Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2005, Blaðsíða 20

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2005, Blaðsíða 20
Fjölskyldan í brennidepli Ójöfnuður í heilsufari á íslandi Útdráttur ________ Inngangur: Erlendar rannsóknir hafa ítrekað sýnt aö þeir sem minnst mega sín, þ.e. hafa lág laun, stutta skóla- göngu að baki og gegna ófaglærðum störfum eða eru atvinnulausir, búa við meira heilsuleysi og lifa skemur en aörir. Ojöfnuður í heilsufari þjóðfélagshópa kemur skýrar fram hjá körlum en konum. Umræður um ójafnræði í heilsufari hafa farið lágt hérlendis enda sé hér þjóðfélag þar sem jöfnuður ríki. Tilgangur: Tilgangurinn meö þessari könnun var að athuga hvort ójafnræðis gæti í heilsufari hérlendis. Efniviður og aðferðir: Með þetta markmið í huga voru skoðaðar niðurstöður íslenskra rannsókna á íslensku þjóðfélagi og heilsufari ólíkra hópa. Niðurstöður: Niöurstöðurnar benda með ótvíræðum hætti til að ójafnræðis gæti í heilsufari hérlendis. Þeir sem eru verst settir félagslega og fjárhagslega, hafa stutta skólagöngu að baki og sinna ófaglærðum láglauna- störfum búa við verst heilsufar. Þetta kemur skýrar fram hjá körlum en konum. Alyktanir: Vafi leikur á því hvort jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu sé lykilatriði til að leysa vandann. Forvarnir og fræðsla þurfa að haldast í hendur við efnahagslegan jöfnuð. Hjúkrunarfræðingar geta gegnt lykil- hlutverki í því að stuðla aö góðri lýðheilsu. Þekking á þjóðfélaginu er undirstaðan þegar fjallaö er um áherslur til heilsueflingar og heilbrigðisáætlun gerö fyrir framtíðina. Lykilorð: Ójafnrœði, heilsufar, menntun, starf, efnahagur, þjóðfélagshópar Abstract Introduction: Studies have repeatedly shown that those in the lowest social strata, i.e. are low paid, less edu- cated, unskilled or unemployed, are less healthy and live shorter lives than others. The relationship between socioeconomic measures and health is weaker for women than for men. Inequality in health has not been highlighted in leeland as the lcelandic society is said to be an egalitarian one. Aim: The aim of this study was to explore if inequality in health exists in lceland. Material and methods: For this purpose the results of lcelandic studies on the lcelandic society and on the health of different groups in lceland were reviewed. Results: The results clearly indicate that inequality in health exists in lceland. Those who are socioeconomically disadvantaged; low paid, less educated, and unskilled, are less healthy and live shorter lives than others. This relationship is stronger for men than for women. Conclusions: Equal accessibility to health services may not be sufficient to solve the problem. Preventive meas- ures and education must be intertwined in an economically egalitarian society. Nurses can play a key-role in public health. Knowledge of the society is a prerequisite when health promotion and public health planning is on the agenda. Keywords: Inequality, health, education, occupation, socioeconomic groups Höfundur og ábyrgðarmaöur: Hólmfríður K. Gunnarsdóttir (hkg@ver.is) Rannsóknastofa í vinnuvernd/rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins Timarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 81. árg. 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.