Norðurslóð - 26.03.2002, Síða 1
Leikfélag Dalvíkur
Sex í sveit gengur vel
Deild úr Lands-
byggðin lifi í
Dalvíkurbyggð
Föstudaginn 8. mars s.l. var
stofnaö félag í Dalvíkurbyggð
sem er aðili að samtökunum
Landsbyggðin lifi. I samræmi
við markmið heildarsamtak-
anna mun félagið vinna að efl-
ingu byggðar og að hvers kyns
velferðarmálum á félagssvæð-
inu.
Félagið leggur áherslu á að
efla umræðu meðal almennings
um málefni byggðarinnar og að
auka þannig þátttöku almenn-
ings og áhrif á stefnumótun.
Það vill styðja frumkvæði ein-
staklinga og félagasamtaka til
alls sem til framfara horfir undir
kjörorðinu: Við sköpum framtíð
okkar. Félagið beitir sér fyrir
fræðslu um málefni sem varða
byggðarlagið miklu.
Nafn félagsins hefur ekki ver-
ið ákveðið og er óskað eftir
uppástungum. Til bráðabirgða
er félagið kallað Framfarafélag
Dalvíkurbyggðar.
Á stofnfundinum var kosin
stjórn félagsins. Hana skipa
Ragnar Stefánsson, Laugasteini
formaður, Sveinn Jónsson, Ytra-
Kálfsskinni og Rafn Arnbjörns-
son, Dalvík. í varastjórn eru
Helga Bryndís Magnúsdóttir,
Bakka og Þorgils Gunnlaugs-
son, Sökku II.
Stjórnin leggur áherslu á að
fá sem flesta til að starfa með sér
sem fyrst. Eru menn beðnir að
tilkynna um áhuga sinn með því
að hafa samband við einhvern
stjórnarmanna. Hvers kyns hug-
myndir um verkefni félagsins
eru líka vel þegnar.
Stefnt eí að málþingi og opn-
un hugmyndabanka snemma í
apríl, líklega í Ytri-Vík á Ár-
skógsströnd. Upphitun fyrir um-
ræðuna og slökun eftir hana
verður í heitum pottum á staðn-
um.
Þeir sem skrá sig í félagið
fram að umræddu málþingi
verða stofnfélagar og, það sem
meira er, fá tækifæri til að taka
þátt í skemmtilegri undirbún-
ingsvinnu, segir í frétt frá félag-
inu sem Norðurslóð barst.
endalausum misskilningi og
orðaleikjum sem kitla hlátur-
taugar leikhúsgesta.
I þessari sýningu þreyja þrír
af sex leikurum frumraun sína á
sviði og raunar gildir það sama
urn leikstjórann, Ármann Guð-
mundsson. Hann hefur leikstýrt
sæmrri sýningum en Sex í sveil
er fyrsta leikritið í fullri lengd
sem hann tekst á við. Svo er hins
vegar að sjá að enginn viðvan-
ingsbragur sé á þessari sýningu, í
það minnsta gefur aðsóknin það
ekki til kynna.
Sex í sveit verður sýnt
þrívegis um páskana, á miðviku-
dagskvöldið fyrir skírdag, laug-
ardagskvöld og að kvöldi annars
í páskum.
Skíða-
landsmót
Það er skammt stórra högga á
milli í menningarlífinu hér við
utanverðan Eyjafjörð. Fyrst er
það Svarfdælskur mars, svo
páskar og þegar þeim er rétt
lokið hefst Skíðamót Islands
sem haldið er á Dalvík og í Ól-
afsfirði að þessu sinni.
Landsmótið verður sett í Dal-
víkurkirkju að kvöldi fimmtu-
dagsins 4. apríl og svo verður
skíðað frá morgni og fram eftir
degi þar til yfir lýkur á sunnu-
dagskvöld. Þá verður verðlauna-
afhending og lokahóf í Tjarnar-
borg í Ólafsfirði.
Félögin skipta með sér verk-
um þannig að stórsvig og risa-
svig verða á Dalvík en norrænu
greinarnar í Ólafsfirði.
26. ÁRGANGUR
Þriðjudagur 26. mars 2002
3. TÖLUBLAÐ
Haldið var ísmót á vegum Hestamannafélagsins Hrings á Hrísatjörn 17. mars sl. Ágœt þáttaka var í mótinu
þó veðráttan hefði mátt vera betri. I tölti sigraði Anton Páll Níelsson á Skugga en í skeiði sigraði Sveinbjörn
Hjörleifsson á Reyk. I barnaflokki sigraði aftur á móti Sigurbjörg Auðbjörnsdóttir á Oddi.
Leikfélag Dalvíkur hefur nú
sýnt gamanleikinn Sex í sveit níu
sinnum fyrir fullu húsi en verkið
var frumsýnt 23. febrúar. Leik-
ritið er eftir ítalskan höfund,
Marc Camclotti, og byggist á
Framlag til ferðaþjónustu á Dalvík
Kaflihúsið Sogn
opnað um hvítasunnuna - Gott kaffi, brauð,
súpur og réttur dagsins - en ekki bjórkrá
Sigurlín Kjartansdóttir hefur
keypt neðri hæðina í Sogni og er
þessa dagana í óða önn að inn-
rétta þar kaffihús bæjarbúum til
ómældrar gleði og ánægju.
Lína sagðist í samtali við blað-
ið lengi hafa átt sér þann draum
að setja á stofn lítið kaffihús og
núna hafi hún látið til skarar
skríða í kjölfar þess að hún seldi
íbúðarhús sitt og flutti í minna.
„Ég hef starfrækt veisluþjón-
ustu og þetta er svona byggt
utan um hana en ég hugsa mér
að starfrækja þarna kaffihús og
bóða upp á gott kaffi, brauð og
kökur og súpu og salat og ef til
vill rétt dagsins í hádeginu. Þá
verður hægt að panta kvöldmat
fyrir hópa og einstaklinga en ég
hef ekki hugsað mér að hafa
matseðil. Staðsetningin er nátt-
úrulega mjög fín og á sumrin er
þarna sólríkt og dásamlegt að
sitja úti á með kaffibolla.
Ég reikna með spila þetta svo-
lítið eftir hendinni. Ég sé fyrir
mér allskonar spennandi hluti:
upplestararkvöld við kertaljós
eða aðrar uppákomur, jólahlað-
borð og eitt og annað en þetta
verður aldrei pöbb. Það er alveg
á hreinu.“
Sigurlín hefur sjálf teiknað
breytingar á húsnæðinu í félagi
við dætur sínar og tengdasyni.
Ætla má að þarna verði sæti fyrir
50-60 manns. Um tímasetningu
opnunar segist Lína stefna að
því að systir hennar geti haldi
þarna fermingarveislu fyrir dótt-
ur sína á hvítasunnunni.
En hvað á barnið að heita?
„Húsið heitir náttúrulega
Sogn og mér finnst það fallegt
nafn. Ég hef allavega ekki enn
dottið niður á betra nafn en
Kaffihúsið Sogn,“ segir Lína,
Það sem vantaði
í leiðara blaðsins er þessu fram-
taki Línu fagnað sérstaklega
enda ljóst að „góð veitingahús
skipta meira máli en flest annað
í ferðaþjónustu“. Allar kannanir
sýna að ein af frumforsendum
þess að ferðaþjónusta þrífist er
að ferðafólki sé boðið upp á gott
að borða í huggulegu umhverfi.
hjhj
Tengdasynirnir Magnás Már Lárusson og Hjalti Hjaltason búnir að
rífa niður gömlu innréttinguna í Sogni og klárir fyrir uppbyggingu á
kaffihúsi.
Bæjarstjórn Dalvíkur-
byggðar hefur sett sér
menningarstefnu
- Sjá bls. 6
Svarfdælsk byggð & bær
Opnunartími:
Mán.-fös. 10-19.30 Matvöruverslun - rétt hjá þér
laug. 10 ■ 18 --------------------------------
sun. 13-17 Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1200
STÓRMARKADUR