Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2005, Blaðsíða 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2005, Blaðsíða 53
Vísindasjóður FRA FELAGINU Vísindasjóöur Hjúkrunarfræöingar, sem eru i námi, geta sótt um styrk til að vinna rannsóknarverkefni til M.S. eöa doktorsgráöu, séu þeir sjóösfélagar. Lokaverkefni hjúkrunarnema í B.S. námi eru ekki styrkhæf. Leiðbeiningar: I umsókn skal koma fram: Vinnuveitendur greiða sem nemur 1,5°/o af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð. Hrein eign sjóðsins um áramót er til úthlutunar hverju sinni. Sjóðurinn er í vörslu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og skiptist í A- og B-hluta. A-hluti í A-hluta koma 90% af tekjum sjóösins. Sjóðnum er ætlað að greiöa endur- og símenntun hjúkrunarfræö- inga. Ekki þarf aö sækja um úthlutun úr A-hluta vísinda- sjóös. Félagiö sér um aö greiöa úr A-hluta sjóösins til félagsmanna sem teljast sjóösfélagar fyrsta ársfjóröung ár hvert. Upphæðin er lögö inn á bankareikning félags- manna sem félagiö hefurstofnaö fyrir sjóöfélaga (mikil- vægt er að sjóðfélagar loki ekki reikningunum þegar þeir taka út af þeim til aö ekki þurfi aö stofna nýja reikninga árlega). Sjóösfélagi telst sá aðili vera sem var starfandi samkvæmt kjarasamningi félagsins fyrir 1. september árið fyrir úthlutun. Félagsmenn, sem hafa verið í fullu starfi tímabilið 1. janúar til 30. nóvember árið fyrir úthlutun, eiga rétt á fullri úthlutun. Félagsmenn, sem hafa unnið hlutastarf, eiga rétt á úthlutun í samræmi við vinnuframlag. Ekki er úthlutað til félagsmanna sem hófu störf eftir 1. september áriö fyrir úthlutun. B-hluti í B-hluta koma 10% af tekjum sjóösins og skal þeim varið til aö stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkr- un meö því aö styrkja rannsóknir og þróunarverkefni hjúkrunarfræöinga. Hjúkrunarfræöingar þurfa aö sækja sérstaklega um styrk úr B-hlutanum. Auglýst er eftir umsóknum og er umsóknarfrestur til 15. apríl ár hvert. Umsækjendur veröa aö vera sjóðsfélagar (sjá skilgrein- ingu í texta um A-hluta). Heiti verkefnisins. Aöalumsækjandi, s.s. nafn, kt., heimilisfang, síma, netfang, vinnu- stað og stööu. Meðrannsakendur ef einhverjir eru, s.s. nafn, kt., stööu og hlutverk í verkefni ef sértækt. Tegund verkefnis. Hvort þetta er nemaverkefni eöa rannsóknar- eöa þróunarverkefni? Ef þetta er nemaverkefni þarf aö tilgreina til hvaöa gráöu, einingar verkefnis og skóla. Stutt lýsing á verkefni. Lýsing á stööu þekkingar á sviöi verkefnisins og gildi verkefnisins fyrir hjúkrun. Samantekt framkvæmdaáætlunar. Tilgreiniö tímaáætlun samhliöa. Kostnaðaráætlun. Tilgreinið helstu kostnaðarliði. Upphæð sem sótt er um. Hvaöa styrki aöra sótt er um eða verkefnið hefur hlotið. Fylgigögn, s.s. starfsferilsskrá, mælitæki, Ijósrit af leyfi ef viö á og fleira sem umsækjandi telur skipta máli. Viö mat á umsóknum fyrir B-hluta vísindasjóös er tekiö miö af: • markmiði höfunda meö verkefninu • mikilvægi verkefnisins • hvort verkefniö leiðir til nýrrar þekkingar eöa þróunar • reynslu og faglegri þekkingu umsækjenda • framkvæmda- og kostnaðaráætlun. Styrkur úr B-hiuta vísindasjóös er greiddur út í tveimur áföngum. Um miðjan maí er greiddur út helmingur og þegar styrkþegi hefur lokið verkefninu, eöa þeim hluta sem styrkurinn nær til, þarf hann að hafa samband viö hjúkrunarfræðing F.í.h. sem sér um aö eftirstöðvar styrks- ins veröi greiddar. Æskilegt er að verkefnum Ijúki meö birtingu greinar í Tímariti Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga. Sé ekki úthlutað aö fullu úr B-hluta leggst afgangurinn við sjóöinn næsta ár á eftir. Veröi ekkert úr verkefni eöa því ekki lokiö af einhverjum ástæöum skal styrkþegi gera stjórn sjóösins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður til verkefnisins. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta vísindasjóös Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Umsóknum skal skila á skrifstofu félagsins aö Suöurlandsbraut 22 i þremur eintökum samkvæmt leiöbeining- um í tímaritinu eöa á vefnum hjúkrun.is undir liönum „sjóöir" „Vísindasjóður". Þar kemur fram hvaöa upplýsingar eru nauðsynlegar og hvaða fylgiskjölum þarf að skila. Athugið að umsækjendur verða að vera sjóðsfélagar og hvert verkefni hefur aðeins einn aðalumsækjenda nema hlutar þess séu aðskildir. Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 81. árg. 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.