Norðurslóð - 04.07.1986, Qupperneq 3

Norðurslóð - 04.07.1986, Qupperneq 3
Hitaby lgj a ,yAin sem stundum var ehki í hné er orðin að skaðrœðis fljóti“ Svarfaðardalsá í foráttuvexti. I góðviðrinu. Kvenfélagskonur vinna að trjárækt á Húsabakka. í góðviðrinu. Dalvíkingar planta trjám í skógarreit. Mánuður er liðinn og vel það síðan Norðurslóð greindi frá veðurfari vorsins. Megin inntakið var þrálátur kuldi allan maí- mánuð með tilheyrandi síð- búinni vorkomu og gróðurleysi allan mánuðinn. Reyndar stóð kuldinn lengur og t.d. var slydduveður og grá jörð af nýsnævi 8. -10. júní. Upp frá því fór tíðin fyrir alvöru að batna og jörð tók að gróa. Þá komu hinsvegar í ljós Ijót köl í túnum sumstaðar hér um slóðir, einkum á bæjum í neðanverðri sveitinni. Stórflóð Upp úr miðjum júnímánuði gerði fyrst reglulegt sumarveður, sól og hlýindi dag eftir dag og að lokum snerist það upp í sann- kallaða hitabylgju, 20 - 22 gráðu hita einkum dagana 27. - 29. júní. Eins og að líkum lætur leiddi þessi mikli hiti til feykilegra vatnavaxta hér norðan- og austanlands. Nógur ersnjórinn í fjöllunum til að viðhalda vatna- vöxtum fram eftir öllu sumri. Ekki fórum við Svarfdælir varhluta af þessum náttúru- hamförum. Svarfaðardalsá hefur streymt fram barmafull og mikið meira en það dögum saman, nú þegar þetta er ritað 30. júní. Dalurinn neðanverður hefur breyst í allmyndarlegan fjörð með eyjum og riíjum hér og þar. Fuglavinir hafa haft áhyggjur af því, að þessir miklu vatna- vextir hafi kaffært og eyðilagt mörg fuglshreiður. Sennilega eru þetta nú óþarfa áhyggjur. Langflestir fúglar hafa ungað út fyrir nokkru og víst er það að mjög mikið er um ungaendur á flóðvatninu og ber óvenjumikið á þeim, þar sem allt gras er í kafi og hvergi hægt að fela sig. Vegaskemmdir Eins og að líkum lætur var þessi mikli vatnagangur nærgöngull við brýr og vegi og urðu tölu- verðar skemmdir á nokkrum stöðum hér um slóðir. Alvar- legastar skemmdir urðu á Ólafs- fjarðarvegi í Torfdalsárgili norðan við Sauðakot. Þar gróf áin sig í gegnum uppfyllinguna og myndaði allt að því 30 metra djúpt gljúfur. Verður mikið verk að vinna til að koma veginum þarna í samt lag, en til bráðabirgða hefur verið lögð slóð yfir gilið ofan við veginn. Skíðadalsá lét ekki sinn hlut eftir liggja og lagði til atlögu við veginn nyrðst á eyrunum við Dælistún. Þar gróf hún undan veginum og sópaði honum burtu á ca. 80 m. löngum kafla. Eins og er klöngrast litlir bílar fram hjá torfærunni með því að aka upp á túnið. Þá er þess að lokum að geta að Svarfaðardalsáin gróf sig á bak við norðurstöpul Hærings- staðabrúar og braut úr veginum svo að hann varð ófær um skeið. Viðgerð hefur farið fram, svo að á morgun, 1. júlí verður sótt 5 daga mjólk í Hæringsstaði og Búrfell. Heyskapur hafinn Því hafði verið spáð, að heyskap- ur hæfist í síðasta lagi að þessu sinni. Sú spá ætlar ekki að rætast frekar en aðrar spár okkar skammsýnna manna. Grasspretta hefur orðið svo ör í hitunum að komin var góð slægja á mörgum bæjum fyrir mánaðarmótin. Sláttur hófst á4 bæjum samtímis laugardaginn 28. júní því fáir eru svo fífl- djarfir að byrja heyskap á mánudegi. Og nú eru fyrstu hey komin í hlöðu, græn og ilmandi, sem gaman verður að gefa kúnum næsta vetur. Líklega hafa margir bændur lesið grein Þórarins Lárussonar fyrrverandi ráðunautar á Akur- eyri, sem hann skrifaði í Frey nýlega. Það er einhver hin sterkasta brýning, sem íslenskir bændur hafa fengið frá upphafi veganna um að byrja snemma að heyja. Greinin endar méð þessum frýjuyrðum: „Aðalatriðið er að drattast á vorlappirnar fyrir allar aldir og byrja sláttinn, en væflast ekjci hálfsofandi í óslægjunni fram eftir öllu sumri." Vel mælt Óg skörulega hjá Þórarni. mSTABOK 1. kostur■■ 2. kostur : 3. kostur-. 4. kostur -. Innstæda er alltaf laus. Vextir eru 13% eda hærri, ef verdtrygging reynist betri. Vextir færast tvisvar á ári. Leidréttingavextir af úttekt eru adeins 0,7%. 5. kostur -. Leyfdar eru tvær. úttektir á ári án vaxtaskerdingar. KOSTABÓK er gódur kostur. , I NORÐURSLÓÐ -L3

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.