Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2005, Blaðsíða 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2005, Blaðsíða 52
50 Ritstjórnarstefna og starfsáætlun ritnefndar Tímarit hjúkrunarfræöinga er gefiö út fimm sinnum á ári. Tímaritiö er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og í því er reynt aö endurspegla ólíkar skoðanir og viöhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunarfræöinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju. Tímaritið er vettvangur fræöilegrar og félagslegrar umfjöllunar um hjúkr- un. í faglega hluta tímaritsins eru birtar margvíslegar greinar sem fjalla um öll sviö hjúkrunar. Greinar flokkast í tvennt, annars vegar fræðigrein- ar og hins vegar fræöslugreinar. Fræöigreinar eru rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun, hvort heldursem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkr- unarkennslu, hjúkrunarrannsóknir eöa stefnumótun í hjúkrunar- og heil- brigöisþjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra rannsókn- araðferða, fjölbreytileika í fræöilegri nálgun viðfangsefna og vönduö vinnubrögö. Hægt er aö óska eftir aö fræðigreinar veröi ritrýndar. Við umfjöllun greina, sem óskaö hefur veriö eftir að veröi ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson og gefið var út af Sálfræö- ingafélagi íslands í Reykjavík áriö 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímarits- greinum. í handbókinni er einnig að finna upplýsingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim leiðbeiningum. Höfundar þurfa að fylgja þessum reglum í hvívetna en eru hvattir til að ráðfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að víkja frá settum reglum. í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiðbeiningum Handbókar sálfræöi- ritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki sérprentaðar tímaritsgreinar sínar en fá aukaeintök af viðeigandi tímariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu fylgja með greinum þrjú lykilorð. í handbókinni er megináhersla á megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir. Tímarit hjúkrunarfræðinga bindur sig hins vegar ekki viö megindlegar rannsóknir og er fengur að greinum þarsem margvíslegri aðferðafræði er beitt. Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg viðfangsefni hjúkrunar og byggjast að einhverju leyti á fræöilegum heimildum ásamt athugun- um eða reynslu höfunda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efnis- tökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar. í blaðinu er einnig að finna viötöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. Ritstjóri ber ábyrgð á aö efni, útgáfa og rekstur tíma- ritsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandaö að því er varöar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur. Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aösendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga. Leiðbeiningar til höfunda tímaritsgreina Tímaritsgreinar eru sendartil Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, Suöurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Ef höfund- ar eru tveir eöa fleiri þarf einn þeirra að vera ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið og nafn hans þarf að koma fram í bréfi sem sent er með handritinu. Frágangur handrits Við ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók sálfræöiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson sem gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leið- beiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum. Á forsíðu handritsins þarf að koma fram heiti tímarits- greinarinnar; nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustaö- ur/vinnustaðir höfunda(r); heimilisfang og símanúmer þess höfundar sem er ábyrgur fyrir samskiptum viö tímaritið. Útdráttur, sem er á annarri blaðsíðu, á aö vera 100-150 orð. Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000-5000 orö. Hand- ritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv. skal vera með tvöföldu línubili. Öll handrit skulu send inn í þremur eintökum sem ekki eru með nafni höfund- a(r). Handrit skulu ekki hafa birst annars staðar þegar óskað er eftir því að þau séu ritrýnd. Útgáfuferli Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum viö ritstjóra og honum tilkynnt skriflega að greinin hafi borist. Þegar óskað er eftir birtingu greinar lesa fulltrúar í ritnefnd handritið og ákveða hvort það verður sent til umsagnar. Stuðst er við þau viömið sem fram koma í Handbók sál- fræðiritsins við mat á tímaritsgreinum. í félagslega hluta tímaritsins eða fréttahlutanum ergreintfrá kjaramál- um og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig að finna fréttir frá svæöanefndum félagsins. Einnig er greint frá því helsta sem er á döfinni hjá fagdeildum félagsins. Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 81. árg. 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.