Norðurslóð - 29.07.1986, Page 4
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírnir
Skírðir \ oru í Tjarnarkirkju á sunnudaginn 27. júlí bræðurnir
Úlfur 9 ára og Ari 4 ára Þórarinssynir Eldjárn. Foreldrar
þeirra eru Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur og Þórarinn
Eldjárn rithöfundur Ásvallagötu 12. Reykjavík.
Eldjárn rithöfundur Ásvallagötu 12. Revkjavík. Jón Helgi
Þórarinsson skírði.
Afmæli
Þann 29. júlí verður sjötugur Sigurður Ólafsson bóndi í
Syðra-Holti.
Þann 5. ágúst verður sjötug Lilja Hallgrímsdóttir húsfreyja í
KJaufabrekknakoti.
Þann 27. ágúst verður sjötugur Jón Skagfjörð Stefánsson
Hafnarbraut 10 Dalvík fyrrverandi hreppstjóri og fulltrúi
bæjarfógetans á Dalvík.
Þann 8. ágúst verður áttræð Jórunn Jóhannsdóttir Soanatúni
1 Dalvík.
Blaðið flytur heillaóskir.
Má ég kynna?
Flestir niunu vita, að ráðinn
hefur verið býr bæjarstjóri á
Dalvík í staö Stefáns Jóns
Bjarnasonar, sem lætur af því
starfi líklega í ágústbyrjun.
En hver er hinn nýi verðandi
bæjarstjóri?
Hann heitir Kristján Þór
Júlíusson. innborinn Dalvík-
ingur. fæddur 15. júlí 1957.
sonur hjónanna Ragnheiðar
Sigvaldadóttur og Júliusar
Kristjánssonar á Hólavegi 7.
Kristján Þór varð stúdent frá
M.A.. félagsfræðideild. vorið
1977. Veturinn 1977-78 stund-
aði hann nám í Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík og lauk 1. og
2. stigi. Var meira og minna á
sjó næstu 2 árin og hefur verið
afleysiijgamaður sem stýri-
maður og skipstjóri flest sumur
síðan.
Hann settist í Háskóla íslands
haustið 1980 með íslensku sem
aðalfag en allmennar bók-
menntir aö öðru leyti. Stefndi á
BA-gráðu. en hefur ekki enn
lokið prófritgerð sinni. Haustið
1984 hóf hann kennslu í Dal-
NÍkurskóla og stundaði hana
næstu 2 veturna. Jafnframt
kennslunni \ar Kristján Þór
ritstjóri Bæjarpóstsins á Dal\ ík
frá byrjun til \ ors 1986.
Sambýliskona Kristjáns Þórs
er Guðbjörg Ringsted Irá Akur-
eyri. dóttir Baldvins Ringsted
tannlæknis og Ágústu Sigurðar-
dóttur. Guðbjörg er myndlistar-
kona að mennt. Dóttir þeirra er
María. tveggja ára.
Áhugamál sín segir Kristján
Þór vera allt. sem dalvíkskt er.
mannlíf. atvinnumál. náttúran
til sjós og lands o.s.frv.
Er bókmenntafræði góður
undirbúningur fyrir starf bæjar-
stjóra? Já. þ\'í ekki það. bók-
menntirnar miðla manni ntikilli
reynslu af ýmsu tagi.sem kemur
manni til góða í hvaða starfi sem
er.
Hvernig segir honum hugur
um nýja starfið? Það leggst
mjög vel í mig. segir Kristján
Þór að lokum. Blaðið þakkar
viðtalið og árnar honurn heilla í
vandasömu starli.
Hestamót Hrings á Flötutungu 19. júlí. A-flokkur gæðinga f.v. Stefán
Friðgeirsson á Sunnu frá Hóli, Ómar Arnbjörnsson á Sleipni Rafns
Arnbjörnssonar, Sveinbjörn Hjörleifsson á Sóta, Steinar Steingrímsson á
Sveip, Þór Ingvason á Meistara.
Aðalsteinshús fær andlitslyftingu.
Vegna forfalla Rögnvalclar Skida Frió-
björnssonar, hefur Jön Baldvinsson hlauþic)
í skarðið og tekið flestar myndir íþetta hlað.
Frh. af forsíðu
Nokkrar breytingar urðu í
stjórn fyrirtækisins. Úr stjórn-
inni gekk Úlfar Arason í Sól-
vangi, sem verið hefur stjórnar-
formaður svo og Tryggvi
Stefánsson á Hallgilsstöðum.
Kosinn var sem formaður
Jóhann lngólfsson á Lóma-
tjörn í Höfðahverfi. Aðrir í
stjórn eru nú Jón Sigurðsson á
Draflastöðum, Hjalti Haralds-
son í Ytra-Garðshorni, Skarp-
héðinn Pétursson og Þorsteinn
Aðalsteinsson báðir á Dalvík.
Stöðvarstjóri er, sem fyrr
Sagði Símon Ellerlsson.
>• Áætlað er að fóðurfram-
leiðsla þessa árs verði ca. 3.500
tonn og fer vaxandi. Trúlega
mætti tvöfalda hana með nú-
verandi tækjahúnaði ef og þegar
þörf krefur, að því tilskildu þó,
að frystigeymslan verði að veru-
leika.
Fóðurstöðin er þannig ekkert
smáræðis fyrirtæki og skiptir
miklu máli fyrir Dalvík, og ekki
síður fyrir loðdýraræktina í
Eyjafirði, að hún komist á
traustan rekstrargrundvöll og
reynist starfi sínu vaxin.
Fréttahornið
Skipakomum til Dalvíkur-
hafnar hefur fjölgað fyrs.tu
sex mánuðina á þessu ári miðað
við sama tíma í fyrra. Nú hafa
komið 83 flutningaskip á móti
59. Inn og útflutningur hefur að
sama skapi aukist. Árið 1985
voru flutt út 3.384 tonn fyrri
hluta ársins en 4.651 tonn nú.
Aðal aukningin í útflutningi er
skreið eða réttara sagt hausár,
en frosinn fiskur hefur dregist
saman (er víst mikið fluttur með
bílum til Reykjavíkur). Inn-
flutningsaukningin er aðallega
salt. Bolfiskafli hefur aukist á
sama tíma úr 5.710 tonnum í
6,534 tonn, og rækjuafli úr 701
tonni í 1.075 tonn, þannig að
umferð afla og vöru um
Dalvíkurhöfn á þessu ári hefur
aukist verulega miðað viðsíðast
liðið ár.
Pása sl. sunnudag í frystihúsinu.
Bátar í Dalvíkurhöfn: Dalborg, Baldur, Bliki og smábátar í forgrunni.
Nefndarkosningar eru af-
staðnar hjá bæjar-
stjórninni á Dalvík og er listi
yfir velflestar nefndir birtur hér í
blaðinu. Hlutur kvenna virðist
vera nokkuð stór þegar á heild-
ina er litið. Stutt er í jafnræði
kvenna og karla hvað nefndar-
skipan varðar og er það mjög í
takt við skipan bæjarstjórnar
þar sem þrjár konur sitja af sjö.
Ein er sú nefnd sem konur hafa
ekki skipað fyri, en það er
bygginganefnd. Nú sitja þar
tvær konur af fimm. Ekki nóg
með það heldur voru þær
kosnar formaður og varafor-
maður þessarar nefndar.
Svanhildur Árnadóttir er for-
maður og Þóra Rósa Geirs-
dóttir varaformaður.
Hafin er reglubundin
sigling flutningsskips
frá Dalvík til Bretlands og
Norðurlanda. Austfarhf. semer
fyrirtæki í eigu íslendinga og
Færeyinga hefur keypt 1100
tonna flutningaskip sem hér var
í fyrstu ferð fyrir skömmu.
Skipið verður hér hálfsmán-
aðarlega og verður Dalvík
endastöð þess á Norðurlandi og
eina lestunarhöln hcr við Eyja-
fjörð. Með skipinu kom fragt til
Dalvíkur aðallega salt, en einnig
vörur sem fóru siðan til Akur-
eyrar. Hcr lestaði skipið meðal
annars ferskan fisk í gáma sem
fer á markað í Bretlandi. Út-
gerðir rækjubáta á Dalvík og
Árskógsströnd sendu grálúðu
og einnig fór þorskur af Björg-
úlfi. Samtals fóru þrír gámar af
ferskum liski og cr þetta í fyrsta
skiptið sem ísliskur fer beint frá
Dalvík í gámum. Skipið er
sérstaklega útbúið lyrir gála-
flutning og getur flutt 1 12gáma,
þar á mcðal frystigáma. Við-
komustaðir skipsins erlendis
eru Hull í Englandi og Ála-
borg í Danmörku auk Færcyja.
Ekki er að efa að miklir
möguleikar opnast við þcssa
nýju þjónustu. Umboðsaðili
fvrir Austfar hf. er Bliki hf.