Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2004, Blaðsíða 27
FRÆÐIGREIN
Nýjar áherslur í fræöslu til
foreldra krabbameinssjúkra
(100%) þurftu að fara í skoðun eða eftirskoðun
vegna krabbameinsins á sérhæfða göngudeild
árið 1999.
Niðurstöður
Hvert er viðhorf mæðra og feðra til heimasíðunn-
ar á veraldarvefnum?
Til að kanna hvort munur væri á mati mæðra og
feðra á gagnsemi heimasíðunnar var beitt lýsandi
tölfræði. Þegar viðhorf foreldra eru skoðuð er
átt við hversu aðgengileg, skiljanleg, hjálpleg
og gagnleg heimasíðan var foreldrum. Auk þess
voru skoðaðir þættir er tengdust fræðsluefni
heimasíðunnar. Fram kemur að allar mæður
(100%) og 77% feðra töldu heimasíðuna í heild
vera aðgengilega eða frekar aðgengilega. Allar
mæður (100%) og 92% feðra töldu hana vera
skiljanlega eða frekar skiljanlega. Fram kemur
að mæður töldu heimasíðuna vera í 90% tilfella
hjálplega eða frekar hjálplega, en 84% feðra töldu
svo vera. Aftur á móti mátu 95% mæðra og 92%
feðra heimasíðuna gagnlega eða frekar gagnlega
(sjá töflu 3).
Tafla 3
Mat foreldra á gagnsemi heimasíðunnar
í heild
Mæður (n=21) Feður (n=13)
o/o o/o
Aðgengileg 71 69
Frekar aðgengileg 29 8
Hlutlaus 0 23
Lítið gagnleg 0 0
Óaögengileg 0 0
Skiljanleg 75 67
Frekar skiljanleg 25 25
Hlutlaus 0 0
Lítið skiljanleg 0 0
Óskiljanleg 0 8
Hjálpleg 55 59
Frekar hjálpleg 35 25
Hlutlaus 10 8
Lítið hjálpieg 0 0
Ekki hjálpleg 0 8
Gagnleg 30 34
Frekar gagnleg 65 58
Hlutlaus 5 0
Lítið gagnleg 0 0
Ekki gagnleg 0 8
Hvað varðar gagnsemi fræðsluefnis á heimasíðunni var spurt
um hvern efnisþátt eða kafla heimasíðunnar fyrir sig. Fram
kom að 92% mæðra og feðra töldu fræðsluefnið um krabb-
amein hjá börnum vera gagnlegt og frekar gagnlegt, en 76%
mæðra og 75% feðra töldu svo vera þegar spurt var um
fræðsluefnið er tengdist fjölskyldunni. Aftur á móti kemur
fram að 95% mæðra og 82% feðra töldu fræðsluefnið um
krabbameinsmeðferðina vera gagnlegt og frekar gagnlegt.
Fram kom að 68% mæðra og 75% feðra töldu fræðsluefn-
ið „að Iifa með krabbameini" gagnlegt og frekar gagnlegt.
Einnig kom fram munur hjá foreldrum þegar spurt var hvort
kaflinn um „stuðning" hafi verið hjálplegur og frekar hjálp-
legur eða ekki, en 76% mæðra og 84% feðra töldu svo vera.
Upplýsingar um meðferðaraðila og meðferðarstaði voru áhug-
averðar eða frekar áhugaverðar í 77% tilfella hjá mæðrum en
í 50% tilfella hjá feðrum. Fram kemur að allir feður (100%)
telja að Iiðurinn „spurningar og svör“ hafi verið einfaldur í
notkun en 88% mæðra töldu svo vera (sjá töflu 4).
Tafla 4
Mat foreldra á fræðsluefni heimasíðunnar
Mæður (n=2l) Feður (n=13)
o/o o/o
Fræðsluefni um „krabbamein hjá börnum" var
Gagnlegt 56 46
Frekar gagnlegt 35 46
Hlutlaus 9 0
Lítið gagnlegt 0 8
Ekki gagnlegt 0 0
Fræðsluefni er tengist „fjölskyldunni" var
Gagnlegt 33 17
Frekar gagnlegt 43 58
Hlutlaus 24 17
Lítið gagnlegt 0 8
Ekki gagnlegt 0 0
Fræðsluefni um „krabbameinsmeðferð" var
Gagnlegt 57 46
Frekar gagnlegt 38 36
Hlutlaus 5 9
Lítið gagnlegt 0 9
Ekki gagnlegt 0 0
Fræðsluefnið er tengist því „að lifa með krabbameini" var
Gagnlegt 36 50
Frekar gagnlegt 32 25
Hlutlaus 32 17
Lítið gagnlegt 0 8
Ekki gagnlegt 0 0
Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 80. árg. 2004
25