Norðurslóð - 20.02.1985, Page 3
Dansinn dunar á gömlu Grundinni. Myndin tekin 1982.
„Þorrablótin þar á Grund/
það er hugljúf stund“
Tími þorrablótanna hefur verið
í algleymingi undanfarið. Mikil
blessun er það vetrarþreyttum
lýð að geta búið sér til þessar
yndisstundir þá ytra herðir frost
og kyngir snjór, eins og skáldið
segir.
Hér í byggð eru haldin ein 5
regluleg, árleg þorrablót og
e.t.v. fleiri ef betur væri gáð.
Fyrst skal telja þorrablót
ungmennafélaganna á Grund-
inni. Það var að þessu sinni
haldiðföstudaginn l.febrúarog
tókst með afbrigðum vel. Gestir
voru á öðru hundraðinu og
fylltu bókstaflega hið aldna
Þinghús. Dagskráin var fjöl-
breytt, en henni stýrði hinn
landsþekkti og margrómaði
Jóhann Daníelsson, einn hinna
fjölmörgu Svarfdælinga, sem
sveitamenn hafa lánað Dalvík-
ingum.
Sértaklega ber að nefna söng-
konuna Antóníu Oganovsky,
sem söng af hjartans list við
undirleik sr. Jóns Helga
Þórarinssonar. Sjálfir sungu
blótsgestir einnig fagurlega,
þegar líða tók á borðhakhð t.d.
þennan hjartnæma söng Óttars
Einarssonar fyrrum skólastjóra
á Húsabakka:
Þorrablótin þar á Grund
það er hugljúf stund.
Þorrablótin þar á Grund
þar er hugljúf stund.
Þangað sækja sveinn og sprund
sveinn og fagurt sprund.
Þangað sækja sveinn og sprund
og sjá ekki málaðan hund.
Þetta síðasta með málaða
hundinn er svo sérhæfð svarf-
dælska að vonlaust má kalla að
útskýra það fyrir utansveitar-
fólki og verður það ekki reynt
hér, en þetta skal syngjast undir
ameríska laginu Love me tender
love me true. Og þá vita menn
það.
Þorrablótin á grundinni hafa
sérstöðu og sérstakan sjarma,
m.a. fyrir það, að gestir koma
enn hver með sinn þorramat,
margir i trogum og er fjöl-
breytnin í fóðrinu stórkostleg.
Dans stóð fram eftir nóttu svo
undir tók í fjöllunum og hið
aldna samkomuhús skalf á
grunni sínum, en stóð þó - að
þessu sinni.
Önnur þorrablót eru haldin á
vegum starfsfólks ÚKEA á
Dalvík, á vegum frystihússins á
Dalvík, á vegum Verkalýðs-
félagsins Eining á Dalvík og á
vegum starfsliðs þriggja skóla.
þ.e. Dalvíkur-, Húsabakka og
Arskógsskóla, allt mikil blót og
kröftug.
Ég er svo aldeilis hissa
Það gerðist á Urðum í Svarf-
aðardal á sjálfa þorrablóts-
nóttina 2. febrúar, kyndil-
messu, að ein kýrin í fjósinu lét
fóstri nærri tveimur mánuðum
fyrir tal. Þetta myndi ekki
þykja í frásögu færandi nema
af því að það var ekki kálfur,
sem fæddist. Hvað þá, fæddist
kannske folald. Nei ekki folald
og ekki kálfur, heldur kálfar.
Nú svoleiðis, kýrin var sem sé
tvíkelfd. Nei ónei svo hvers-
dagslegt var það nú ekki.
Kýrin lét þremur kálfum. Hún
var þríkelfd og það köllum við
sögu til næsta bæjar.
Að sögn Hailgríms Einars-
sonar á Urðum voru kálfarnir
þrír byrjaðir vel að hárgast og
að stærð á við litla hunda,
svona eins og tíkin í Lauga-
steini, sagði hann, og þá vitum
við það.
Frá Bæjarsjóði Dalvíkur
Athygli gjaldenda er vakin á því að gerð hefur
verið breyting varðandi eindaga útsvara, aðstöðu-
og fasteignagjalda. Eindagi er nú 35 dögum eftir
gjalddaga. Eindagi gjalda er gjaldféllu í febrúar
s.l. er því 5. mars n.k. og í lok þess dags verða
reiknaðir dráttarvextir á þau gjöld sem þá eru
ógreidd. Dráttarvextir verða síðan framvegis
reiknaðir í lok dags 5. hvers mánaðar.
Gjaldendur eru hvattir til að gera skil á gjöldum
sínum fyrir eindaga hverju sinni svo þeir komist
hjá óþarfa kostnaði.
Bæjarsjóður Dalvíkur
Hvað á búðin að heita?
Nú líður að því, að hin nýja
sölubúð Kaupf. á Dalvík verði
tekin í notkun í áföngum.
Samkvæmt utíDlýsingum frá
Rögnvaldi Skíða Friðbjörns-
syni er nú stefnt af því að
matvöru- og vefnaðarverslun-
in flytji í nýja húsnæðið fyrir
marslok næstkomandi.
Menn hafa verið að velta því
fyrir sér hvort gefa ætti nýju
búðinni sérstakt nafn til að
gæða hana meiri persónuleika
ef svo mætti segja eins og
algengt er um slíkar stofnanir
annars staðar, t.d. Mikligarður
Miðvangur, Skagfirðingabúð
o.s.frv.
Nú hefur forráðamönnum
KEA hugkvæmst að gefa al-
menningi kost á að leggjafram
tillögur um hæfilegt nafn á
búðina.
Hugmyndaríkir menn eru
beðnir að skila tillögum til
Rögnvaldar Skíða Friðbjörns-
sonar ekki seinna en 5. mars.
Að því búnu mun þá ákvörðun
verða tekin og vonandi besta
nafnið síðan valið.
Njóttu lífsins í lifandi sumarleyfi
Stærsti og ítarlegasti sumarferðabæklingur
sem gefinn hefur verið út á íslandi er kominn.
Lægra verð - Léttari greiðslubyrði:
SL-ferðaveltan með allt að 175% lánshlutfall!
Fleiri áfangastaðir:
Rhodos
Grikkland
Rimini - Riccione
Sæluhús í Hollandi
Sumarhús í Danmörku
Holland og Danmörk í einni ferð
Flug og bíll - Kaupmannahöfn -
Amsterdam - Saizburg
Salzburg
Dubrovnik
Rútuferðir
Sovétríkin
Kanada
Norðurlönd
Orlof aldraðra
Einstaklingsferðir til allra átta
Ath. Ókeypis innanlandsflug fyrir þá sem staðfesta ferðapöntun fyrir 2. apríl n.k.
Samvinnuferðir - Landsýn
Umboðsmaður Dalvík - Rögnvaldur Friðbjörnsson
Dalbraut 8 - ÚKE Dalvík - Símar 61415 og 61200
NORÐURSLÓÐ - 3