Norðurslóð - 25.11.1986, Side 1
10. árgangur
Þriðjudagur 25. nóvember
11. tölublað
Brœðurnir sigldu báðir/burtu frá ungri meyjlangt burt frá systur sinnijað sœkja í Kolbeinsey.
Ömurlegt allt mér þykir/útnorðurland í sjá./Beinin hvítna þar beggja/brœðranna klettinum á.
J. Hallgr.
Útvörður íslands í norðrinu.
Ljósmyndir G.F.
Kolbeinsey
Sjómenn fara víða og sjá sumir
hverjir eitt og ánn'að, sem aldrei
ber fyrir augu okkar landkrabb-
anna. í síðasta tölublaði fengum
við samt að sjá eitt stykki flug-
vélamóðurskip, sem einn sjó-
maður hafði fest á filmu norðan
við land.
Nú birtum við mynd af öðru
sjaldséðu fyrirbæri og miklu
geðþekkara heldur en þessa
manndrápsbyttu þeirra Ameríku-
manna. Það er útvörður íslands
í norðri, Kolbeinsey. Sjálfsagt
hafa margir dalvískir sjómenn
séð eyna, ef ey skyldi kalla. Hún
er þó í rauninni ekki annað en
einmana klettur upp úr Dumbs-
hafi, rösklega 60 km norðvestan
við Grímsey.
Kolbeinsey er í hættu, segja
menn, hún minnkar stöðugt
eftir því sem náttúruöflin naga
utan af henni. Um 1930 er hún
talin hafa verið 70 m á lengd, en
30 árum síðar, um 1970, var hún
hinsvegar aðeins um 40 metrar á
lengd, 30 metrar á breidd og 6-8
m á hæð. En hve stór er hún nú?
Því svara að einhverju leyti
meðfylgjandi myndir teknar af
Gunnari Friðrikssyni, vélstjóra
á Haraldi EA 62 á Dalvík. í
maí-júní á þessu ári var aldeilis
óvenjuleg fiskigengd á miðunum
fyrir Norðurlandi. Þá fylltu
netabátarnir sig dag eftir dag af
rígaþorski. Eitt sinn voru þeir
Haraldarmenn aðeins nokkra
tugi metra frá Kolbeinsey. Þá
urðu þeir fyrir því óhappi, að
net lenti í skrúfunni og urðu þeir
að skera það frá svo verra hlytist
ekki af. En um leið smellti
Gunnar vélstjóri þessum mynd-
um af eynni og efndi þar með
loforð við Norðurslóð. Mega
fleiri, sem hafa í fórum sínum
myndir af sjaldséðum stöðum
eða fyrirbærum, senda þær
blaðinu til birtingar.
Víkurbakarí byggir
Opin kaffistofa fyrir gest og gangandi
Hver þekkir?
Hafíð samband við Júlíus Kristjáns-
son Hólabraut 7 sími 61218.
er Híbýli h, f á Akureyri og hófu
þeir framkvæmdir í júlí. Sam-
kvæmt verksamningi áttu þeii
að skila verkinu um síðustu
mánaðarmót, en það hefur
tafist svo það verður ekki fyrr en
í desember sem þeir skila
húsinu. Þá eiga þeir eftir að
ganga frá því að utan. Endan-
legur frágangur að utan verður
héðan af að býða þangað til
næsta vor.
Hvert verður svo framhaldið
hjá þér?
Meiningin er að halda áfram
við innréttingar þegar aðstaða
verður til þess. Upphaflega
stefndum við að því að taka
neðri hæðina í notkun í febrúar
en það dregst allavega fram í
mars. Efri hæðin kemur síðan
vonandi í gagnið með vorinu.
Við ætlum að starfrækja versl-
unina áfram við Skíðabraut,
þótt framleiðslan færist í nýja
húsið, þangað til við getum
opnað hana þar líka.
Verður mikil breyting á
aðstöðu ykkar við þessar fram-
kvæmdir?
Vinnuaðstaða breytist náttur-
lega mjög mikið. Núverandi
leiguhúsnæði er um 200 m2 svo
það gefur auga leið að aðstæður
breytast. Fermetratala segir
kannski ekki alla söguna því
þegar húsnæðið er hannað strax
í upphafi með ákveðinn rekstur
í huga verður öll tilhögun mun
hagkvæmari. Þegar þessi starf-
semi færist miðsvæðis í bænum
reiknum við með meiri verslun í
búðinni sjálfri auk þess sem
kaffiaðstaða fyrir viðskiptavini
verður viðbót við núverandi
rekstur.
Bakarí í byggingu
Víkurbakarí er nú að byggja
iðnaðar- og verslunarhúsnæði
við Hafnarbraut. Bakaríið hefur
verið í leiguhúsnæði að Skíða-
braut 3 allt frá því að það tók til
starfa árið 1973. Þetta ágæta og
bráðnauðsýnlega fyrirtæki er
sem sagt að færa út kvíarnar og
treystast í sessi. Hjá bakaríinu
vinna nú 8 manns við fram-
leiðslu- og afgreiðslustörf.
Norðurslóð hitti Ríkarð Björns-
son bakara að máli. Hann var
fyrst beðinn að lýsa nýja húsinu.
Hér er um að ræða 450 m:
húsnæði. Neðri hæðin er 250 m:
og sú efri 200 m:. Framleiðslan
eða bakaríið sjálft verður á
neðri hæðinni með tilheyrandi
lager. Starfsmannaaðstaða,
kaffistofa og snyrtingar, verðaá
efrihæðinni og einnig verslunin.
Þetta tekur um það bil 100 m: af
þeirri hæð. í framtíðinni ergert
ráð fyrir að byggður verði 30 m:
garðskáli sem tengdur verður
búðinni. Við ætlumað vera með
aðstöðu í búðinni svo viðskipta-
vinir geti keypt sér kaffisopa og
meðlæti. Garðskálinn verður þá
í framtíðinni viðbót við þá
aðstöðu. Þá er ákveðið að á 50
m: á efri hæð verði hárgreiðslu-
stofa og síðan er meiningin að
leigja 50 m: fyrir aðra starfsemi.
Hvenær hófust framkvæmdir?
Byggingin var boðin út miðað
við verktaki skili henni rúmlega
fokheldri, það er að segja hús
frágengin að utan með hurðum
og gluggum. Verktaki hjá okkur