Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 46
Sigríður Halldórsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri.
mmmm
mat
Minning
María Anna Pétursdóttir
Fædd 26. desember 1919 - andaöist 4. september 2003
Hjúkrunarleiðtoginn María Anna Pétursdóttir er látin, 83 ára
að aldri. Hún fæddist á Isafirði 26. desember 1919 en and-
aðist á Droplaugarstöðum í Reykjavík að morgni fimmtudags-
ins 4. september síðastliðinn. Við, sem þekktum Maríu náið,
erum full trega en jafnframt þakklæti og gleði yfir að hafa
fengið að kynnast svo stórkostlegri konu. Hún dó á afmælis-
daginn minn og snart það mig sérstaklega því hún var mér afar
kær, mikil fyrirmynd og nánast eins og önnur móðir.
Dóttirin, systirin og eiginkonan María
Foreldrar Maríu voru heiðurshjónin Sigríður Elín Torfadóttir, f.
á Flateyri við Önundarfjörð 8.2. 1879, d. í Reykjavík 8.5.1964,
og Pétur Sigurðsson, erindreki, ritstjóri og skáld, f. á Hofi á
Höfðaströnd 27.1 1.1890, d. 21.2.1972. María átti foreldraláni
að fagna eins og hún lýsti fyrir mér. Hún elskaði foreldra sína
og virti og tók þau öldruð inn á heimili sitt þar sem hún hlúði
að þeim af þeirri hlýju og umhyggju sem hún átti svo mikið af.
María átti aðeins einn bróður, Esra S. Pétursson sem var kunn-
ur læknir og sálkönnuður, f. 11.9.1918 en hann lést 1.12. 2000.
Hún tók miklu ástfóstri við syni Esra og þeir reyndust henni
sem bestu synir. María giftist 9.2.1947 Finnboga Guðmunds-
syni, útgerðarmanni frá Gerðum í Garði, f. 20.8.1906. Þeim
varð ekki barna auðið en Finnbogi lést 4.10.1974. Eg hef heyrt
frá mörgum hve vel María hlúði að Finnboga og hún talaði ætíð
um hann af miklum og djúpum kærleika.
Menntakonan María
María var vel menntuð kona og hvatti aðra til mennta. Hún
varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1938 og var á lýðháskóla í Svíþjóð sumarið
1939. Hún lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunar-
kvennaskóla Islands 1943. Var hún ein af þeim
fyrstu sem fóru inn í hjúkrunarnám með stúd-
entspróf. María lét sér hjúkrunarnámið ekki
nægja en var við framhaldsnám í barnahjúkrun í
Cleveland 1943-1944 og í geðhjúkrun í
Providence 1944, í hjúkrunarkennslu í Toronto
1944-1945 sem Rockefellerstyrkþegi og í fram-
haldi af því í námi við Vanderbilt University í
Nashville í Tennessee. Hún fór í námsferð til
hjúkrunarskóla í Toronto, Hamilton og
Saskatchewan í Kanada 1974, svo aðeins það
helsta sé talið. María var ung í anda alla tíð og
fylgdist með og sótti ráðstefnur og fundi um
hjúkrun á meðan heilsan entist. Hugsuðum við
margar að við vildum gjarnan hafa svona lifandi
og brennandi áhuga á hjúkrun fram á áttræðis-
aldurinn.
Hjúkrunarleiðtoginn María
María stundaði hjúkrunarstörf á Vífilsstöðum
sumarið 1943 og á Landspítalanum 1946-47. Að
námi loknu í Bandaríkjunum og Kanada starfaði
hún að kennslu við Hjúkrunarskóla Islands 1945-
46 og um 20 ára skeið frá 1955 sem stundakenn-
ari við skólann. Þá vann hún einnig að berkla-
rannsóknum eftir að hafa sótt námskeið á vegum
44
Timarit islenskra hjúkrunarfræflinga 4. tbl. 79. árg. 2003