Norðurslóð - 04.07.1986, Blaðsíða 5
Um þetta leyti í fyrra
A jarðarberjaekru í
Wisconsin
f júnímánuði í fyrra fórum við hjónin til Bandaríkjanna í sumarfrí
ásamt Ingibjörgu systur Þuríðar. Dvöldumst við þar í góður yfirlæti
hjá annari mágkonu minni og manni hennar, þeim Guðrúnu (Lillu)
og Harald Femal i veglegum sumarbústað þeirra við Shawanovatn í
Wisconsin. Þessi tími vestra var hinn ánægjulegasti í alla staði,
fólkið sem við hittum var mjög elskulegt og gestrisið. Upp i hugann
kemur minning um það þegar við fórum í jarðarberjamó í 35 stiga
hita:
Vorið hafði verið þurrt og
kalt í Norðurríkjum og fyrstu
dagana eftir að við komum til
Wisconsin var stundum nokkuð
svöl norðvestan stinningsgola.
Upp úr miðjum júní fór að
hlýna og gerði sterkjuhita um
daga. Marsha kona Erics, eins
sonar Lillu og Harrys og Joan
móðir Mörshu vöktu athygli
Fólk á jarðarbeijarekru í Wisconsin um Jónsmessu 1985.
Maísgrösin á ökrunum voru enn
lágvaxin þó komið væri fram í
miðjan júní. Heimamenn höfðu
orð á því áhyggjufullir að líklega
yrði maísinn, sem Bandaríkja-
menn nefna korn (corn) ekki
orðinn hnéhár 4. júlí, á þjóð-
hátíðardag þeirra, eins og hann
ætti að vera að öllu eðlilegu.
okkar á því að nú væru jarðar-
berjabændur sem óðast að
auglýsa í blöðunum að fólk
mætti koma og tína jarðarber á
ekrum þeirra fyrir 50 cent (20
kr) pundið. Það varð því úr að
ákveðið var að fara á berjateig á
bæ einum alllangt þar frá. Við
Þuríður kona mín vorum í bíl
með mæðgunum Joan og
Mörshu, en Inga með Harry og
Lillu og ennfremur Þórunn
Guðmundsdóttir og sonur hennar
Hafliði Gíslason. Hafliði er
nýbakaður doktor í eðlisfræði
frá Lundi í Svíþjóð en vinnur nú
við rannsóknir í sérgrein sinni
við Bethlehem háskólann í
Pennisylvaníu.
Á skilti við heimreiðina að
jarðarberjabænum stóð að menn
væru boðnir velkomnir þangað.
Ekki bar á öðru en að fólk léti
sér það að kenningu verða því
að þegar við komum að berja-
ekrunum gat að líta tugi ef ekki
hundruð manna, konur, börn
og karlmenn, hálfbogin við að
tína jarðarber.
Okkur var hleypt inn um hlið.
Hver maður fékk grunnan
pappakassa til að tína í og svo
var okkur ekið á dráttarvéla-
vagni út á ekrurnar, Vörður
úthlutaði hverjum einni rein að
tína á. Nú var komin þrúgandi
hitabreyskja því sólin skein í
heiði og ekki blakti hár á höfði..
Ég fór að hugsa um að varla
gæti verið þægilegt að vinna
erfiðisvinnu í svona 35 stiga hita
eða hvernig skyldi þeim líða sem
væru að vinna daginn langan á
tóbaks- og baðmullarekrunum
ennþá sunnar í landinu. En þá
kom mér í hug að sjálfsagt
vendust menn þessu, það væri
ekki að marka þó ferðalang af
norðurslóðum sem væri vanur
við golusvelju á sumrin volgnaði
í þessum ofnhita.
Ég hafði upp úr krafsinu
þrettán pund af fallegum, full-
þroska jarðarberjum, kúfaðan
pappakassa og borgaði sex og
hálfan dollar fyrir og hin
eitthvað svipað. Joan bjó til úr
þessu þá langbestu jarðarberja-
sultu sem ég hef smakkað og
gerði okkur út með margar
sulutkrukkur til íslands.
Júlíus J. Daníelsson
Ölunn færir út kvíarnar
Margföldun framleiðslunar ráðgerð
Eldishús öluns, nýja húsið i smiðum.
Fiskeldi virðist vera sú atvinnu-
grein, sem mestur er uppgangur
í á íslandi í dag. Hér í Eyjafirði
er þó heldur lítið um að vera á
þessu sviðú í Ólafsfirði er
fyrirtækið Óslax h.f. að slíta
barnsskónum og hyggst nýta sér
allsérstæðar aðstæður í Ólafs-
ljarðarvatni.
Ög svo er það ölunn h.f. á
Dalvík. í síðasta blaði Norður-
slóðar var gefið í skyn, að
eitthvað yrði sagt frá starfsem-
inni þar í þessu tölublaði. Til að
efna það birtist hér mynd tekin á
staðnum og síðan koma hér
upplýsingabrot.
Stækkun stöðvarinnar
Það er til marks um hug og
bjartsýni þeirra Ölunnarmanna,
að þeir eru nú að byggja nýtt og
miklu stærra eldishús en það,
sem fyrir er. Nýja húsið er 560
m2 og á að hýsa 2 gríðarstór
fiskiker 14 metra í þvermál, þ.e.
150 m2 hvort. Kerin eru gerð úr
emeleruðu stáli, innflutt frá
Þýskalandi.
Þetta þýðir að sjálfsögðu
margföldun þeirrar framleiðslu
á sláturlaxi sem stöðin annar nú
og er ráðgert að í stað tveggja
kvía, sem nú er, verði 8 kvíar úti
á víkinna næsta vor. Sá fiskur,
sem þangað á að fara er nú að
alast upp í kerjum í eldri
skálanum.
60 tonn af sælgæti
Þessar upplýsingar fékk blaðið
hjá stöðvarstjóranum, Þórólfi
Antonssyni, sem hefur greini-
lega mikla trú á fyrirtækinu.
Hann sagði ennfremur, að þeir
vonuðust til að ársframleiðsla
yrði í kring um 60 tonn af slátur-
laxi, þegar þessi aukning er
komin í kring. Ef meðalþungi
laxins er 2,5 kg þýðir þetta að
24.000 stykki þarf í 60 tonnin.
Þarna fær margur maðurgóðan
bita á diskinn sinn.
Colin og Tracy voru kvödd með virktum og gjöfum en þau eru nú flutt tH
London.
f minningu liðinnar grásleppuvertiðar.
Grásleppukarlar f.v. Hjálmar Randversson og Rósmundur Stefánsson
handlanga hrognatunnurnar.
Konur í Tjarnarsókn seldu kaffi á kosningadaginn. F.v. Fjóla á Húsabakka,
Kristín í Brekku, Sigríður á Tjörn, Ástdís í Syðra-Holti.
Brúarsmíði við Holtsá.
NORÐURSLÓÐ - 5