Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1996, Blaðsíða 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1996, Blaðsíða 19
Erla Dóris Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sagnfræðingur Koma nfirhjúkrunarkonu Holdsveikraspítalans Árið er 1898. Júlímánuður er runninn upp. Sól skín yfir Reykjavíkurhöfn sem skartar sínu fegursta. Danskt póstskip rennur inn í höfnina. Á þilfari skipsins stendur ung kona og horfir dreymandi augum yfir dýrðina. Hún þefar eftirvæntingu í loftinu, nýtt heimaland bíður hennar. Ef vel er að gáð má sjá í andliti konunnar tilhlökkun og kvfða. Yfirhjúkrunarkona við nýstofnaðan Holdsveikraspítala á Islandi stígur á land. Þannig má ímynda sér að koma hjúkrunarkonunnar, frökenar Christophine Mikkeline Jiirgensen, til íslands hafi borið að, þó engar heimildir segi til um slíkt en þó er fullvíst talið að hún hafi komið hingað til landsins í júlf 1898.1 En hvernig var það fyrir vel menntaða unga hjúkrunarkonu að koma til íslands rétt fyrir síðustu aldamót þegar aðeins tvö lítil sjúkrahús vom starfrækt hér, annað í Reykjavík og hitt á Akureyri? Þess ber þó að geta að tveimur árum áður en Christophine kom til Islands höfðu ijórar nunnur af St. Jósefs- reglu komið til landsins og tekið að sér hjúkrun franskra sjómanna sent þurftu þess með en þeir stunduðu veiðar hér við land á þessum tíma. Höfðu nunnurnar aðstöðu fyrir sjómennina í lítilli kapellu á Landakoti.2 Viðfangsefni þessarar greinar er að fjalla í stuttri saman- tekt um upphaf hjúkrunarstéttar hér á landi og í Danmörku en hjúkmnarkonur í Danmörku hafa aðallega verið íslensku hjúkrunarstéttinni fyrinnynd hvað varðar uppbyggingu. Danskir læknar og vinnukonur kenna hjúkrunarkonum Aðhlynning sjúkra og særðra, sem á sér langa sögu, var vfðast hvar erlendis f höndum nunna í klaustrum fyrir siðaskiptin en varð fyrir miklum skakkaföllum þegar klaustur vom lögð niður í löndum mótmælenda þar sem engar sjúkrastofnanir tóku við hjúkrunarstarfsemi klaustranna.3 I upphafi nítjándu aldar var ekki annarra kosta völ fyrir konur sem vildu starfa við hjúkrun sjúkra en að gerast nunnur í þeim löndum þar sem klaustur voru starfrækt. Sjúkrahús höfðu þó verið sett á stofn í nokkrum löndum mótmælenda og hjúkrun var þar í höndum ófaglærðra vinnukvenna.4 Um miðja nítjándu öld urðu framfarir í læknisfræðinni sem stuðluðu mjög að því að hjúkrunarstarfið varð að sérhæfðri starfsgrein. Má þar nefna uppgötvanir Louis Pasteurs á sýklum og Joseph Listers á antiseptik og uppgötvun svæfingarlyfsins eters. Þessar nýjungar urðu meðal annars til þess að læknar þurftu að hafa menntaðar hjúkrunarkonur sér til aðstoðar. Danskur læknir, dr. Holmer, lætur þess getið þegar árið 1881 í bók sinni Hjúkrunarfrœði eða leiðbeining við hjúkrun sjúklinga að þar sem lækningum hafi farið mjög fram sé meiri þörf á lærðum hjúkmnarkonum. I bók hans má lesa eftirfarandi: Til dæmis er það, að í lækningarfræðinni (Medicin) heimta hitamælingar, böð o.s.frv. meira af hjúkrunarkonunni, og einkum í handlækningafræðinni (Chirurgi) heimta „den Hjúkrunarkoniir og vinnukonur á HoldsveikraspCtalanum á drunum 1917-1918. Sitjandi fyrir miðju er fröken Harriet Kjœr og lil beggja handa liennar eru íslenskar lijúkrunarkonur sem störfuðu á spítalanum. Ráðskona og vinnukonur spfíalans standa fyrir aftan þœr. antiseptiske reform“ (hin rotnun-varnandi endurbót), að sérhver hafi skilið þýðingu hennar, sem til aðstoðar á að vera bæði við skurðinn (Operation) og hjúkrunina eftir á; ógætni eða misskilningur getur spillt öllu.5 Þegar bók danska læknisins kom út höfðu þá þegar orðið þáttaskil í umönnun sjúkra á sjúkrahúsum í Danmörku. Árið 1863 voru tvö sjúkrahús sett á stofn f Kaupmannahöfn en það vom Diakonissestiftelsen og Kommunhospitalet. Hjúkrun sjúklinga á Diakonissestiftelsen var í höndum lærðra hjúkrunarkvenna en á Kommunehospitalet var aðhlynning sjúklinga í höndum vinnukvenna sem höfðu oft lítinn tíma til að sinna sjúklingum vegna þess hversu fáliðaðar þær vom og vegna annarra starfa sem þær urðu að inna af hendi á spítal- anum. Auk þess að sinna sjúklingunum urðu þær að sjá um eldamennsku og þrif á spítalanum. En breyting átti eftir að eiga sér stað í hjúkrunarmálum spítalans. Árið 1876 varð Carl Emil Fenger, sem jafnframt var læknir, forstöðumaður sjúkra- hússins og vildi hann bæta aðhlynningu sjúkra við stofnunina. Til að ná því markmiði taldi hann að læknar spítalans yrðu að kenna og mennta konur til starfa sem hjúkrunarkonur. í september 1876 hóf Athalie Anger, dönsk prestsdóttir, hjúkrunarnám við spítalann ásamt öðrum konuni. Verklega tilsögn fengu þær hjá læknum spítalans og vinnukonum deildanna. Eflir sjö mánaða hjúkrunarnám við spítalann var Athalie Anger veitt yfirhjúkmnarkonustaða á einni deild hans. Undir sína stjórn fékk hún sex hjúkmnarkonur sem höfðu tveggja til sex mánaða hjúkrunarnám að baki, tvo hjúkmnar- nema og tvær vinnukonur. Hjúkrun sjúklinga á deildum spítalans átti eingöngu að vera f höndum hjúkrunarkvenna og hjúkrunarnema en störf vinnukvennanna áttu meðal annars að felast í þrifum og eldamennsku á spítalanum. Við þetta sjúkrahús lærði yfirhjúkmnarkonan, Christophine Mikkeline Júrgensen. Þegar hún hóf hjúkrunarnámið árið 1894 tók hjúkrunamám við spítalann þrjú ár.6 TfMARIT IIJÚKRUNARFRÆÐINGA 4 tbl. 72. árg. 1996 187 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.