Norðurslóð - 04.07.1986, Síða 3
Hitaby lgj a
,yAin sem stundum var ehki í hné
er orðin að skaðrœðis fljóti“
Svarfaðardalsá í foráttuvexti.
I góðviðrinu. Kvenfélagskonur vinna að trjárækt á Húsabakka.
í góðviðrinu. Dalvíkingar planta trjám í skógarreit.
Mánuður er liðinn og vel það
síðan Norðurslóð greindi frá
veðurfari vorsins. Megin inntakið
var þrálátur kuldi allan maí-
mánuð með tilheyrandi síð-
búinni vorkomu og gróðurleysi
allan mánuðinn.
Reyndar stóð kuldinn lengur
og t.d. var slydduveður og grá
jörð af nýsnævi 8. -10. júní. Upp
frá því fór tíðin fyrir alvöru að
batna og jörð tók að gróa. Þá
komu hinsvegar í ljós Ijót köl í
túnum sumstaðar hér um slóðir,
einkum á bæjum í neðanverðri
sveitinni.
Stórflóð
Upp úr miðjum júnímánuði
gerði fyrst reglulegt sumarveður,
sól og hlýindi dag eftir dag og að
lokum snerist það upp í sann-
kallaða hitabylgju, 20 - 22 gráðu
hita einkum dagana 27. - 29.
júní.
Eins og að líkum lætur leiddi
þessi mikli hiti til feykilegra
vatnavaxta hér norðan- og
austanlands. Nógur ersnjórinn í
fjöllunum til að viðhalda vatna-
vöxtum fram eftir öllu sumri.
Ekki fórum við Svarfdælir
varhluta af þessum náttúru-
hamförum. Svarfaðardalsá hefur
streymt fram barmafull og
mikið meira en það dögum
saman, nú þegar þetta er ritað
30. júní. Dalurinn neðanverður
hefur breyst í allmyndarlegan
fjörð með eyjum og riíjum hér
og þar.
Fuglavinir hafa haft áhyggjur
af því, að þessir miklu vatna-
vextir hafi kaffært og eyðilagt
mörg fuglshreiður. Sennilega
eru þetta nú óþarfa áhyggjur.
Langflestir fúglar hafa ungað út
fyrir nokkru og víst er það að
mjög mikið er um ungaendur á
flóðvatninu og ber óvenjumikið
á þeim, þar sem allt gras er í kafi
og hvergi hægt að fela sig.
Vegaskemmdir
Eins og að líkum lætur var þessi
mikli vatnagangur nærgöngull
við brýr og vegi og urðu tölu-
verðar skemmdir á nokkrum
stöðum hér um slóðir. Alvar-
legastar skemmdir urðu á Ólafs-
fjarðarvegi í Torfdalsárgili norðan
við Sauðakot. Þar gróf áin sig í
gegnum uppfyllinguna og
myndaði allt að því 30 metra
djúpt gljúfur. Verður mikið
verk að vinna til að koma
veginum þarna í samt lag, en til
bráðabirgða hefur verið lögð
slóð yfir gilið ofan við veginn.
Skíðadalsá lét ekki sinn hlut
eftir liggja og lagði til atlögu við
veginn nyrðst á eyrunum við
Dælistún. Þar gróf hún undan
veginum og sópaði honum
burtu á ca. 80 m. löngum kafla.
Eins og er klöngrast litlir bílar
fram hjá torfærunni með því að
aka upp á túnið.
Þá er þess að lokum að geta
að Svarfaðardalsáin gróf sig á
bak við norðurstöpul Hærings-
staðabrúar og braut úr veginum
svo að hann varð ófær um skeið.
Viðgerð hefur farið fram, svo að
á morgun, 1. júlí verður sótt 5
daga mjólk í Hæringsstaði og
Búrfell.
Heyskapur hafinn
Því hafði verið spáð, að heyskap-
ur hæfist í síðasta lagi að þessu
sinni. Sú spá ætlar ekki að
rætast frekar en aðrar spár
okkar skammsýnna manna.
Grasspretta hefur orðið svo ör í
hitunum að komin var góð
slægja á mörgum bæjum fyrir
mánaðarmótin. Sláttur hófst á4
bæjum samtímis laugardaginn
28. júní því fáir eru svo fífl-
djarfir að byrja heyskap á
mánudegi. Og nú eru fyrstu hey
komin í hlöðu, græn og ilmandi,
sem gaman verður að gefa
kúnum næsta vetur.
Líklega hafa margir bændur
lesið grein Þórarins Lárussonar
fyrrverandi ráðunautar á Akur-
eyri, sem hann skrifaði í Frey
nýlega. Það er einhver hin
sterkasta brýning, sem íslenskir
bændur hafa fengið frá upphafi
veganna um að byrja snemma
að heyja. Greinin endar méð
þessum frýjuyrðum:
„Aðalatriðið er að drattast á
vorlappirnar fyrir allar aldir og
byrja sláttinn, en væflast ekjci
hálfsofandi í óslægjunni fram
eftir öllu sumri." Vel mælt Óg
skörulega hjá Þórarni.
mSTABOK
1. kostur■■
2. kostur :
3. kostur-.
4. kostur -.
Innstæda er alltaf laus.
Vextir eru 13% eda hærri,
ef verdtrygging reynist betri.
Vextir færast tvisvar á ári.
Leidréttingavextir af úttekt
eru adeins 0,7%.
5. kostur -. Leyfdar eru tvær. úttektir á
ári án vaxtaskerdingar.
KOSTABÓK er gódur kostur.
, I
NORÐURSLÓÐ -L3