Norðurslóð - 24.04.1996, Side 8
TímamóT
Skírnir
31. mars var Arnar Óli skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans eru
Soffía Kristín Höskuldsdóttir og Bóas Ævarsson (Klemenssonar),
Dalbraut 9, Dalvík.
4. apríl var Jóhann Ólafur skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans
eru Elín Björk Unnarsdóttir og Sveinbjöm Jóhann Hjörleifsson (Jó-
hannssonar), Goðabraut 21, Dalvík.
6. apríl var Eva Björk skírð í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hennar eru
Dóra Bjömsdóttir og Birgir Ásgeir Kristjánsson, Brimnesbraut 17,
Dalvík.
6. aprfl var Pórdís skírð í Dalvíkurkirkju, Foreldrar hennar eru
Hólmfríður Sigurðardóttir og Rögnvaldur Ingvason (Eiríkssonar),
Reynihólum 12, Dalvík.
8. apríl var Jón Martin skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans em
Baldrún Hrönn Sævarsdóttir og Thor Johan Skoradal, Lokastíg 1,
Dalvík.
Andlát
1. apríl lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri Hjörtur Friðrik Eldjárn Þórarinsson,
Tjöm, Svarfaðardal.
Hjörtur fæddist að Tjöm í Svarfaðardal 24.
febrúar 1920, sonur hjónanna Sigrúnar Sigur-
hjartardóttur og Þórarins Kristjánssonar Eld-
jáms. Hjörtur var þriðji í röð fjögurra bama
þeirra hjóna. Elst er Þorbjörg, næstur kom
Kristján Eldjám, sem er látinn, og yngst er
Petrína Soffía. Fósturbróðir þeirra systkina er Þórarinn Pétursson.
Hjörtur lauk stúdentsprófi frá MÁ vorið 1940 og síðan búfræði-
prófi frá Edinborgarháskóla. Hann lærði einnig tæknifrjóvgun hjá
Bretum sem vom á þeim tíma að þróa nýjar aðferðir við búfjársæð-
ingar. Er hann kom heim árið 1945 varð hann ráðunautur hjá Bún-
aðarfélagi íslands með aðsetur á Akureyri. Stofnsetti hann fyrstu
sæðingarstöð á Islandi á Grísabóli á Ákureyri og telst Hjörtur
brautryðjandi á þessu sviði hér á landi.
17. maí árið 1948 kvæntist Hjörtur eftirlifandi konu sinni Sigríði
Margréti Ámadóttur Hafstað frá Vík í Skagafirði. Hafa þau búið á
Tjöm frá árinu 1950. Þau hjón eignuðust 7 böm sem eru: Ámi, Þór-
arinn, Ingibjörg, Sigrún, Steinunn, Kristján Eldjám og Hjörleifur.
Samhliða bústörfum sinnti Hjörtur margvíslegum félagsmála-
störfum. Hann var oddviti um árabil og hreppstjóri í Svarfaðardals-
hreppi. Þá tók hann þátt í starfi Búnaðarfélags Svarfdæla og var um
tíma formaður þess. Hjörtur var varamaður á Alþingi í eitt kjör-
tímabil. Hann var kosinn í stjóm Kaupfélags Eyfirðinga 1966 og
var stjórnarformaður kaupfélagsins 1972 til 1987. í stjórn Búnaðar-
félags Islands var hann kjörinn árið 1971 og var formaður þess frá
árinu 1987 til 1991. Fulltrúi á Búnaðarþingi var hann árin 1978 til
1986. Hjörtur sat í Náttúruvemdarráði árin 1972 til 1979 og ferðað-
ist þá, sem endranær, mikið um Island. Hann var aðalhvatamaður
að því að endurreisa Ferðafélag Svarfdæla og gekk mikið á fjöll,
hvort heldur sumar eða vetur. Hjörtur þekkti flóru íslands sérstak-
lega vel og kunni einnig nöfn flestra fugla sem búa hérlendis eða
sækja landið heim. Hann var einn af forgöngumönnum þess að
koma á fót Friðlandi Svarfdæla.
Hjörtur annaðist stundakennslu við Menntaskólann á Akureyri,
Húsabakkaskóla og á Dalvík. Árið 1977 stofnaði hann ásamt fleir-
um blaðið Norðurslóð og skrifaði alla tíð mikið í blaðið. Hann var
fenginn til áð rita sögu Sparisjóðs Svarfdæla í 100 ár, sögu Kaupfé-
lags Eyfirðinga í 100 ár og síðast tveggja binda stórvirki um sögu
Sýslunefndar Eyjafjarðarsýslu 1874-1989.
Utför Hjartar var gerð frá Dalvíkurkirkju 6. apríl og var hann
jarðsettur í kirkjugarðinum að Tjöm, eftir stutta athöfn í Tjamar-
kirkju.
Þann 14. apríl lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri Halldór Ragnar Jónsson, Stórhóls-
vegi l.Dalvík.
Ragnar fæddist á Dalvík 5. maí árið 1919.
Foreldrar hans voru Jóhanna Halldórsdóttir og
Jón Emil Ágústsson. Ragnar var þriðji af sex
systkinum. Elstir voru Páll Sigurvin og Óli
Árelíus sem era látnir, en á lífi eru Ámi, Alm-
ar, Kristján og Sigríður.
Ragnar fór á unglingsáram á sjóinn og stundaði sjómennsku
stóran hluta ævi sinnar. Hann tók vélstjórapróf frá Akureyri árið
1941. Á sjöunda áratugnum fór Ragnar að starfa í landi og var póst-
ur á Dalvík í 14 ár. Hann átti trillu um áratuga skeið og var starfið í
kringum hana líf Ragnars og yndi.
19. desember árið 1942 gekk Ragnar í hjónaband með eftirlif-
andi konu sinni, Steinunni Helgu Sigurðardóttur frá Dalvík. Þau
hafa búið að Stórhólsvegi 1 frá því um miðja öldina. Þau eignuðust
tvö böm, Sigurð Emil og Elínu Rósu.
Utför Ragnars var gerð frá Dalvíkurkirkju 20. apríl.
FréttahorN
Skíðagöngufólk hefur lítt haft
sig í frammi í vetur vegna
skorts á snjó á láglendi. Upp til
fjalla er hins vegar nægur snjór ef
menn nenna að prika sig upp í
hlíðar eða fram í dalabotna. Hópur
manna gekk á dögunum unrhverfis
fjallið Skjöld í sólskini og blíð-
skaparveðri. Uppi í Hvarfdals-
skarði var logn og blíða og þar var
áð og nesti snætt. Þar opnast útsýni
niður á Lágheiði og ofan í Ólafs-
fjörð. Síðasta ferð á vetraráætlun
Ferðafélags Svarfdæla verður farin
5. maí. Þá verður gengið frá Ólafs-
firði svokölluð Botnaleið til Siglu-
fjarðar.
Samstarfsnefnd sveitarfélaga við
utanverðan Eyjafjörð hefur
samið við fyrirtækið Rekstur og
ráðgjöf hf. um að gera hagkvæmn-
isúttekt á sameiningu sveitarfélag-
anna. Sótt hefur verið um framlag
úr Jöfnunarsjóði til þessa verkefnis
en áætlað er að skýrsla liggi fyrir í
lok maí. Rekstur og ráðgjöf er fyr-
irtæki sem m.a. hefur tekið að sér
að meta hagkvæmni sameiningar
sveitarfélaga víða um land.
Friðrik Gígja varabæjarfulltrúi
sjálfstæðismanna hefur flutt
um það tillögu til bæjarráðs að at-
vinnumálanefnd og ferðamála-
nefnd verði lagðar niður en í stað
þeirra ráðinn einn atvinnu- og
ferðamálafulltrúi. Friðrik segir að
þeim peningum sem árlega renna
til Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
væri betur varið til að kosta þenn-
an starfsmann og með því móti
mætti auka mjög skilvirkni á þessu
sviði innan bæjarkerfisins.
Isíðasta blaði var greint frá hug-
myndum Siglfirðinga um jarð-
göng til Héðinsfjarðar og Ólafs-
fjarðar til að tengja bæinn hinu ey-
firska atvinnusvæði. Siglfirðingar
láta þó ekki þar við sitja. Nú hafa
þeir óskað eftir aðild að samein-
ingarviðræðum sveitarfélaganna
við utanverðan Eyjafjörð og virð-
ist fátt því til fyrirstöðu að þeir eigi
þar sinn fulltrúa.
Félagar í Leikfélagi Dalvíkur
æfa þessa dagana undir stjóm
Þráins Karlssonar kabarett þar
sem gert er grín að mönnum og
málefnum á Dalvík og í Svarfaðar-
dal. Mikið er um söng og músík og
koma um 20 manns við sögu í sýn-
ingunni. Það er Bergljót Hreins-
dóttir rithöfundur á Dalvík sem
mestan heiður á af leiktexta. Áætl-
að er að framsýna verkið í Ungó
laugardaginn 4. nraí nk.
Friðlandsbæklingurinn sem
ferðamálanefnd Dalvíkur hefur
unnið að upp á síðkastið er nú á
lokastigi hjá Iceland Review. í
sumar verður væntanlega unnið að
því að skipuleggja aðstöðu fyrir
fuglaskoðendur í Friðlandinu og
eru væntanlegir hingað enskir sér-
fræðingar á þessu sviði sem verða
rnunu ferðamálanefnd innan hand-
ar um skipulagið.
Norðurströnd hf. með Þorstein
Aðalsteinsson framkvæmda-
stjóra í broddi fylkingar hefur
keypt fiskhúsið við Ránarbraut
sem áður var í eigu Vinar s/f. Fyr-
irtækið mun á sumrinu flytja starf-
semi sína úr leiguhúsnæði sem það
hefur haft í fiskhúsi Stefáns Rögn-
valdssonar hf. Sæplast hefur haft
Vinarhúsið á leigu að undanfömu
en eins og kunnugt er munu þeir
stækka verksmiðjuhúsnæði sitt í
sumar þannig að þörfin fyrir leigu-
húsnæði verður minni fyrir þá.
Snjólaug Vilhelmsdóttir, íþrótta-
maður UMSE 1996.
íþróttir
Sigursæl-
ir Dalvík-
Einlægar þakkir til ykkar allra sem senduð
okkur samúðar- og vinarkveðjur eða á annan
hátt heiðruðuð minningu
Hjartar E. Þórarinssonar
Tjörn
við andlát og útför hans
Sumarkveðjur
f.h. fjölskyldunnar
Sigríður Hafstað
Frá Bílaverk-
stæði Dalvíkur
Sumardekk í úrvali
íngar
Bón og hreinsivörur
Sveinn Brynjólfsson skíðamaður
frá Dalvík tryggði sér brons-
verðlaun í svigi og stórsvigi á
skíðalandsmóti sem haldið var í
Hlíðarfjalli helgina eftir páska.
Jafnhliða landsmóti var haldið
annað skíðamót í fjallinu og
nældi Sveinn þar í fjórða sætið í
stórsvigi. Fleiri Dalvíkingar stóðu
sig mætavel þó ekki kæmust
fleiri á verðlaunapalla. Björgvin
Björgvinsson varð sjötti í svigi
en hann er aðeins 15 ára. Hann
keyrði út úr brautinni í stórsvigi.
I Kvennaflokki lenti Eva Björk
Bragadóttir í fímmta sæti í svigi
en féll úr keppni í stórsvigi.
Á ársþingi UMSE helgina eftir
páska var frjálsíþróttakonan frækna,
Snjólaug Vilhjálmsdóttir kjörin
íþróttamaður UMSE. I öðru sæti
var Omar Kristinsson ungmenna-
félaginu Æskunni en í þriðja sæti
var Agnar Snorri Stefánsson hinn
kornungi knapi í hestamannafélag-
inu Hring.
Smur-, loft- og elds-
neytissíur í flestar
gerðir bifreiða
Hjólkoppasett á
mjög góðu verði
Gleðilegt sumar
Bílaverkstæði Dalvíkur