðir verða æ mikilvægari þáttur í
daglegu lífi manna. Meðan við höld-
um sjálf um stjórntaumana hér tel ég
að það geti verið jákvætt að laða
hingað erlent fjármagn til að auka
fjölbreytni atvinnulífsins. Ymsar
góðar hugmyndir um lífvænlegan at-
vinnurekstur hafa strandað vegna
þess að fjármagn vantaði.
Hansína: A komandi árum verður
menntunarstig þjóðarinnar sffellt
hærra og þá er ekki endilega víst að
fólk kæri sig um að starfa við stórfyr-
irtæki. Ef við erum að hugsa um að
halda unga fólkinu í héraðinu þá
verðum við að hafa það hugfast að
við höfum ýtt því út á menntabraut-
ina. Við verðum að taka tillit til óska
þess.
Helga: Það þarf engar geysilega
háar upphæðir til þess að laða fram
íslenskt hugvit. Við erum með starfs-
hóp á Akranesi sem er að koma á fót
frumgerðarverkstæði. Við erum búin
að reikna það út að rekstrarkostnaður
af því sé fimm milljónir króna á ári,
en það þótti of lítið dæmi til þess að
Iðnaðarráðuneytið liti á það. Þarna
hugsum við aðstöðu fyrir íslenska
hugvitsmenn, þ.e. tæki og aðgang að
þekkingu til þess að þeir geti útfært
hugmyndir si'nar. Það á að geta skilað
sér, við eigum mikið af þúsundþjala-
smiðum sem eru til taks á svæðinu og
einnig með aukinni samvinnu skóla
og atvinnulífs.
Hvernig líst ykkur á að sveitarfé-
lögin axli þá ábyrgð að reka grunn-
skólana?
Sigrún: Ég efast ekki um að í
stærri sveitarfélögum fáum við betri
grunnskóla en áður. Ég held að metn-
aðurinn verði meiri og fólk muni
sameinast betur um að bæta skólana.
I minni sveitarfélögum getur róðurinn
orðið þyngri þó auðvitað séu dæmi
um svo rfk lítil sveitarfélög að þau
rnuni geta haldið uppi lúxusskólum ef
metnaður þeirra hnígur í þá átt.
Helga: Það er starfandi nefnd sem
á að vinna að undirbúningi þess að
taka á móti hinum fjölmörgu málum
sem snerta flutning grunnskólans til
sveitarfélaganna. Mikil vinna er
óunnin ef þetta á að leysast farsæl-
lega, bæði hvað varðar kjör kennara
og annars starfsfólks sem vinnur að
fræðslumálum. Ég held að sveitarfé-
lögin geri sér ekki grein fyrir því
hvað þetta er viðamikið verkefni.
Þetta er minna mál fyrir stóru sveitar-
félögin en því meira mál sem sveitar-
félögin eru minni.
Hansfna: Þetta er gífurlega stórt
verkefni, ég er sammála því. Hins
vegar er þetta liður í því að efla sjálf-
stæði sveitarfélaganna og þrýstir á
nánari samvinnu þeirra. I Dalasýslu
þar sem sameiningin gekk tiltölulega
vel fyrir sig, eru menn búnir að velta
sameiningu og verkaskiptingu fyrir
sér í fjölmörg ár. Mér sýnist það hafa
gengið nokkuð vel. Hlutverk ríkisins
er að tryggja sveitarfélögunum fjár-
magn til þess að jafnrétti til náms sé
raunveruleiki og jafnframt þarf að
gæta vel að því að skólamir geti veitt
þá þjónustu sem þeim ber að veita
samkvæmt lögum.
Hvernig œtlar Kvennalistinn að
vimta að því að minnka þann gífur-
lega launamun sem er á ntilli karla
og kvenna? Ætlið þið að fara aftur
fram á lögbindingu lágmarkslauna?
Helga: Þó að við séum göldróttar,
við Hansína, af Ströndunum getum
við ekki tryggt lögbindingu lág-
markslauna við næstu stjórnarmynd-
un.Við sjáum möguleika á að leið-
rétta launamuninn í gegnum skatta-
kerfið, bæði hjá einstæðum foreldrum
og bamafjölskyldum og þeim sem
lægst hafa launin.
Hansína: Það er rétt að við settum
þessa kröfu fram 1987 og héldum í
barnaskap okkar að á hana yrði fall-
ist. Það er mikilvægt að hafa í huga
að ýmis kerfi tengjast launakerfinu
eins og almannatryggingakerfið og
heilbrigðiskerfið. Þetta er talsvert
flóknara en það eitt að hækka launin.
Þessum leiðréttingum má ná fram
með ýmsum hætti, s.s. með vaxtabót-
um og breytingum í gegnum skatta-
kerfið, meðal annars með því að nýta
persónuafslátt bama að fullu. Það
hlýtur að vera gífurlegt hagsmunamál
fyrir bamafjölskyldur.
Sigrún: Þar sem konur reka sjálfar
fyrirtæki fer engum sögum af miklum
launamun. Ein leið væri að hvetja
konur sem mest til að nýta sér mennt-
un sína og hæfileika til eigin atvinnu-
sköpunar.
Nú eru engir karlmenn á fratn-
boðslista Kvennalistans. Hvers
vegna œttu karlar að kjósa ykkur?
Sigrún: I einni af mörgum skoð-
anakönnunum sem gerðar hafa verið
kom fram að þriðjungur kjósenda
Kvennalistans eru karlar. Flestir rétt-
sýnir menn sjá að það er mikil
kynjaslagsíða á stjórn þjóðarskútunn-
ar og sjá að Kvennalistinn er enn sem
komið er eini valkosturinn til að rétta
þessa slagsíðu.
Helga: Karlmönnum er náttúrulega
umhugað um framtíð barna sinna eins
og konum. Kvennalistinn er eina aflið
í íslenskum stjórnmálum sem hefur
skýrar hugsjónir og framtíðarsýn í
þeim efnum. Ég veit að íslenskir karl-
menn hafa margir hverjir tekið ein-
dregna afstöðu með Kvennalistanum
og halda áfram að kjósa hann nú sem
áður.
Hansína: Því er fljótsvarað. Það er
hvergi eins glæsilegan lista að finna
og Kvennalistann. Það eitt og sér ætti
að nægja til þess að karlar kjósi okk-
ur. Við sjáum það til dæmis í Banda-
ríkjunum að konur þykja ákaflega
traustar, til dæmis í fasteignaviðskipt-
um. Fólk kaupir frekar af konum en
körlum. Ég er alveg sannfærð um að
karlar kjósa okkur ekki síður en kon-
ur, þeir vita mætavel að konum er
treystandi, mæðrum eiginkonum og
systrum.
Pökkum vcittan stuðning:
Vélabær lif.
Andalólshreppi
Frá Borgarbyggð:
Agúst Guðnnmdsson
múrarameistari
Hjólbarðaþjónustan
Borgarbraut 55
Biíreiðaþjónustan
Hjólbarða og smurstöð
Borgarbraut 59
Ltjgfræð iskri í stofa
Gísla Kjartanssonar
Hótel Borgames
Vímet lif.
Borgarverk hf.
vélaleiga
Frá Búðardal:
Mjólleursamlagið
Fyrirtak
biíreiðaverkstæði
Tak hf.
Krist-Tak hf.
Fóðuriðjan
Ólafsdal lif.
Saurbæjarhreppi
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN
BORGARNESI ‘94 - ‘95
SUNDLAUG OPIN:
Mánud. W. 7.00-10.00. 12.00-13.00, 18.00-20.30
PnOjud. W. 7.00-09.00, 12.00-13.00, 18.00-22.OO
Miðvikud. W. 7.00-09.00. 12.00-13.00. 18.00-20.30
Fimmtud. kl. 7.00-10.00. 12.00-13.00, 18.00-22.00
Föctud. kl. 7.00-08.30, 12.00-13.00. 17.00-22 OO
Laugard. og sunnud W. 9.00-16.00
Potfiml - Preksalur - Vatnsleikfimi - Nudd
Ungbamasund - Sánabað
Verið velkomin S. 93-71444