Norðurslóð - 24.04.1996, Qupperneq 3
NORÐURSLÓÐ - 3
Mynd 3. Horft til norðurs. Klcifarnibba að baki.
(Ljósm. Á. Þ.)
Mynd 4. Árni og Grétar í lægðinni á milli Dýjahnjúks og Kúgilshnjúks. Horft
til suðurs í átt að Kúgilshnjúki. (Ljósm. Á. Þ.)
fjallið yst en Rimamar sunnar. Til
austurs hallar Krossafjallinu aflíð-
andi niður í Þorvaldsdal. Framund-
an er Kleifarnibba (980m), strýtu-
laga klettahryggur, sem við fyrir-
fram töldum auðgengan en hann
reyndist svo mjór að hann var nán-
ast ógengur (mynd 3). Kom það
okkur á óvart að við urðum að fara
niður af honum og ganga utan í
hlíðum Hálsdalsins í skriðum og
snjó og leiðinlegu göngufæri. Var
þetta versti farartálmi dagsins. Eft-
ir þetta var alveg ógengt niður í
Hálsdal þar til komið var að botni
hans. Að Kleifamibbu lokinni var
lítil lækkun og var áfram gengið
eftir klettahrygg, en nú var hann
allbreiður og vel gengur, en sums
staðar var gengið á snjó. Hækkaði
nú landið talsvert upp á næsta
hnjúk, Grundarhnjúk (1051m).
Þetta er strýtumyndaður grjót-
hnjúkur sem hallar aflíðandi niður
í Þorvaldsdal en er brattur niður í
Hálsdal. Af honum lækkar landið
nokkuð (um 80 m) áður en lagt er
til atlögu við næsta hnjúk, Dýja-
hnjúk (llOOm). í lægðinni á milli
hnjúkanna var gengið á snjó, en
upp á sjálfan Dýjahnjúkinn á
klettarana, talsvert brattan en auð-
genginn (mynd 4). Nú vorum við
komnir í talsverða hæð og dagur
að kveldi kominn, en einn hnjúk-
inn áttum við samt eftir á þessu
langa Krossafjalli, Kúgilshnjúk
(1160 m). Nokkur lægð, um 40 m,
var einnig á milli Dýjahnjúks og
Kúgilshnjúk en á Kúgilshnjúk var
gengið eftir snævi þöktum rana og
hnjúkurinn sjálfur var einnig snævi
þakinn. Hér staðnæmdumst við og
vomm nú orðnir nokkuð hungraðir
og þyrstir, enda gengið á vatns-
birgðimar. Ég á dýrindis málm-
pela, sem varð fyrir því áfalli að ég
setti einu sinni á hann matarolíu í
stað ávaxtasafa í misgripum. Þrátt
fyrir ítrekaðan þvott virtist olíu-
bragðið enn loða við hann, og ég
gat því ekki drukkið vatnið af hon-
um. Svo var sorfið að Ama, að
hann drakk þetta olíumengaða
vatn vandræðalaust í einum teig.
Helgi fór ekki lengra
Nú vorum við á hátindi Krossa-
fjallsins og komnir að botni Háls-
dalsins. Ekki þótti okkur sýn
Helga magra hafa aukist mikið
fram í Eyjafjörð við gönguna inn
eftir Sólarfjöllum, enn skyggja
fjöllin handan Þorvaldsdals á, en
við sáum ágætlega inn á Vind-
heimajökulssvæðið. Vegna tor-
færa og útsýnisleysis hef ég af-
skrifað það að Helgi magri hafi
gengið lengra en á Krossahnjúk,
en sumir telja reyndar að hann hafi
gengið á Kötlufjall, og það sé hin
eiginlegu Sólarfjöll. Af Kötlufjalli
sést vel fram Eyjafjörð og frá Há-
mundarstöðum séð hverfur sólin á
bak við Kötlufjallið þegar hún er
lágt á lofti. Helgi gat því vel hafa
gefið Kötlufjallinu sólamafn, en
mér þykir ólíklegt að hann hafi
gengið á fjall svo fjarri heimili
sínu. Menn lögðu það ekki í vana
sinn að ganga á fjarlæg fjöll. Sólin
hverfur á bak við Kötlufjallið, en
hins vegar skín hún oft fagurlega á
Krossafjallið. Baldvin á Hámund-
arstöðum hefur sagt mér að seint í
maí skíni sól fagurlega á Krossa-
fjallið gegnum skarð í Múlanum.
Ríkuleg ástæða er til að gefa slíku
fjalli sólamafn, miklu fremur en
fjalli sem skyggir á sól í skamm-
deginu. Niðurstaða þessara vanga-
veltna er sú að Sólarfjöll séu Há-
mundarstaðafjall og Krossafjall og
Helgi magri hafi aldrei gengið
lengra en á Hámundarstaðafjall
eða hugsanlega á Krossahnjúk og
þaðan hafi hann einungis séð inn á
Svalbarðsströnd sem er snjóléttari
en Arskógsströndin.
Enn einn hnjúkur, Skeiðar-
hnjúkur (1132m), er innst á
Krossafjallinu, en þangað þurfum
við ekki að fara, vegna þess að nú
getum við sveigt fyrir botn Háls-
dalsins. Skeiðarhnjúkurinn snýr að
mynni Þverárdals, sem er allmikill
og þrískiptur dalur sem gengur
vestur úr Þorvaldsdalnum í átt að
Rimum og Hofsdal. Af Kúgils-
hnjúknum var því stefna tekin til
vesturs, fyrir botn Hálsdalsins,
hlaupið niður í snjónum um 180m
niður og stefnt á Rimamar. Þegar
undir Rimamar kom minnkaði
snjórinn og sums staðar runnu
vatnsseymr undan sköflunum.
Gátum við nú fyllt á vatnsílátin og
drukkið eftir þörfum. Við vorum
nú orðnir allslæptir, klukkan orðin
10 að kveldi þessa fyrsta göngu-
dags. Kom fram tillaga um það að
við tjölduðum hér, undir Rimun-
um, en þá væmm við í skjóli fyrir
suðvestanáttinni sem var allstíf.
Hafði nú að mestu hætt að rigna,
en síðdegis höfðum við fengið á
okkur skúrir og sáum eiginlega
eftir því að hafa ekki valið betri
dag til þessa ferðalags. Við fund-
um nú hentugt tjaldstæði á melurð,
tíndum stærstu hnullungana burt
og reistum tjaldið. Ami kynti
prímusinn og við elduðum kvöld-
mat, pakkamat sem keyptur hafði
verið í Reykjavík og nefnist
„Mountain House“, og man ég
ekki eftir að hafa notið máltíðar
betur.
í náttstað
Jæja, þama vorum við komnir í
náttstað, en upphafleg áætlun gerði
ráð fyrir að við gistum fyrstu nótt-
ina á Sælufjalli, sem var langt und-
an. Fyrsti áfangi göngunnar löngu,
sem átti að vera auðveldasti hlut-
inn, hafði reynst okkur strembnari
en við áttum von á. Við höfðum þó
sigrað marga hnjúka (mynd 1) og
gátum fylgt hreppamörkum Svarf-
aðardals (ásamt Dalvík) á móti Ar-
skógshreppi, nema þegar við geng-
um örlítið niður fyrir Kleifamibb-
una. Hún kom okkur á óvart. Við
höfðum hæst farið í 1160 m hæð
en víða gengið allangt niður á milli
hnjúkanna 7 sem við höfðum sigr-
að þennan daginn. Þreyttir en
ánægðir lögðumst við til svefns í
um 1150 m hæð og sváfum ótrú-
lega vel.
Greinar-
höfundur:
Bjarni E.
Guðleifs-
son
Dalvíkurbær
Auglýsing um
umferð á Dalvík
Samkvæmt samþykkt umferðarnefndar og sýslumannsins
á Akureyri hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á
umferð á Dalvík (áður auglýst í nóvember 1995).
Umferðarmerki hafa þegar verið sett upp.
1. Aðalbrautarréttur verður á Hafnarbraut, Skíðabraut og
Gunnarsbraut og stöðvunarskylda á öllum götum, er að
þeim liggja.
2. Mímisvegur, Böggvisbraut, Karlsrauðatorg og Bjarkar-
braut verða aðalbrautir og biðskylda á aðliggjandi göt-
um gagnvart nefndum götum.
3. Bjarkarbraut víkur fyrir umferð á Mímisvegi og Goða-
braut. Mímisbraut víkur fyrir umferð á Böggvisbraut.
Goðabraut víkur fyrir umferð af Mímisvegi. Vegur frá
skíðasvæði hefur stöðvunarskyldu á Böggvisbraut. Um-
ferð úr Svarfaðarbraut víkur fyrir umferð úr Hólavegi.
4. Á eftirtöldum götum verður 30 km hámarkshraði: Á öllum
götum vestan Gunnarsbrautar og norðan Karlsrauða-
torgs, þ.e. Karlsbraut, Bárugötu, Brimnesbraut, Ægis-
götu, Drafnarbraut, Lokastíg og Öldugötu. Einnig á
Ránarbraut, Martröð og Karlsrauðatorgi austan Hafnar-
brautar.
Bæjartæknifræðingur
Hreppsnefnd
Svarfaðardalshrepps
sendir Svarfdælingum nær
og fjœr bestu óskir um
gleðilegt og
gjöfult sumar
Sendum
starfsfólki okkar
og viðskiptavinum
bestu óskir um
Gleðilegt
sumar