Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2004, Side 54
Ritstjórnarstefna og starfsáætlun ritnefndar
Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefiö út fimm sinnum á ári.
Tímaritiö er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og
í því er reynt að endurspegla ólíkar skoðanir og viðhorf til hjúkrunar. Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess
finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju.
Tímaritið ervettvangurfræðilegrar og félagslegrar umfjöllunar um hjúkr-
un. í faglega hluta tímaritsins eru birtar margvíslegar greinar sem fjalla
um öll svið hjúkrunar. Greinar flokkast i tvennt, annars vegar fræðigrein-
ar og hins vegar fræðslugreinar. Fræðigreinar eru rannsóknagreinar,
yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar
í hjúkrun, hvort heldur sem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkr-
unarkennslu, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkrunar- og heil-
brigðisþjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra rannsókn-
araðferða, fjölbreytileika í fræðilegri nálgun viðfangsefna og vönduð
vinnubrögð. Flægt er að óska eftir að fræðigreinar verði ritrýndar.
Við umfjöllun greina, sem óskaö hefur veriö eftir aö verði ritrýndar,
fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins eftir
Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson og gefið var út af Sálfræð-
ingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar
leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit aö fræöilegum tímarits-
greinum. í handbókinni er einnig að finna upplýsingar um vinnulag við
umfjöllun á handriti sem óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt og fylgir
ritnefnd þeim leiðbeiningum. Höfundar þurfa að fylgja þessum reglum
í hvívetna en eru hvattir til að ráðfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að
víkja frá settum reglum.
í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiöbeiningum Handbókar sálfræði-
ritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki sérprentaðar tímaritsgreinar sínar
en fá aukaeintök af viöeigandi timariti. Til að auðvelda flokkun efnis
skulu fylgja með greinum þrjú lykilorð. í handbókinni er megináhersla
á megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir. Tímarit hjúkrunarfræðinga
bindur sig hins vegar ekki viö megindlegar rannsóknir og er fengur að
greinum þar sem margvíslegri aðferðafræði er beitt.
á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur.
Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess
öðru en aðsendum greinum. Höfundar aösendra greina
bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast,
þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags islenskra hjúkrun-:
arfræðinga.
Leiöbeiningar til höfunda tímaritsgreina
Tímaritsgreinar eru sendartil Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, Suðurlandsbraut 22,108 Reykjavík. Ef höfund-
ar eru tveir eða fleiri þarf einn þeirra að vera ábyrgur
fyrir samskiptum við tímaritið og nafn hans þarf að
koma fram í bréfi sem sent er með handritinu.
Frágangur handrits
Við ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók
sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K.
Björnsson sem gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands
í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leið-
beiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum
tímaritsgreinum.
Á forsíöu handritsins þarf aö koma fram heiti tímarits-
greinarinnar; nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustað-
ur/vinnustaðir höfunda(r); heimilisfang og símanúmer
þess höfundar sem er ábyrgur fyrir samskiptum við
tímaritið. Útdráttur, sem er á annarri blaðsíðu, á að vera
100-150 orð.
Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000-5000 orð. Hand-
ritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv.
skal vera með tvöföldu línubili. Öll handrit skulu send
inn í þremur eintökum sem ekki eru með nafni höfund-
a(r). Handrit skulu ekki hafa birst annars staðar þegar
óskað er eftir því að þau séu ritrýnd.
Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg viöfangsefni hjúkrunar
og byggjast að einhverju leyti á fræöilegum heimildum ásamt athugun-
um eða reynslu höfunda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efnis-
tökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar. í
blaðinu er einnig að finna viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar
upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga.
í félagslega hluta timaritsins eða fréttahlutanum ergreintfrá kjaramál-
um og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig aö finna fréttir frá
svæðanefndum félagsins. Einnig er greint frá þvi helsta sem er á döfinni
hjá fagdeildum félagsins.
Útgáfuferli
Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann
höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og
honum tilkynnt skriflega að greinin hafi borist. Þegar
óskaö er eftir birtingu greinar lesa fulltrúar í ritnefnd
handritiö og ákveða hvort það verður sent til umsagnar.
Stuðst er við þau viðmið sem fram koma í Handbók sál-
fræðiritsins viö mat á tímaritsgreinum.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tímaritsins sé í samræmi
við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í að
tímaritið sé vandað að því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð
Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 80. árg. 2004