Norðurslóð - 24.04.1996, Qupperneq 5
NORÐURSLÓÐ- 5
Á háfjöllum. Hjörtur í Grímubrekkum áriö 1972.
Stjórnarfundur í Kaupfélagi Eyfiröinga á 8. áratugnum, frá vinstri: Gísli
Konráðsson, Sigurður O. Björnsson, Sigurður Óli Brynjólfsson, Arngrímur
Bjarnason skrifstofustjóri, Hjörtur, Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri, Jón
Jónsson, Kristinn Sigmundsson og Jón Hjálmarsson.
sem lýsingu Svarfaðardals í Árbók
Ferðafélagsins 1973 og 1994 kom
frá honum stórverk í tveimur bind-
um, Saga sýslunefnda Eyjafjarðar-
sýslu.
Hjörtur var mikill hamingju-
maður í einkalífi sínu. Hann eign-
aðist frábæra konu árið 1948, Sig-
ríði Ámadóttur Hafstað frá Vík í
Skagafirði. Á undraskömmum
tíma eignuðust þau 7 mannvænleg
böm sem öll hafa erft eiginleika
foreldra sinna í ríkum mæli. En þó
hópurinn væri stór og að mörgu að
hyggja var samt alltaf pláss fyrir
okkur sumarbömin.
Það hafa sagt mér fleiri en einn
af félögum Hjartar frá fyrri tíð að
sjaldan hafi þeir fyrirhitt nokkum
mann jafngeislandi af lífsþrótti og
fjöri. Sú orka sem hann þar virtist
eiga umfram aðra menn dugði
honum vel í nær tíu ára stríði við
illvíga sjúkdóma, þó hratt gengi á
birgðimar. Hann streittist á móti
miklu lengur en allir meðalmenn
hefðu getað og reyndi að fara sinna
ferða eins og kostur var þó oft væri
hann sárlega kvalinn. Þannig auðn-
aðist honum til dæmis að heim-
sækja námsslóðir sínar í Skotlandi
hinsta sinni síðastliðið haust.
Hjörtur að störfum hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar árið 1948.
Hjörtur og Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri afhenda Vigdísi Finnbogadótt-
ur forseta fyrsta eintakið af sögu Búnaðarfélags íslands á 150 ára afmæli fé-
lagsins 1987.
í heimavarnarliði Skota á stríðsárunum í Edinborg ásamt Ottó Jónssyni til
vinstri og Friðriki Þorvaldssyni.
Hjörtur lést aðfararnótt 1. apríl
sl. og var lagður 6. apnl til hinstu
hvíldar í Tjamarkirkjugarði, í suð-
vesturhomi garðsins, eins nálægt
og komist verður bænum þar sem
hann fæddist fyrir rúmum 76 ár-
um.
Svarfdælsku fjöllin, sem hann
þekkti öllum mönnum betur, eru
vegleg umgjörð um líf hans. Hann
lifði því lifandi og var á svo marg-
an annan hátt eins og við ættum öll
að vera.
Þórarinn Eldjárn
Hjörtur og Sigríður reisa vörðu á Tungnahrygg þar sem síðar kom skáli fyrir
þeirra tilstuðlan.
Svipmyndir úr
lífí Hjartar E.
Þórarinssonar