Norðurslóð - 16.12.1980, Qupperneq 17
Gjöf tíl Húsabakkaskóla
Nýlega var Húsabakkaskóla af-
hent dánargjöf úr búi Aðal-
heiðar Antonsdóttur, sem var
kona Lórenz Halldórssonar á
Akureyri, en Aðalheiður dó
fyrir skömmu.
Gjöfin er 6 stórar innramm-
aðar myndir, þ.e. myndir, sem
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, rit-
höfundur og teiknari í Ameríku
hefur gert. Myndir þessar eru
allþekktar og voru áður fyrr
víða hangandi á veggjum, þó nú
séu þær orðnar sjaldgæfari.
Þetta eru myndir af Jóni
Sigurðssyni, Matthíasi Jochum
syni, Vilhjálmi Stefánssyni og
Hannesi Hafstein og Tómasi
Johnson, fyrstu íslensku ráð-
herrunum austan hafs og vest-
an. Ennfremur mynd af gamla
Gullfossi, fyrsta skipi Eimskipa-
félags íslands. Að auki eru
stækkaðar ljósmyndir af Þor-
steini sjálfum og Guðlaugu
systur hans.
Ástæðan fyrir gjöfinni hingað
er sú, að Aðalheiður heitin var
dóttir Guðlaugar, en hún var
hálfsystir Þorsteins Þ. Þor-
steinssonar, þvi bæði voru
(óskilgetin) börn AldísarEiríks-
dóttur frá Uppsölum. Nú vissi
Aðalheiður, að Þorsteinn móð-
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson. Ljósm.
af mvndinni J.H.
urbróðir hennar hafði ánafnað
bókasafni Svarfaðardalshrepps
bæ ði bækur og handrit og því
fannst henni tilvalið, að þessar
stóru myndir færu einnig út í
Svarfaðardal.
En hver var þá Þorsteinn Þ.
Þorsteinsson?
Hann fæddist í Uppsölum 11.
nóv. 1879. Foreldrarnir voru
Aldís dóttir Eiríks bónda þar
Pálssonar og Þorsteinn Þor-
steinsson bóndi og smiður frá
Upsum.
Kornungum var honum kom-
ið í fóstur til hjónanna á Syðra-
Hvarfi, Dagbjartar Gunnlaugs-
dóttur og Jóns Kristjánsson-
ar, foreldra Gísla á Hofi, og ólu
þau hínn upp sem sinn eigin
son. Þorsteinn, Steini á Hvarfi,
varð bráðþroska, framgjarn
ungur maður og áhugasamur
um framfara- og menningar-
mál sveitar sinnar. T.d. gaf hann
Samuinnuiðnaðurinn - Fjöldahreyfing um framfaramál
Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsœldar á nýju ári.
Þökkum samstarfið á árinu, sem er að líða.
IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS
Akureyri Glerárgötu 28 - Pósthólf 606 - Sími: (96) 21900
út, ásamt með tveimur öðrum
ungum mönnum í Skíðadal,
sveitarblaðið Skíða á árunum
rétt fyriraldamótin. Blaðið kom
út í nokkur ár sem litlar,
handskrifaðar stílabækur með
fjölbreytt efni. Þorsteinn hefur
geymt þessar bækur í fórum
sínum og heim komu þær aftur
frá Ameríku ásamt ýmsu öðru
skrifuðu efni og. eru geymdar í
bókasafninu á Húsabakka.
Verður það efni allt bráðlega
afhent héraðsskjalasafninu á
Dalvík, sem skylt er.
Þorsteinn fór til náms í Hóla-
skóla og lauk þaðan prófi árið
1900, einn fyrstur allra Svarf-
dæla. Strax ári eftir fluttist hann
til Kanada, þar sem hann ól
aldur sinn að mestu upp frá því.
Þó kom hann heim, ásamt
konu sinni, Goðmundu Haralds
dóttur, árið 1920 til þess ekki
síst, að éigin sögn, að sjá aftur
fóstru sína Dagbjörtu á lífi. Hún
dó árið 1924. Aftur kom hann
heim 1933 og ætlaði víst að
setjast hér að í það skiptið.
Dvölin varð 5 ár, en þá hvarf
hann aftur vestur um haf og
kom ekki aftur til ættlands síns.
Hann dó í Winnipeg á Þorláks-
dag 1955.
Þ.Þ.Þ. er fyrst og fremst
minnst vegna ritstarfa hans, sem
bæði voru á sviði sögu og ætt-
fræða, en auk þess fékkst hann
við ljóðagerð allt frá æskudög-
um í Skíðadalnum og til ævi-
loka. Þekktast verka hans mun
vera Saga íslendinga í Vestur-
heimi, sem greinir frá íslenska
landnáminu í Ameríku og upp-
runa landnemanna.
Teiknari var Þorsteinn ágæt-
ur og sést það vel á umgjörð-
um þeim, sem hann hefur
teiknað um mannamyndir þær,
sem urðu tilefni þessa greinar-
korns.
(Við þessa samantekt var
stuðst við grein Björns R.
Árnasonar í Sterkum Stofnum.)
H.E.Þ.
Fyrsta kennslustund í nýja húsinu.
Ljósm. J.B.
Nýtt skólahúsnœði
Mánudaginn 15. des. var byrjað
að kenna í nýja skólanum sem
nú er í byggingu. Teknar voru i
notkun 2 kennslustofur og er
gangur á milli þeirra notaður
sem þriðja stofan. Fluttust við
þetta 6 bekkjardeildir í hús-
næðið, 3 bekkir fyrir hádegi og 3
eftir. Við þessa húsnæðisviðbót
rætist að nokkru úr þeim
húsnæðisvanda sem skólinn hef-
ur átt við að stríða og mun nú
falla niður akstur nemenda fram
á Húsabakkaskóla en 2 bekkjar-
deildum var ekið þangað. Þá
mun ekki þurfa að leigja Skáta-
heimilið fyrir kennslu lengur.
Hinar nýju kennslustofur eru
ekki að fullu frágengnar, eftir á
að ganga frá loftum, endanlegu
gólfefni og innréttingum í stof-
ur. Vonast er til að ríflegt
fjármagn verði á fjárlögum til
skólabyggingarinnar á næsta ári
svo halda megi áfram með
bygginguna og taka eitthvað af
þeim stofum, sem nú eru að
komast undir þak, í notkun
næsta haust.
Gáta eftir
Hans
Baldvinsson
Fjör og krafta færandi
fögur saftin bleika.
Lúahaftið leysandi,
lífgar aftur veika.
Hver er hún?
I
NORÐURSLÓÐ - 17