Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2004, Page 43
VIÐTAL
Foreldrahlutverkiö árangurs-
ríkasta gjöfin...
sem þekkingarskortur sé oft átakanlegur og þau
hafi oft „frumstæðar" hugmyndir um börn, þarfir
þeirra og velferð. „En það er ekki við neinn að
sakast því við höfum ekki haft fræðslu og mennt-
un fyrir fólk. Samfélagið hefur verið svo upptekið
af því að lifa af og eiga fyrir mat á borðið handa
okkur öllum. En nú eru breyttir tímar, allt til af
öllu og kann ;'d er vandamálið núna að við erum
öll ofdekruð, fáum aldrei nóg og viljum stöðugt
meira af veraldlegum gæðum, höldum að ham-
ingjan hljóti að koma með því að eignast meira.“
Vegna þessa segir hann að hann hafi ákveðið
að snúa sér að því að hjálpa foreldrum til að
aukauppeldishæfni sína og vinna að þvf að fólk
skipuleggi og undirbúi barneignir. „Við gerum
það með útgáfu á fræðsluefni, námskeiðum og
ráðgjöf. Uppeldisnámskeiðin „Að alast upp aftur“
eru fyrir núverandi og verðandiuppalendur og
fagfólk sem vinnur með börnum og foreldrum.
Bjarni segir eina af grunnhugmyndunum að starfs-
semi OB- ráðgjafar vera þá að hið ófædda barn eigi
rétt á að fæðast inn í heilbrigða fjölskyldu.
Til að svo megi verða þarf fólk að skipuleggja
barneignir, mennta sig og fræðast um börn og|
þarfir þeirra og auka þannig uppeldishæfni sína og skilning
á börnum. Samfélagið þarf líka að axla ábyrgð og hafa á boð-
stólum vandaða og faglega fræðslu fyrir uppalendur og foreldra
framtíðarinnar. Þannig að einn daginn þyki það sjálfsagt að
læra og mennta sig um börn og það eigi ekki að bjóða börn-
um upp á hvaða uppeldisaðstæður sem er. Að því segir hann
ÓB- ráðgjöf vinna með uppeldisnámskeiðum og ráðgjöf fyrir
verðandi og núverandi foreldra.
„Að mínu mati felst hamingjaforeldra fyrst og fremst í því að
rækta uppeldishæfni sína og gefa börnum sínum meira í dag
en í gær af kærleiksríkari ást og uppeldisaðferðum sem byggja
upp jákvæða sjálfsmynd barnsins," segir Bjarni. „Velferð barns-
ins og hamingja verða „laun“ og hamingja foreldranna - og
samfélagsins alls.“
„Verðandi foreldrum bjóðum við að leigja „raunveruleika-
barnið" eða tölvubrúðuna heim, svo þeir geti æft sig vel áður
og verið vel búnir undir álagið sem fylgir því að eiga og ann-
ast ungbarn. Það gleymist oft að álagið á unga fjölskyldu að
eignast barn getur „eyðilagt" sterk sambönd og örugglega veik
sambönd. Það er gott að komast að því áðurhvort hið unga
samband telji sig, eftir reynsluna af raunveruleikabarninu,
standast álagið og taka ákvarðanir út frá því.“
Þeir félagar eru spurðir að því hvernig þeir hafi kynnst dr. Jean
Clarke, fyrirlesara á foreldranámskeiðinu, og Stephanie leið-
beinanda í vinnusmiðjunni „Hugsað um barn“.
„Þegar við Bjarni vorum í náminu í Bretlandi,“ segir Ólafur,
„heilluðumst við af næmi og þekkingu dr. Jean Illsley Clarke
á börnum og fjölskyldum. Þegar ég kom heim árið 2001 höfð-
um við samband við hana og áður en tvö ár voru liðin var hún
hér. Við Bjarni stofnuðu ÓB- ráðgjöf árið 2002 og fyrsta verk-
efnið okkar var að þýða fræðsluefni eftir dr. Clarke á íslensku
og standa fyrir ráðstefnu um uppeldishæfni á Hótel Sögu
þar sem efnið var kynnt fagaðilum. Við kynntumst Stefaníu
Arnardóttur hjúkrunarfræðingi á ráðstefnunni um uppeldis-
hæfni og hefur hún verið ómetanlegur liðsauki við ÓB- ráðgjöf
síðan, t.d. hefðum við ekki komist svona langt með verkefnið
„Hugsað um barn“ á svona skömmum tíma án hennar."
Ólafur segir að þátttakendur hafi verið mjög ánægðir með
fræðsluefnið en á ráðstefnunni var dr. Clarke, höfundur efn-
isins, aðalfyrirlesari. „I kjölfar ráðstefnunnar var ákveðið að
bjóða upp á nám í samstarfi við J.I. Consultants í Minnesota
þarsem fræðimaðurinn kenndi fagstéttum hvernig nota ætti
fræðsluefnið við kennslu á sex vikna uppeldisnámskeiðum
fyrir foreldra og aðra uppalendur. Á árunum 2003 og 2004
tóku 48 fagaðilar af öllu landinu þátt í þessu námi en mennt-
amálanefnd Alþingis styður verkefnið.“
Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 80. árg. 2004