Kvennapósturinn: Fréttabréf Reykjavíkuranga - 13.08.1998, Blaðsíða 1
Kvennapósturinn
Útg. Kvennalistinn, Pósthússtræti 7
5.tbl. 8. árg. 1998
Ábyrgð: Guðrún Jónsdóttir
Guðrún Guðmundsdóftir
ouðurvangi 10
220 HAFNARFJÖRÐUR
Afskiptaleysið í samfélaginu
Opinn fundur hjá Kvennalistanum, Pósthússtræti 7
þriðjud. 18. ágúst kl. 17.
Georg Lárusson lögreglustjóri og afbrotafræðingamir
Karl Steinar Valsson og Hildigunnur Ólafsdóttir ræða
um afskiptaleysið í samfélaginu á opnum fundi,
þriðjudaginn 18. ágúst kl. 17. Fundarstýra verður
Guðrún Ögmundsdóttir.
Tilefni umræðunnar er hin hörmulega nauðgun sem átti
sér stað í Kópavogi þann 8. ágúst sl. þar sem fjöldi vitna
leiddi hjá sér hjálparbeiðni konu með árásarmann á
hælunum. Hvað veldur sinnuleysinu og hvemig má
endurvekja samábyrgð og náungakærleik?
Allir velkomnir
Kvennalistinn