Norðurslóð - 24.04.1996, Page 4
4 - NORÐURSLÓÐ
Minning
Hjörtur E. Þórarinsson
Tjörn
Fæddur 24. febrúar 1920 - Dáinn 1. apríl 1996
Svarfdælsk byggð og bær hefur
kvatt Hjört á Tjöm hinstu kveðju.
Laugardaginn fyrir páska var útför
hans gerð frá Dalvíkurkirkju að
viðstöddu miklu fjölmenni og að
þeirri athöfn lokinni var safnast
saman í Tjamarkirkju þar sem
kveðja fór fram áður en hann var
jarðsettur í kirkjugarðinum á
Tjörn. Athöfnin í Dalvíkurkirkju
og áfram að Tjöm var hátíðleg en
um leið persónuleg. Þar var kvadd-
ur virtur héraðshöfðingi sem naut
trausts fólks um land allt. Margir
hafa ritað minningargreinar um
Hjört að undanfömu og sýna þær
glöggt hversu mikils metinn hann
var af sínu samferðafólki.
Um langan aldur hefur heimilið
á Tjöm skipað sérstakan menning-
arsess í augum Svarfdælinga. Þar
var um aldir prestssetur. Síðasti
presturinn sem sat á Tjöm var
Kristján Eldjám Þórarinsson afi
Hjartar. Hann naut fádæma virð-
ingar samtíðarmanna sinna sem
sést ef til vill best á því að margir
drengir voru skírðir í höfuðið á
honum og látnir heita Kristján Eld-
jám. Þannig bera ýmsir hér um
slóðir nafnið Kristján Eldjám án
þess að vera skyldir fólkinu á
Tjörn. Þórarinn faðir Hjartar, sem
tók við búinu á Tjörn af föður sín-
um, var kennari í sveitinni í ára-
tugi. Þórarinn var rómaður kennari
og hefur maður oft heyrt nemend-
ur hans minnast daganna í skólan-
um í Þinghúsinu á Grand með
mikilli aðdáun á uppfræðara sín-
um.
I mínum huga er Hjörtur á
Tjöm einhver menntaðasti maður
sem ég hef umgengist. Þá á ég ekki
við menntun í skilningi langrar
skólagöngu heldur miklu fremur
vegna hæfileika hans til að lesa úr
umhverfi sínu, tileinka sér þekk-
ingu, vinna úr henni og miðla til
annarra. Eðliskostir hans hafa ráð-
ið mestu í þessum efnum en ekki
er rétt að vanmeta áhrifin sem
hann hefur orðið fyrir á æskuheim-
ili sínu. Hann fór í langskólanám
og lauk prófi úr háskóla í búvís-
indum. Hann sérhæfði sig í nýj-
ungum sem era á tiltölulega
þröngu sviði búvísinda en það
kom ekki í veg fyrir að fáum áram
síðar kom hann heim í Svarfaðar-
dal og tók við búinu á Tjöm.
Hjörtur tók við búinu á Tjöm
1950 af föður sínum. Hann tók
ekki aðeins við búskapnum heldur
einnig hinni menningarlegu arf-
leifð forfeðra sinna. Hvort tveggja
rækti hann af alúð og skilaði af sér
með sóma til næstu kynslóðar.
Hjörtur hafði óvenju gott vald á
íslenskri tungu. Atti létt með að tjá
sig, sérstaklega í rituðu máli. Hann
var mikill félagsmálamaður og
valdist víða til forystu þar sem
hann beitti sér. Hann var í sveitar-
stjóm í Svarfaðardal, í stjórn
Kaupfélags Eyfirðinga og lengi
formaður, í stjóm Búnaðarfélags
Islands og þar formaður, í stjóm
Náttúravemdarráðs og í stjóm
Sparisjóðs Svarfdæla lengi. Þessi
upptalning er hvergi nærri tæm-
andi en sýnir traustið sem borið
var til hans þar sem hann starfaði.
Það eru nú orðin nær tuttugu ár
síðan við Hjörtur og Óttarr Proppé
sátum saman og ræddum mögu-
leika á að gefa út blað sem fyrst og
fremst þjónaði íbúum Dalvíkur og
Svarfaðardals. Markmiðið var
skýrt í hugum okkar en fyrirmynda
var ekki að leita hérlendis á þeim
tíma. Héraðsfréttablöðin þá vora
gefin út af stjómmálaflokkunum
og miðuðust við einstök kjördæmi
eða stóra kaupstaði. Slík blaðaút-
gáfa var ekki í okkar huga. Við
vildum gefa út blað sem segði
fréttir af málefnum líðandi stundar
og birti greinar um mál sem horfðu
til framfara og geymdi jafnframt
frásagnir af atburðum liðins tíma.
Haustið 1977 ákáðum við að
gera tilraun með svona blað. Óttarr
hafði starfað sem blaðamaður um
tíma og einnig við uppsetningu
blaðs. Hans þekking var því afar
dýrmæt þegar fyrstu skrefin voru
stigin. Nafnið á blaðinu veltist
lengi fyrir okkur, eða þar til Hjört-
ur tók af skarið um að Norðurslóð
skyldi það heita. Upp frá því hafa
nöfnin Hjörtur og Norðurslóð ver-
ið samtvinnuð. Hikandi fórum við
af stað í útgáfuna en viðtökur voru
góðar og fljótlega batt fjöldi
áskrifenda tryggð við blaðið og er
svo enn.
Það er ekkert launungarmál að
hefði Hjörtur ekki fljótlega tekið
forystu um skrif í blaðið þá hefði
útgáfan tæpast staðið fram á þenn-
an dag. Hjörtur var mjög ritfær
maður eins og áður segir og átti
létt með að skrifa texta á skömmun
tíma. Á skrifum hans var alltaf sér-
stakur og persónulegur stíll og
varð það til þess að Norðurslóð
skipar á margan hátt sérstakan sess
sem héraðsfréttablað. Það var ef til
vill menningaryfirbragð Tjamar-
heimilisins að fomu og nýju sem
umfram annað skóp þessa sérstöðu
blaðsins.
Það var lærdómsríkt og mjög
ánægjulegt að vinna með Hirti í
þessi ár að útgáfu Norðurslóðar og
fyrir það er ég þakklátur. Ég veit
að lesendur blaðsins minnast
skrifa Hjartar þakklátum huga. Ég
veit líka að í nafni þeirra get ég
sent Sigríði og fjölskyldunni allri
samúðarkveðjur. Minningin um
Hjört E. Þórarinsson mun lifa.
Jóhann Antonsson
Þei þei og ró, þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó, sofþú í blíðri ró
við höfum vakað nóg vœrðar þú
njóta skalt.
Þei þei og ró, þögn breiðist yfir allt.
Jóhann Jónsson
Mig langar að minnast míns kæra
tengdaföður, Hjartar á Tjöm. Ég er
svo lánsöm að hafa fengið að
kynnast honum og vera honum
samtíða hér á Tjörn. Sannur nátt-
úraunnandi var hann og heillaður
af landi sínu, og ég er þakklát fyrir
að hafa fengið tækifæri til að njóta
náttúrunnar undir hans leiðsögn.
Minnisstæð er mér fyrsta skíða-
ferðin sem ég fór með honum
ásamt fleira góðu fólki fyrir u.þ.b.
12 áram síðan, en farið var í kring-
um Hnjótafjallið.
Þetta var í yndislegu veðri og
sól skein í heiði. Ferðin upp gekk
vel þó bratt væri, og fór Hjörtur
fyrir hópnum. Við borðuðum nest-
ið okkar bak við Hnjótafjallið og
dáðumst að stórbrotinni náttúru og
útsýni. Þá skynjaði ég fyrst þá
töfra sem eru í því fólgnir að
standa andspænis hrikaleik náttúr-
unnar. En nú sótti kuldinn fast að
okkur og fljótlega var farið að
hugsa til niðurferðar en henni
hafði ég kviðið. Það var þó óþarfi
því Hjörtur renndi sér niður á und-
an og vissi ég að hann þekkti leið-
ina betur en nokkur annar. Þannig
sé ég Hjört fyrir mér, allstaðar
fremstan meðal jafningja.
Bömin okkar áttu mikinn vin
og félaga í afa sínum og fóra þau
með honum í stuttar og lengri
gönguferðir. Fræddi hann þau um
kennileiti í náttúranni, nöfn fugla
og plantna, og sagði þeim sögur.
Hann hjálpaði þeim að lesa og
einnig las hann fyrir þau, stundum
upp úr erlendum bókum sem hann
þýddi jafnóðum og hann las, enda
var hann afburðagóður málamað-
ur.
Ösp dóttir okkar á skemmtilega
minningu um afa sinn. Þau vora að
spila ólsen-ólsen og setti hann þær
reglur að sá sem tapaði fengi
brjóstsykur, en sá sem ynni fengi
súrt slátur. Þannig lærðist henni að
það er ekki endilega einhlítt að
sigurinn sé sætur og það sé súrt að
tapa.
Hjörtur spilaði á blokkflautu og
þá gjarnan skosk lög sem hann
hafði miklar mætur á. Hann gaf
Ösp flautuna sína. Hún heimsótti
afa sinn á sjúkrahúsið skömmu
fyrir andlát hans og spilaði fyrir
hann nokkur lög og glaðnaði mjög
yfir honum þótt hann væri þungt
haldinn.
Ég vil þakka Hirti fyrir allar
góðar stundir sem hann veitti okk-
ur. Hvfli hann í friði.
Kristjana Arngrímsdóttir
Hjörtur á Tjöm var mikill vinur
tengdafólks síns, systkina Sigríðar
á Tjöm. Við bömin nutum góðs af
því. Eftirminnilegar eru heimsókn-
ir hans inn í Snekkjuvog til for-
eldra minna. Hann gerði ekki boð
á undan sér heldur birtist skyndi-
lega á tröppunum með hattinn
sinn. Það fylgdi honum einhver
hátíðarblær. Stofan fylltist af eftir-
væntingu því að skemmtun var í
aðsigi. Það var eins og Hirti yrði
allt að söguefni. Orðin léku honum
á tungu, hvort sem það var í
óbundnu máli eða bundnu. Mér
fannst hann líka eiga svo auðvelt
með að ræða við sér yngra fólk.
Hann bæði hlustaði á það og hafði
gaman af að fræða það. Fræðslan
kom sem eðlilegur hluti samræð-
unnar. En svo gat hann lflca verið
stríðinn en í jákvæðum skilningi
og góðum tilgangi.
Þegar fjarlægð milli manna er
mikil er eins og vinaböndin geti
styrkst. Mér er minnisstætt þegar
Hjörtur skrifaði mér til Toronto í
Kanada langt bréf fyrir um tuttugu
árum. Það sem var sérstakt við
bréfið var að það var ekki skrifað á
íslensku - og ekki á ensku heldur.
Það var á latínu. Sennilega hef ég
verið búinn að segja Hirti að ég
væri að glíma við það foma mál og
hann hefur þá talið rétt að láta
reyna á kunnáttu mína í því. Þann-
ig kom Hjörtur sífellt á óvart. Fáir
hefðu líklega getað beitt mennta-
skólalatínunni sinni á þennan hátt
meira en þrjátíu árum eftir stúd-
entsprófið. Reyndar hleraði ég síð-
ar að Hjörtur hefði verið afburða-
maður í latínu á skólaárum sínum.
Glósur hans munu hafa gengið
milli manna í Menntaskólanum á
Akureyri árum saman og sparað
nemendum þar mikla handavinnu.
Eitt sinn á áram latínubréfsins
góða fékk ég boð frá Hirti um að
mæta á flugvöllinn í Toronto og
hitta hann þar á dlteknum tíma. Þá
var hann á leið til Alaska í kynnis-
ferð með tveimur íslenskum land-
búnaðarfrömuðum. Honum hafði
reiknast að um klukkutíma bið
yrði á Torontoflugvelli og því til-
valið að stefna mér þangað. Hléið
milli véla reyndist ekki svo langt,
og þegar við loks hittumst voru
ekki nema 10 mínútur í brottför
Alaskavélarinnar. Föranautum
Hjartar leist ekkert á blikuna og
vildu drífa sig um borð. En Hjörtur
tók ekki annað í mál en að drekka
með mér ölglas. Ekki leit hann á
klukkuna meðan við sátum þarna,
og í minningunni finnst mér við
hafa átt langt samtal og innihalds-
ríkt á flugvallarbamum í Toronto.
Það er annað skrif frá hendi
Hjartar en latínubréfið sem ég ber
nokkra ábyrgð á og má vera stoltur
af. Ég bað Hjört nefnilega að
skrifa dálítinn kafla í Skagfirð-
ingabók árið 1985 um tengdaföður
sinn og afa minn, Áma J. Hafstað í
Vík. Hjörtur gerði það með þeim
hætti sem honum einum var lagið.
Þó ég hafi hér gert mér tíðrætt
um fundi við Hjört fjarri heima-
byggð hans þá eru eftirminnileg-
ustu stundimar með honum heima
á Tjöm. Sjaldan hef ég kynnst ann-
arri eins gestristni og var á heimili
hans og Sigríðar. Skyldi gesta-
gangurinn þar á bæ ekki hafa verið
einstakur? Einhver hefði kannski
viljað nota orðið gestanauð. En
það er eins og þeim hjónum hafi
þótt þetta sjálfsagt, svona væri
þetta og svona ætti þetta að vera.
Ég veit að ég tala fyrir munn
alls frændfólksins, systkinasona
og dætra Sigríðar frænku minnar,
þegar ég þakka Hirti á Tjöm ómet-
anleg kynni. Hann var okkur dýr-
mæt fyrirmynd til orðs og æðis.
Baldur Hafstað
Andlátsfregn kemur ætíð að óvör-
um þótt vitað hafi verið um hríð að
kallið gæti komið fyrirvaralaust.
Svo varð einnig hér.
Hjörtur á Tjöm átti við erfið
veikindi að stríða sem hann bar af
dæmafáu æðraleysi. Hann var þó
svo lánsamur að geta verið heima
á Tjöm nánast til hins síðasta og
lifað eins eðlilegu lífi og kostur
var, styrktur og studdur af sinni
traustu eiginkonu og samhentu
fjölskyldu.
Ég man fyrst eftir Hirti sem
gesti á Jarðbrú. Hann var þá ný-
kominn frá námi í Skotlandi. Ég
hafði ekki ýkja mörg árin að baki
og nokkur nýlunda að hitta mann
sem nýkominn var frá útlöndum
og hafði í tilbót komist í nálægð
við stríðið sem alltaf var verið að
segja frá í útvarpinu.
Þegar Þórarinn á Tjöm og Sig-
rún hættu búskap tóku Hjörtur og
Sigríður við. Ekki veit ég hvort
þau hafa í reynd ætlað þá braut,
því margar vora þeim færar, en
hvemig sem því er varið hafa þau
unnið mikið og gott starf, byggt
upp stórt bú og skilað áfram til
nýrrar kynslóðar, sem nú gerir
garðinn frægan, bæði heima á
Tjöm og annars staðar. Auk þess
unnu þau Tjarnarhjón mikið að fé-
lagsmálum, innan sveitar sem
utan.
Ég var svo lánsamur sem ung-
lingur um tveggja vetra skeið að
kynnast Tjamarheimilinu sem einn
af heimilismönnum. Auk þess að
vera rammíslenskt menningar-
heimili ríkti þar samþjóðlegt and-
rúmsloft, ef svo má að orði kom-
ast, og gjama litið á menn og mál-
efni að öðrum og hærri sjónarhól
en almennt tíðkaðist í Svarfaðardal
á þeim tíma.
Af kynnum mínum af Tjamar-
heimilinu, þótt stutt væru, veit ég
að böm Hjartar og Sigríðar fengu
að heiman gott veganesti, og það
hefur enda dugað þeim vel. Ég
held að þar sé virðingin haldbest.
Þau hjónin virtu hvort annað,
sýndu börnunum virðingu og gáfu
sér tíma til að sinna þeim, vera
með þeim og tala við þau.
Á fyrri hluta 6. áratugarins var
skólaganga svarfdælskra unglinga
eftir að skyldu lauk ekki jafnsjálf-
sögð og nú. Um skyldufræðsluna
sá Þórarinn á Tjöm, en leitað var
til Hjartar með kennslu unglinga.
Ég var í þeim hópi tvo vetrarparta.
Hjörtur tók þar við sem Þórarinn
hætti, og þeim feðgum á ég að
þakka kunnáttu, ekki síst í íslensku,
sem reyndist traustur grunnur að
frekara námi.
Víst er að enginn ræður sínum
næturstað. Nokkrum áram síðan,
að loknu námi, kem ég aftur heim í
Svarfaðardal, og þá til að taka við
starfinu sem Tjamarfeðgar höfðu
áður sinnt, kennslu bama og ung-
linga. Nú kynntist ég Hirti og Sig-
ríði sem foreldrum nemenda
minna og grönnum. Með þeim var
gott að vinna og leita hjálpar hjá,
ef þurfti.
Hirti látnum vottum við hjónin
virðingu og heila þökk fyrir sam-
fylgdina og grátum með syrgjend-
um góðan dreng.
Þórir Jónsson frá Jarðbrú
Það er bjart yfir minningunni um
Hjört föðurbróður minn. Ég sé
hann fyrir mér við heyskap eða í
fjósinu með gamanyrði á vör. Eða
syngjandi við raust á gamla farm-
allnum með hattkúf fram á ennið
og bamaskarann hoppandi á hey-
vagninum.
I honum bjuggu, að því er virt-
ist í sátt og samlyndi, eðlisþættir
sem venjan er að telja andstæður.
Hann var í senn sveitamaður og
heimsborgari, íslenskur bóndi sem
hafði hlotið háskólamenntun er-
lendis og víða hafði farið. Hann
átti mýkt og hörku, hann var róm-
antískur og raunsær.
Áhugi er það orð sem helst
verður fyrir mér ef ég ætti að finna
eitt orð til að lýsa Hirti. Hann hafði
áhuga á mannlífinu, þjóðlífinu,
náttúrunni. sögunni, ljóðum,
tungumálum. Ekkert var fjær hon-
um en að yppa kæruleysislega öxl-
um og segja „hvað varðar mig um
það?“. Allt vildi hann vita og skilja
og miðla því síðan til annarra.
Engin jurt slapp framhjá honum
ónafngreind, enginn staður án ör-
nefnis, jafnvel stjömur himinsins
urðu að gera grein fyrir sér hver og
ein. Orðabækur hafði hann ætíð
innan seilingar og krafði þær
sagna um merkingu og upprana.
Ef góð vísa eða meitluð setning
flaug fyrir ófeðruð var Hjörtur
ekki í rónni fyrr en höfundur var
fundinn.
Sjálfur var hann einstaklega rit-
fær, eins og lesendum Norðurslóð-
ar mun kunnugast um. Þar hefur
hann birt ótal athuganir sínar, hug-
leiðingar og ferðasögur sl. 20 ár.
Margt af því er hrein skemmtilesn-
ing, svo sem endurminningar hans
frá námsáranum á Bretlandseyjum
í seinni heimsstyrjöldinni. Hann
ritaði einnig nokkrar bækur, svo