Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2003, Blaðsíða 32
Svanhildur Þengilsdóttir, deildarstjóri heilbrigöissviðs Rauða kross íslands
PISTILL
Skyndihjálp
Sálræn skyndihjálp
Umhyggja - snerting - virk hlustun - heiðarleiki - einlægni
- návist - þolinmæði
tilfinningum og ringluð, hætta er á að glata
tímabundið dómgreind og viðkomandi getur
verið ófær um að aðhafast nokkuð. A við-
bragðsstigi skynjum við þær tilfinningar sem
atburðurinn hefur leyst úr læðingu og okkur
líður illa, hér getum við fundið fyrir ýmsum lík-
amlegum einkennum sem lýst verður nánar
síðar. Á úrvinnslustigi eru tilfinningar og hugs-
anir, sem tengjast atburðinum, ekki lengur alls
ráðandi og við getum betur áttað okkur á því
sem gerst hefur og unnið úr því. Að lokum tek-
ur við áttun og við getum horft til framtíðar á
ný. Það að ganga í gegnum þessi stig kann að
sýnast auðvelt og ferlið stutt. Svo er þó ekki og
geta liðið margir mánuðir og jafnvel ár áður en
viðkomandi lýkur ferlinu. I einstaka tilfellum
getur þetta ferli gengið illa og þá þarf að leita
sérfræðiaðstoðar.
Þó við séum ólík hvert öðru í útliti og háttum, þá eru þarfir
okkar í kjölfar alvarlegra atburða ótrúlega líkar. Við eigum
það t.d. öll sameiginlegt að þarfnast umhyggju og ástúðar
annarra, sérstaklega þegar slys eða veikindi ber að höndum.
Þegar áföll og erfiðleikar steðja að er mikilvægt að geta veitt
sínum nánustu stuðning og styrk. Slík aðstoð er ómetanleg
þeim sem hana þiggur þó hann sé ekki alltaf sáttur við slík
afskipti til að byrja með. Það er mikilvægt að þekkja þau
líkamlegu og sálrænu einkenni sem geta komið fram hjá
fólki sem verður fyrir áfalli og hvernig bregðast megi við
þeim á sem árangursríkastan hátt. Þegar einhver veitir öðr-
um sálræna skyndihjálp felur það í sér líkamlega og andlega
aðhlynningu við þá sem hafa orðið fyrir alvarlegum atburð-
um. Um er að ræða aðstoð sem nálægð, hlýja, umhyggja svo
og hæfileikinn til að hlusta felur í sér, en á þessum þáttum
öllum byggja góð mannleg samskipti.
Lífið gengur oftast sinn vanagang og það hvarflar ekki að
okkur að eitthvað geti komið fyrir sem setur lífið úr skorðum
og breytir tilverunni að meira eða minna leyti. En slíkt get-
ur gerst fyrirvarlaust. Margs konar atvik, lífsreynsla og að-
stæður eru eðlilegur þáttur í tilveru okkar. Allt slíkt þekkjum
við vel og vitum hvernig bregðast skal við því. En stöku sinn-
um verðum við fyrir einhverju sem við höfum aldrei kynnst
áður og vitum ekki hvernig bregðast á við. Þessi reynsla hef-
ur því óvænt áhrif á okkur og við finnum fyrir margvíslegum
tilfinningum og hugsunum sem við hefðum aldrei trúað að
við ættum eftir að upplifa. Sænskur geðlæknir að nafni
Cullberg lýsir ferli sem við göngum í gegnum þegar við verð-
um fyrir áfalli. Um er að ræða eftirtalin fjögur stig: áfall, við-
brögð, úrvinnslu og áttun. Eftir áfallið erum við yfirkomin af
Undir því mikla álagi, sem skapast þegar erfið-
ir atburðir dynja á fólki, lætur líkaminn vita.
Hann bregst sjálfkrafa við og einkenni á borð
við örari hjartslátt, hraðari öndun, óþægindi frá
maga, þvalar hendur, svita, órólegar hreyfingar
og óstyrka rödd gera vart við sig. Sé ástandið
Iangvarandi geta komið fram enn sterkari ein-
kenni, eins og höfuðverkur, magaverkur, niður-
gangur eða harðlífi, svefntruflanir og vöðvar
verða stífir og aumir. Talað er um langvarandi
streitu þegar viðbrögð líkamans eru farin að
leiða til vanlíðanar sem getur t.d. birst í mik-
illi þreytu og svima, því að vera sífellt illa upp^
lagður, almennu áhugaleysi, hræðslu við hið ó-
þekkta, óróleika og eirðarleysi.
Það skyldi enginn leiða skilaboð líkamans hjá
sér eða hunsa eigin tilfinningar. Fólk þarf að
reyna að gera sér grein fyrir hugsunum sínum
og tilfinningum varðandi það sem hefur átt sér
stað, ekki hika við að leita til annarra og ræða
við þá um það sem kann að þykja óþægilegt,
láta eftir sér umhyggju og athygli annarra. Sam-
töl eru mikilvægasta hjálpartækið. Sá sem hef-
ur erfiða reynslu að baki hefur mikla þörf fyrir
að tala um hana. Sá sem er að hjálpa þarf að
geta hlustað af einlægni og áhuga á það sem
sagt er.
Það þarf kjark til að vera heiðarlegur og opin-
skár, en þá skila samskipti manna líka meiru,
verða einlægari og þroskaðri. Sýnið sjálfum
30
Timarit íslenskra hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 79. árg. 2003