Norðurslóð


Norðurslóð - 16.12.1980, Side 19

Norðurslóð - 16.12.1980, Side 19
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 83.6 Lítið lífsins bros Framhald af baksíðu. fátækt og átti ekki einu sinni blýant til að draga til stafs fyrr en í skólann kom. Svo fór ég strax að vinna, því að pabbi var sjúklingur og það var ekki um annað að ræða fyrir mig. Ein- hver varð að vinna fyrir heimil- inu. Það var því ekki um mikla örvun að ræða. Ég var lengi til sjós og var þá svolítið að dútla við að teikna í frístndum sem gáfust.“ - Hugsar þú aldrei með beiskju til þessara ára og þess hlutskiptis að geta ekki aflað þér menntunar? - Brimar hlær duggunarlítið og veltir tveimur málningarpensl- um milli handa sér: „Nei, nei. Það geri ég ekki, það hefur engan tilgang. Ég er ánægður með lífið, sáttur við allt og alla. Ég hef fundið sjálfan mig og það er nú einu sinni það sem gildir. Maður er alltaf óafvitandi að leita að sjálfum sér, skapara sínum og hamingjunni. Þetta fínnur maður á endanum með því að vera nógu jákvæður og ganga heill og óskiptur til verks. Ég lít líka svo á að lífsreynsla mín, brauðstritið - það að hafa ætíð þurft að vinna hörðum höndum - hafi haft bætandi áhrif á mig og myndir mínar. Auðvitað dreymir mig um að helga mig eingöngu listinni, en það er líka hættulegt að ein- angra sig. I starfi mínu sem húsamálari umgengst ég fólk og tek þátt í hinu daglega amstri í umhverfi mínu. Það er nauð- synlegt." - Hvernig líður listmálaranum þegar hann hefur fyrir framan sig heilan vegg sem húsamálarinn verður að mála einlitan með rúllu? - „Jú, það er oft gremjulegt." - Nú hlær Brimar hrossahlátri,- „En maður er alltaf að hugsa um eitthvað annað, næstu mynd. Ég lít kannske út um gluggann þar sem ég er í vinnu og þá fæðist hugmynd. Eitthvert lífsmark í umhverfinu eða bara himninum setur allt af stað og maður brýtur heilann um hvort ekki sé hægt að færa þetta út í mynd. Þessi heilabrot og gælur við næstu myndir hjálpa manni að þreyja þorrann og góuna í daglaunavinnunni. Ég er aldrei eingöngu að hugsa um vegginn sem ég er að mála, nei, nei.“ Sáttur við menn og skepnur. „Maður má ekki standa utan við, það er nauðsynlegt að hrærast með og lifa listina - lífsins list. Ég elska lífið og tilveruna í kringum mig. Að vera sáttur við menn og skepnur er það sem færir manni frið. Og að geta brosað. Þú hefur kannski tekið eftir nafninu sem ég valdi þessari fyrstu eiginlegu einkasýningu minni: Lítið lífsins bros? Hversu margir hafa ekki brotið heilann um bros Mónu Lísu gegnum tíðina? Já, það er ekki lítils virði að geta brosað. Og að muna eftir skapara sínum svo að ekki fari fyrir manni eins og Adam og Evu þegar þau héldu að þau væru ein í Paradís." Listamaðurinn hlær konung- lega og að því búnu kveðjumst við. Norðurslóð þakkar Brimari fyrir ánægjustund. í anda hans er ekki úr vegi að rifja upp máltæki eitt, enskt að uppruna, sem útleggja má svo: Brostu - og veröldin brosir með þér. Brynja. OLDIN SEXTÁNDA MINNISVERÐ TÍÐINDI 1501-1550 Öldin sexíánda ' Minniswn'i tiOindi I50W550 ................:------ Hér kemur nýtt bindi, hiö tíunda í röðinni, af hinum geysivinsæla bókaflokki, „Öldunum", minnisverð . tíðindi 1501 —1550, tekin saman af Jóni Helgasyni. — Hér greinir á lifandi og aðgengilegan hátt frá miklum umbrota- og átakatima í sögu þjóðarinnar, siðskiptaöldinni. Fjölmargar myndir eru í bókinni, ýmsar fáséðar. Fyrri bækurnar ná yfir tímabilið 1601 -1970: Öldin sautjánda, Öldin átjánda I —II, Öldin sem leið I —II og Öldin okkar I —IV. Aldirnar eru lifandl saga liðinna atburða í máli og myndum. Fáar bækur hafa orðið eins vinsælt lestrarefni á fslandi. Enginn lætur Öldina sextándu vanta í safnið. „Aldirnar" eru bækur fyrir alla, unga sem gamla, eigulegar, fróðlegar og skemmtilegar í senn. Gunnar Gunnarsson: MARGEIR OG SPAUGARINN Lögreglusaga [ fyrra byrjaði að koma út sagnaflokkur ufn rannsóknarlög- reglumanninn Margeir og var það nýjung í íslenskri sagnagerð. Hér er Margeir kominn aftur.. . . Konulík finnst í fjörunni við Skúlagötu. Enginn veit hver konan er, en þá kemur maður frá Keflavík og segist vera eiginmaður hennar. Margeir hraðar sér suður eftir. . . Spennandi og vel skrifuð lögreglusaga úr kunnuglegu umhverfi. Persónulýsingar skýrar og öll atvik trúverðug í samhengi sögunnar. Nú höfum við eignast eigin krimmahöfund. Hannes Pétursson: HEIMKYNNI VIÐ SJÓ Heimkynni við sjó er tvímælalaust bókmennta- viðburður ársins. Fyrsta Ijóðasafn Hannesar Péturssonar í tæpan áratug. Skáldið gengur fjörur, skyggn á stórmerkin í náttúrunni sjálfri, hrynjandi árstíðanna allt í kring. Fyrir lesandann er brugðið upp ógleymanlegum Ijóðmyndum. Hér kveður Hannes af meira listfengi og fágun en nokkru sinni fyrr. Þessi bók er kjörgripur Ijóðaunnenda. — ,,... í einfaldleika sínum fjölbreyttari og djúphugsaðri en sumar fyrri bækur Hannesar." (G. Ást./Helgarpóstur- inn). „Ef einhver getur enn skynjað skrumlausa fegurð, þá er hana hér að finna." (Eyst. Þorv./Þjóðv.). Stefán Unnsteinsson: STATTU ÞIG DRENGUR Þættir af Sævari Ciesielski Stattu þig drengur er vissulega umhugsunarverð bók. Hvernig mótar þjóðfélagið manninn, hvers vegna leiðast sumir til afbrota og hvernig er tekið á þeim þegar svo er komið? Bókin er alvarleg ákæra á hendur samfélaginu, án þess að sýkna einstaklinginn af ábyrgð á gerðum sínum. Geirfinnsmálið muna allir, — eða þá hlið þess sem að almenningi sneri. En hvernig var vinnubrögðum hagað við yfirheyrslur? Bók sem enginn hugsandi maður getur leitt hjá sér. „Stefán Unnsteinsson leiðir hug lesenda sinna að mikilli og átakanlegri harmsögu . . ." (H. Kr./Tíminn). „Þetta er skynsamlega og heiðarlega gert hjá Stefáni." (Árni Bergm./Þjóðv.). Sigfús Daðason: LJÓÐ Heildarútgáfa á Ijóðum Sigfúsar Daðasonar, eins snjallasta og djúpsæjasta skálds samtíðar- innar. Ljóðin eru ort 1947-77. LJÓÐ Myndir eftir Sverri Haraldsson. Fög- ur og vönduð útgáfa. Þriðja bókin í flokki Ijóðasafna samtíðarskálda. : MÁNASILFUR II Safn endurminninga Gils Guðmundsson valdi Annað bindi hins vinsæla úrvals endur- minninga sem Gils Guðmundss. tekur saman. Hér eru þættir eftir 29 höfunda. Fjölbreytileg sýnishorn íslenskrar frásagnarlistar, sögumenn úr ýmsum stéttum, karlar og konur. Hér segir bæði frá ýmsum merkisatburðum íslandssögunnar eins og sögumenn lifðu þá, og hversdagsönn og lífsbaráttu við margvíslegar aðstæður. Falleg og eiguleg bók, skuggsjá íslensks mannlífs fyrri tíðar. Ásgeir Hjartarson: LEIKNUM ERLOKIÐ Úrval leikdóma Ásgeirs Hjartarsonar og greina um leikhúsmál og leikhúsmenn, frá árunum 1959-1972. • /T * LEIKNUM ER LOKIO Ásgeir var einn gleggsti og ritsnjailasti leikgagnrýnandi landsins á sinni tið og greinar hans mikilsverð heimild um íslenska leiklistarsögu. Ölafur Jónsson valdi efnið og ritar eftirmála um höfundinn og bókina. Ólafur Gunnarsson: LJÓSTOLLUR Ljóstollur er beitt, nærgöngul og vægðarlaus lýsing á upptöku ungs manns í samfélag karlmennsk- unnar þar sem öllu skiptir að vera töff — eða sýnast það ef maður vill lífi halda. Sögumaðurinn, Stefán, er ungur piltur og við kynnumst umhverfi hans, bæði fjölskyldu og vinnufélögum. Ölafur Gunnarsson er einn af athyglisverðustu ungum höfundum landsins og hefur hér náð góðum tökum á stfl, mannlýsingum og frásagnarhætti. „Býsna mögnuð bók . . . ætti að geta vakið góða umræðu um kúgun karlmanna." (Dagný Kr./Þjóðv.). Auður Haralds: LÆKNAMAFIAN Lítil pen bók Auður Haralds stormaði inn á bókmenntasviðið með Hvunndags- hetjunni í fyrra. Læknamafían, litil pen bók, lýsir baráttu hennar(eða sögukonu) við að fá sjálfa sig og sjúkdóm sinn tekin gild af samfélagi læknanna. Sagan er snörp ádeila, bráðlifandi og spaugsöm lýsing, húmorinn beinist í senn að sögumanni sjálfum og umhverfinu. Sjúkrahúslýsing sögunnar er drepfyndin — þar fer höfundur á kostum. Ýmsum mun dillað við lesturinn og kannast við sitt af hverju . . . Bræðraborgarsag 16 Sími 12923 - 19156 Hey til sölu Til sölu er nokkurt magn af sæmilega góðri töðu, þ.e.a.s. ca 700 hestb. frá sumrinu 1979 og ca. 750 hestb. frá í ár, 1980, allt í vel frágengnum útiheyjum og lítið eitt af böggum í hlöðu. Sökum takmarkana á heysölu á þessu svæði vegna riðuveiki hef ég leitað álits Ævars Hjartarssonar, ráðunautar BSE, og hefur hann gefíð upp eftirfarandi: Heyið má flytja og gefa hverri skepnu innan marka Svarfaðardals, Dalvíkur og Árskógsstrandar, en í Olafsfírði aðeins fyrir hross. Ef einhverjir vilja gera við mig góð kaup á umræddu heyi, þarf það að afgerast fyrir 29. desember þ.á. Heyin eru brunatryggð. Valtýr Jóhannesson Ytra-Holti sími 61559. NORÐURSLÓÐ - 19

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.