Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Side 30

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Side 30
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 70. drg. 1994 Þessir þættir eiga það sameiginlegt að vera hluti af samskiptamynstri og leiðir það í ljós mikilvægi þess að sinna þeim þætti starfanna vel. Starfsvettvangur ræður miklu um starfsánægju. í ljós kemur að óánægðastir hjúkrunarfræðinga eru þeir sem sinna fæðingarhjúkrun (tafla 5). Tafla 5. Starfsánægja eftir sviðum sem hjúkrunarfræðingar starfa á Hjúkrunarsvið Mcðaltal Staðalfrávik Fjöldi Stjórnun 3,47 0,51 28 Heilsugæsluhjúkrun 3,36 0,47 58 Geðhjúkrun 3,36 0,51 42 öldrunarhjúkrun 3,27 0,46 66 Lyflækningahjúkrun 3,27 0,38 62 Barnahjúkrun 3,20 0,37 25 Handlækningahjúkrun 3,13 0,41 66 Fæðingarhjúkrun íslenskir hjúkrunarfr. 3,09 0,61 26 skv. MMSS 3,26 0,47 612 Bandarískir hjúkr.fr. 3,28 0,45 190 Tengsl menntunar og starfsánægju eru flókin. Hjúkrunarfræðingar, sem hafa lokið námi erlendis, eru ánægðari í starfi (3,32) en þeir sem eingöngu hafa íslenskt nám að baki. Langánægðastir í starfi mælast hjúkrunarfræðingar sem hafa lokið 30 „mastersnámi“ (3,59), en þeir eru 1,8 % þátttak- enda. Hjúkrunarfræðingar, sem hafa lokið prófi frá Ljósmæðraskóla íslands, eru óánægðastir allra hjúkrunarfræðinga (3,17) þegar eingöngu er litið til menntunar og starfsánægju. Fylgnireikningur starfsánægju og stöðuheita bendir til að stjórnendur séu ánægðari en aðrir (tafla 6). Tafla 6. Starfsánægja eftir stöðuheitum hjúkrunarfræðinga Staða Meðaltal Staðalfrávik Fjöldi Heildarmæling (MMSS) 3,26 0,47 612 Alm. hjúkrunarfræðingar 3,21 0,46 294 Deildarstjórar 3,46 0,44 72 Æðri stjórnendur 3,47 0,48 145 Þegar skoðuð er starfsánægja hjúkrunarfræðinga eftir stofnunum, sem þeir starfa á, kemur í ljós að hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöðvum eru ánægðastir (3,33). Jafnframt eru hjúkrunarfræðing- ar á minni sjúkrahúsum (< 300 rúm) (3,30) ánægð- ari í starfi en þeir sem starfa á stóru sjúkrahúsunum (Borgarspítali og Landspítali > 300 rúm)(3,21). Hins vegar kemur í ljós að hjúkrunarfræðingar á Stór-Reykjavíkursvæðinu eru heldur ánægðari í starfi (3,27) en þeir sem búa úti á landi (3,24) þó munurinn sé ekki marktækur. Þeir sem vinna fulla vinnu eru ánægðari í starfi en hinir (tafla 7). Tafla 7. Starfsánægja cftir starfshlutfalli Starfshlutfall Meðaltal Staðalfrávik Fjöldi Heildarmæling (MMSS) 3,26 0,47 612 Fullt starf, dagvinna 3,46 0,41 94 Hlutastarf, dagvinna 3,39 0,50 114 Fullt starf, vaktavinna 3,25 0,45 110 Hlutastarf, vaktavinna 3,19 0,41 196 Ekki í starfi við hjúkrun en í öðru launuðu starfi 3,13 0,40 12 Hlutastarf við hjúkrun og í öðru launuðu starfi 3,12 .0,6 37 Einungis miðað við þá sem voru í launuðu starfi. Þar er að sjálfsögðu erfitt að greina að orsök og afleiðingu. í töflu 8 má glöggt sjá að starfsánægja er mismunandi eftir því á hvaða tíma sólarhrings hjúkrunarfræðingar vinna og eru þeir sem vinna fastar næturvaktir óánægðastir. Spurt var hvaða þættir yllu mestri óánægju. Tafla 8. Starfsánægja eftir vinnutíma Tegundir vakta Meðaltal Staðalfrávik Fjöldi Dagvinna 3,39 0,46 242 Kvöldvinna/-vaktir 3,15 0,36 30 Næturvinna/-vaktir 3,15 0,50 19 Breytilegar vaktir 3,20 0,44 288 Heildarmæling 3,28 0,45 579 í töflu 9 má sjá viðbrögð þátttakenda, en þessi svör eru í samræmi við þær áherslur sem koma fram víðast erlendis. Tafla 9. Þættir sem hjúkrunarfræðingar eru óánægðir með í starfi sínu. Laun 89,2 % Launaálag vegna vakta 74,4 % Mönnun deilda 60,7 % Ymis hlunnindi 54,7 % Tækifæri til að halda við þekkingu sinni 39,6 % Starfsánægja þeirra sem hyggjast hætta að starfa við hjúkrun eða eru ekki vissir um hvort þeir haldi áfram er lægri en hinna sem ekki hyggjast hætta. Þessi hópur sýnir einnig umtalsvert minni starfs- ánægju en hjúkrunarfræðingar almennt (tafla 10).

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.