Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2001, Blaðsíða 62
ATVI
fCPtefiteal HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SELFOSSI
\ * v/Árvog - 800 Selfoss - Simi 482-1300
Heílbrígðísstofnunín selfossi
Hiúkrunarfræðingar
Heilsugæslustöðin á Selfossi vantar
hjúkrunarfræðinga í afleysingastarf
strax eða eftir ssmkomulagi í eitt ár:
50% starf við Sólvallaskóla og 50%
við heilsugæsluna við skóla o.fl.
Unnið er í teymisvinnu með læknum.
Störf við heilsugæslu eru fjölbreytt
og gefandi, tilvalið að kynna sér
heilsugæsluna.
Svæðið er Selfoss / Árborg og
nálægar sveitir, með rúmlega 6
þúsund skjólstæðingum. Geti
einhver séð af tíma í þetta gefandi
starf hafið samband við Kristjönu
hjúkrunarforstjóra heilsugæslu í síma
482-1300 og hs.482-1746.
Netfang:
kristjana.ragnarsdottir@hss.selfoss.is
f.h. Heilsugæslu Selfoss
hjúkrunarforstjóri
Hrafnista
i Reykjavík og Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðingar
Hrafnista í Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðinga vantar á næturvaktir.
Starfshlutfall samkomulag.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á kvöld og
helgarvaktir. Stöðuhlutfall samkomulag.
Upplýsingar veitir Alma Birgisdóttir í
síma 585-3000 eða 585-3101
Leikskóli er á staðnum.
Hrafnista í Reykjavík
Hjúkrunarfræðinga vantar á næturvaktir.
Starfshlutfall samkomulag.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á kvöld og
helgarvaktir. Stöðuhlutfall samkomulag.
Upplýsingar veitir Halldóra Hreinsdóttir
í síma 585-9500 eða 585-9401
Einnig er hægt að sækja um störf á heimasíðu
Hrafnistu www.hrafnista.is
tfP FRANCISKU SSPlTAU
ffj SIYKKISHÐIMI
Ágætu hjúkrunarfræðingar
Á St. Franciskusspítalann í Stykkishólmi
(sjúkrasvið) óskast hjúkrunarfræðingar
til starfa.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Unnið er á morgun- og kvöldvöktum, frí
er aðra hverja helgi.
Þá skiptast bakvaktir með
hjúkrunarfræðingum.
Við höfum áhuga á að taka á móti þeim
sem vilja koma í heimsókn og kynna
þeim verkefni sjúkrahússins og hvað
Stykkishólmur hefur upp á að bjóða.
Tilvalinn sunnudagsbíltúr, Breiðafjörðurinn
og Snæfellsnesið eru heillandi á
margan hátt.
Nánari upplýsingar veita
Margrét Thorlacius, hjúkrunarforstjóri
(netfang margret@sfs.is),
Ástríður Karlsdóttir, hjúkrunar-
deildarstjóri (netfang asta@sfs.is),
og Hrafnhildur Jónsdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri
(netfang hrafnhildur@sfs.is),
í síma 438-1128.
ST. JÓSEFSSPÍTAU SfH
HAFNARFIRÐI
Lausar stöður
Lyflækningadeíld
Hjúkrunarfræðingar
Laus er staða hjúkrunarfræðings á
lyflækningadeild spítalans sem fyrst eða eftir
nánara samkomulagi.Sveigjanlegur
vinnutími.hlutastörf eftir samkomulagi.Á
deildinni fer fram fjölbreytt og áhugaverð
starfsemi með áherslu á meltingarsjúkdóma.
í boði er áhugaverð störf sem eru í stöðugri
þróun hvað varðar framför í hjúkrun.
Hjúkrunarfræðingar í Hafnarfirði og nágrenni
þetta er mjög góður kostur fyrir ykkur.Þetta er
skemmtileg deild og svo er stutt í vinnu sem
hentar vel og er fjölskylduvænt sérstaklega
hjúkrunarfræðingum með börn.
Komdu gjarnan í heimsókn til okkar og við
segjum þér nánar frá starfseminni og
vaktafyrirkomulagi.
Einnig eru lausar eingöngu nætur- og
helgarvaktir.
Upplýsingar veita Birna
Steingrímsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri
í síma 555-0000 eða
Gunnhildur Sigurðardóttir
hjúkrunarforstjóri í síma 555-0000.
Sjúkrahúsið og heílsugæslustöðin
á Akranesi - Sjúkrasvið.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga eru
lausar til umsóknar.
• Hjúkrunarfræðinga á
handlækningadeild!
Lausar stöður hjúkrunarfræðinga frá 15.
ágúst. Deildin er 10 rúma legudeild.
Mjög fjölbreytt starfsemi fer fram á
deildinni. Spennandi vinna í gangi
varðandi skráningu hjúkrunar.
Upplýsingar um stöðurnar gefur
Guðjóna Kristjánsdóttir, deildarstjóri,
í síma 430 6111.
• Skurðhjúkrunarfræðingur!
Laus staða á skurðdeild Sjúkrahús
Akraness, frá og með 1. ágúst 2001.
Fáist ekki skurðhjúkrunarfræðingur
kemur til greina að ráða hjúkrunar-
fræðing með starfsreynslu á skurðdeild.
Á skurðdeild S.A eru framkvæmdar um
2000 aðgeðir árlega. Ný og glæsileg
skurðdeild var tekin í notkun 30.
september síðastliðinn.
Upplýsingar gefur Ólafía
Sigurðardóttir, deildarstjóri,
í síma 430 6141.
Frekari upplýsingar um stofnunina,
launakjör o.fl. gefur Steinunn
Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri,
í síma 430 6012.
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á
Akranesi (SHA) skiptist í sjúkrasvið og
heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt
fjölgreinasjúkrahús með örugga vakt-
þjónustu allan sólarhringinn árið um kring.
Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum
sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á
lyflækningadeild, handlækningadeild,
fæðinga- og kvensjúkdómadeild og á vel
búnum stoðdeildum þar sem höfuð áhersla
er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og
Suðvesturlands. Jafnframt er lögð áhersla á
þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á
heilsugæslusviði er veitt almenn heilsu-
gæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæslu-
umdæmi Akraness með forystuhlutverk
varðandi almenna heilsuvernd og
forvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun
heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla
íslands og aðrar menntastofnanir. Starfs-
menn stofnunarinnar eru um 240 talsins.
214
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 77. árg. 2001