Norðurslóð


Norðurslóð - 16.12.1980, Side 1

Norðurslóð - 16.12.1980, Side 1
4. árgangur. Þriðjudaginn 16. desember 1980 10. tölublað Svarfdælsk byggð & bær Svarfdælingar, námsmenn og aðrir, staddir á Akureyri árið 1907, Aftast: Guðrún Júlíusdóttir, Soffía Jónsdóttir, Snorri Sigfússon, Ingibjörg Antonsdóttir, Elín Sigurhjartardóttir, Kristján Þorgilsson, Sigrún Sigurhjartardóttir, Sigurður P. Jónsson, Jóna Jónsdóttir, Gunnlaugur Hallgrímsson og Þór- laug Þorfínnsdóttir. Miðröð: Ólöf Kr. Eldjárn, Ingibjörg Eldjárn. Þórunn Sigurðardóttir og Þorláksína Valde- marsdóttir. Fremst: Jónína Friðfínnsdóttir, Arngrímur Ólafsson og : Matthildur Björnsdóttir. ■ ll^ * V ^ já Æ Lky _ j- ■ „ 5 Ijj r . i 'lp W |- jpj W ^BB Í . iÉK : Bry H -iy W: J Jólaklukkur Jólaklukkur kalla hvellum hreim. Hljómar þessir gjalla um allan heim. Ómar þessir berast yfir stœrstu höf upp til jökulfrera, niður í dýpstu gröf. Jólaklukkur kalla: Komið þér. Komið geta ei allir því er ver. Marga, marga trylla myrkra tröll. margir fara villir um eyðifjöll. Jólaklukkur kalla, kalla enn, koma biðja alla, alla menn boða jólafriðinn um flóð og láð: Friður sé með yður og drottins náð. Jólaklukkur kalla klökkum hreim. Kallið gleður alla, sem rata heim, gremur þá, er trylla hin grimmu tröll, grœtir þá, er villast um eyðifjöll. Örn Arnarson. Norðurslóð sendir vinum öllum og vandamönnum bestu jóla- og nýársóskir. Kœrar þakkir fyrir ágœt samskipti á árinu 1980. Messur um jólin Aðfangadagskvöld kl. 6.00. Aftans öngur í Dalvíkur kirkju. Jóladagur kl. 2.00. Messa í Ólafsfjarðarkirkju. Annar í jólum kl. 13.30. Messa í Vallakirkju. Annar í jólum kl. 16,30. Messa í Tjarnarkirkju. Nýársdagur kl. 13.30. Messa í Urðakirkju. Nýársdagur kl. 16.30. Messa í Dalvíkurkirkju. Jólatrésskemmtun barnanna í Svarfaðardal verður í Þinghúsinu á Grund laugardaginn 27. des. og hefst kl. 2 e.h. Afgreiðslutími verslana KEA um jól og nýár Opið verður á Þorláksmessu frá kl. 9.00 til 23.00 og á aðfangadag frá kl. 9.00 til 12.00. Söluop verða lokuð á aðfangadag, jóladag, annan i jólum, gamlársdag og nýársdag, en laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. des. verður opið frá kl. 10.00 til 14.00. Kjörbúðin verður lokuð á gamlársdag. Sparisjóðurinn um jól og nýár Afgreiðslutími verður með venjulegum hætti alla virka daga nema: Á aðfangadag til kl. 12 á hádegi og á Gamlársdag til k). 12 á hádegi. Vegna myntbreytingar mun afgreiðslan verða opin 2. janúar og verður þa ð auglýst nánar á staðnum.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.