Norðurslóð - 22.05.2002, Page 7
Norðurslóð - 7
Minning
Kristján Eldjám Þórarínsson
Fœddur 16. júní 1972 - Dáinn 22. apríl 2002
Ég vil með nokkrum orðum
minnast frænda míns Kristjáns
Eldjárns Þórarinssonar sem fell
frá í blóma lífsins og var til
moldar borinn þann 30. apríl sl.
Kristján var óvenju hæfileikarík-
ur og mikilvirkur tónlistarmaður
eins og glöggt hefur komið fram
í öllum þeim sæg minningar-
greina sem syrgjandi vinir hans
hafa ritað að undanförnu. Fyrst
og fremst bera þær þó vitni um
hve fádæma vinsæll og elskaður
hann var af öllum þeim sem nutu
samvista við hann.
Svarfaðardalur var honum
alla tíð afar kær og í Gullbringu
kom hann hvenær sem færi gafst.
Mér er minnistætt sumarið sem
hann bjó með föður sínum í
Gullbringu og stundaði sína
fyrstu verkamannavinnu í Salt-
húsinu á Dalvík. Þá var hann
varla nema 15-16 ára gamall.
Það átti vel við hann að vinna í
fiskinum en næsta sumar var
hann orðinn fastráðinn starfs-
maður Stuðmanna og varð fisk-
vinnslan þar að sjá á eftir einum
af sínum efnilegustu liðsmönn-
um. Síðar átti hann eftir að
starfa við blikksmíðar meðfram
gítarnámi sínu og þótti mörgum
öðrum en Eldjárni sjálfum
blikkið vart samboðið fingrum
gítarleikarans. Áður en hann
lagði blikksmíðarnar á hilluna
smíðaði hann þó þakrennur
ágætar sem settar skyldu upp
þegar Gullbringa yrði aukin og
endurbætt. Eftir að Eldjárn kom
frá gítarnámi í Finnlandi kom
hann og hélt einleikstónleika í
DaMkurkirkju en minnisstæð-
ara er þó ljóðakvöldið sem þeir
Gullbringufeðgar héldu hér. Þar
las Þórarinn upp úr ljóðum sín-
um en Eldjárn spann undirleik á
rafgítarinn svo úr varð stórbrot-
inn vefur orða og undrahljóða
ógleymanlegur þeim fjölmörgu
sem fylltu Café Menningu þetta
bjarta sumarkvöld. Eldjárn háði
harðskeytta og hetjulega baráttu
við krabbamein en þegar sýnt
var að endalokin væru ekki langt
undan og meinið hafði svipt
hann flestu öðru en eldklárum
huganum, húmornum og æðru-
leysinu þá óskaði hann þess að
komast norður í Svarfaðardal.
Hingað kom hann í tvígang að
áliðnum vetri til dvalar ásamt
sínum nánustu og auðnaðist þá
m.a. að líta aftur Gullbringu
aukna og endurbætta og þak-
rennurnar góðu loksins komnar
á sinn stað.
Ég er þakklátur fyrir kynni
mín af þessum einstaka frænda
mínum, allar okkar skemmtilegu
samverustundir og ekki síst þá
daga sem hann dvaldi hér í hús-
inu nú í vetur. Fjölskyldu hans
sendi ég mínar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Hjörleifur Hjartarson
Hann Kristján Eldjárn gítarleik-
ari, nafni minn og frændi, og vin-
ur okkar er dáinn, í blóma lífsins.
Það var fyrir tveimur árum, í
júní 2000, að hann kom norður í
Svarfaðardal til að vinna með
okkur að upptökum á hljóm-
diskinum „Þvílík er ástin“. Það
hafði verið löngu ákveðið að
hann sæi um gítarleikinn á disk-
inum, og raunar átti Eldjárn
mjög stóran þátt i þeirri vinnu
allri, bæði við upptökurnar og
ekki síður við eftirvinnsluna
ásamt með Sveini Kjartanssyni
upptökustjóra. Fagleg vinnu-
brögð, gáskafull tilraunastarf-
semi og gleði ríkti þessa daga
fyrir norðan, sem skilaði sér í
frumlegum og góðum undirleik
á diskinum. Það var ógleyman-
legt að taka þátt í samstarfi þess-
ara góðu tónlistarmanna, Eld-
járns, Jóns Rafnssonar og
Daníels Þorsteinssonar, og eru
þessi augnablik eins og minning-
arperlur sem maður geymir í
hugskoti sínu, meðan maður lif-
ir. Ekki grunaði okkur þá um
veikindi hans sem voru farin að
gera vart við sig.
Eftir að diskurinn kom út
héldum við tvenna tónleika fyrir
norðan og eina á Kaffi Reykja-
vík. Þá vissi hann hvers kyns
sjúkdómurinn var en leyndi okk-
ur því. Hann vildi ekki láta sitt
stríð skyggja á okkar gleði. Við
kvöddumst eftir tónleikana með
þeim orðum að næst yrði það
tangódiskur. Hann var þegar
byrjaður að undirbúa hann. Nú
er það okkar að halda verkinu
áfram.
Við sem þekktum Eldjárn og
fengum tækifæri til að starfa
með honum í tónlistinni, vissum
að þar var mikill og næmur lista-
maður. En honum var ekki gef-
inn tími til að kynna sig fyrir
heiminum og heimurinn fékk
ekki tóm til að kynnast honurn.
Eldjárn mun ætíð eiga sér-
stakan stað í hjarta okkar.
Við sendum fjölskyldu Kristj-
áns Eldjárns okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Kristján og Kristjana
Árósum Danmörku
Sveitarstjórnar-
kosningar
25. maí 2002
Kjörskrá
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkur-
byggð 25. maí n.k. liggur frammi almenningi til sýnis,
skv. 9. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna, í
afgreiðslu bæjarskrifstofu í Ráðhúsinu Dalvík á
venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10-
15, frá og með 15. maí n.k. fram á kjördag.
Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá á
bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu fram á kjördag.
F.h. bæjarstjórnar
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð
Lóðahreinsun
Starfsfólk Vinnuskóla mun fara um þéttbýli Dalvíkur-
byggðar dagana 23. og 24. maí og fjarlægja garða-
úrgang sem komið hefur verið að lóðamörkum.
Athugið að einungis verður tekinn sá úrgangur sem er
í ruslapokum og greinar og afklippur sem bundnar eru
í knippi eða auðvelt er að fjarlægja.
Skráning lóðasláttar er hafin hjá ellilífeyrisþegum og
öryrkjum. Hægt er að sækja um slátt á bæjarskrif-
stofunni eða hjá garðyrkjustjóra í síma 466-1224.
Kristín Björk Gunnarsdóttir
garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar
Símar: 466 1224 og 864 0013
Sparnaðarform 21. aldarinnar
• Séreign sem erfist
Framlög hvers sjóðfélaga eru séreign hans, auk vaxta og
verðbóta. Við fráfall sjóðfélaga gengur séreign í erfðir.
• Viðbót á lífeyri
Allir hafa möguleika á því að greiða í séreignarsjóð og
bæta lífeyriskjör sín með tiltölulega lágu mánaðarlegu
viðbótariðgjaldi.
• Skattalegt hagræði
Iðgjald í séreignarlífeyrisjóð er frádráttarbært frá tekju-
skattsstofni og hvorki þarf að greiða fjármagnstekju-
skatt né eignarskatt af inneigninni. Skattgreiðslum er
frestað til efri áranna þegar persónuafsláttur nýtist
yfirleitt betur.
• Sveigjanlegur útgreiðslutími
Útgreiðsla getur hafist hvenær sem er eftir sextugt og
skal dreifast jafnt fram til 67 ára aldurs. Við 67 ára aldur
er hægt að fá allan sparnaðinn greiddan út í einu ef
óskað er.
Áskriftarreikningur
Hentar þeim sem vilja stunda reglubundinn sparnað og njóta góðrar ávöxt-
unar - án nokkurs kostnaðar. Áskrift ber háa vexti og er hentug fyrir þá sem
þurfa aðhald við langtímasparnað. Engar kröfur eru gerða um lágmarks-
upphæð þannig að reikningseigandi sparar þá upphæð sem honum hentar.
Sparisjóður Svarfdæla
Áskriftarsími Norðurslóöar
er 466 1555
Dalvík
460 1800
hrísey
466 1700