Norðurslóð - 26.06.2002, Qupperneq 5
Norðurslóð - 5
Verk á vegi þínum
Nýlega kom út bók sem heitir
„Verk á vegi þímim“ og hefur
hún að geyma um 100 myndir og
umsagnir um valin steinsteypt
hús eða mannvirki hér á Islandi.
Það er félagsskapur sem heitir
Steinsteypufélag Isiands sem
gefur þetta rit út en Gísli Sig-
urðsson, blaðamaður og ritstjóri
Lesbókar Morgunblaðsins til
skamms tíma hafði ritstjórn
bókarinnar með höndum.
í formála sem Gylfi Sigurðs-
son formaður Steinsteypufélags
íslands ritar kemur fram að fé-
lagið er 30 ára um þessar mundir
og eins og segir í formálanum
„Það fer vel á því að fagna þess-
um tímamótum með útgáfu bók-
ar, sem sýnir fjölbreytta og metn-
aðarfulla notkun steinsteypu á
síðustu öld í máli og myndum.
Bókinni er einkum ætlað að vera
ferðalöngum á ferð um landið til
gagns og gamans.“
Bókin hefur að geyma um-
sagnir og góðar myndir af mann-
virkjum um allt land. Umfjöllun
um þessa bók í morgunþætti
Rásar 2 vakti athygli tíðinda-
manns Norðurslóðar því þar
kom fram að umsjónarmenn
þáttarins, þau Hjálmar Hjálm-
arsson og Svanhildur Hólm,
höfðu mest dálæti á myndum og
umfjöllun um Sundskála Svarf-
dæla og Ráðhúsið á Dalvík.
Þetta varð til þess að við höfð-
um upp á bókinni og hér til
hliðar birtum við síðuna þar sem
fjallað er um þessi mannvirki.
Það er mjög merkilegt að tvö
hús skuli vera valin af þessu
svæði í bókina og með það get-
um við verið ánægð. Þetta er af-
skaplega eiguleg bók til að hafa
með sér á ferðalagi auk þess sem
hún er mjög fróðleg. Bókin hef-
ur einnig verið gefin út á ensku.
JA
Glaðbeittur hópur við Effel-tuminn.
Á innfelldu myndinni er hópurinn í
garðveislu hjá Tótu og nóg af
franskbrauði.
Þar fyrir neðan eru Viggi og Tóta í
rússíbananum í Disneylandi.
Kennarar og nemendur Dal-
víkurskóla hafa verið á ferð
og flugi í vor. 10. bekkingar fóru í
sína árvissu útskriftarferð og í
þetta sinn var henni heitið til
Frakklands. Fyrstu dögunum
eyddi hópurinn í París þar sem
skoðaðar voru merkar byggingar
og söfn en síðan lá leiðin suður til
smábæjar í Auvergne-héraði sem
heitir Movicq. Þar dvaldi hópur-
inn í húsi Þórunnar Þórðardóttur
og undi hag sínum hið besta.
Kennarar og starfsfólks Dal-
víkurskóla og Sundlaugar
Dalvíkur héldu síðan í kynnisferð
til Hollands 4.-11. júní. Skoðaðir voru skólar í Rotterdam og Amster-
dam undir leiðsögn Hermínu Gunnþórsdóttur og einnig voru borg-
arlífinu gerð góð skil.
Hjá tæknideild bæjarins fengust þær upplýsingar að hitaveitan
væri þessa dagana að undirbúa hringtengingu vatns við Staðar-
hól sem eykur vatnsstreymi við Ránarbraut. Gatnaframkvæmdir
verða í sumar einskorðaðar við viðhald. Afram verður haldið við
endurbætur á Húsabakka og unnið er að nýju deiliskipulagi fyrir
sveitarfélagið. Sótt hefur verið um byggingu eins íbúðarhúss við
Skógarhóla en byggingafyrirtæki eru mest í verkefnum á Akureyri
þessa dagana sem kunnugt er.
Golfklúbburinn Hamar ætlar að setja upp aðstöðu til golfiðkunar
á túninu fyrir ofan Heilsugæsluna. Þar verða settar niður 3-4
holur svo unglingar og aðrir byrjendur geti æft sig í golfíþróttinni.
Kvennahlaup ÍSÍ fór fram þann 16. júní hér á Dalvík eins og víðar
á landinu. 180 konur tóku þátt í hlaupinu sem er nokkru minna
en áður en engu að síður ágæt þátttaka. Hlaupinn var 2,5 km hringur
innanbæjar.
Dalvíkurbyggð
Frá Gæsluvell-
inum á Dalvík
Gæsluvöllurinn viö Svarfaöarbraut er opinn í
sumar fyrir börn á aldrinum 2ja-8 ára frá kl. 13:00-
17:00. Gjald kr. 250 á dag.
Gæsluvöllurinn sími: 466 1209.
Forstöðumaður
Sundskáli Svarfdæla
Hönnuður: Svcinbjörn Jónsson
byggingameistari, kenndur við Ofna-
smiðjuna. Framkvæmd: Arngrímur
Jóhannesson Dalvík, en mikil sjálf-
boðavinna var einnig lögð af mörk-
um við framkvæmdina.
í Laugahlíð í Svarfaðardal, 5—6 km
frá Dalvík, er volg laug og árið 1929
réðust Svarfdælingar í að nýta vatnið
og byggðu sundskála. Var steypan öll
hrærð á staðnum. Skálinn var múr-
liúðaður, en óeinangraður í upphafi,
og því oft mikill raki á veggjum. Úr því hefiir nú verið bætr. Sundskálinn er enn í góðu gildi; laugin 12,5 x 7 m og
dýpst er hún nú rúmlega 1.50 m, en var upphaflega um 3,0 m og steypt brú yfir hana. Nýlcga hafa verið byggðir
búningsklefar við sundskálann sem er töluvert notaður, einnig við sundkennslu.
Ráðhús á Dalvík
Arkitekt: Karl Erik Rocksén. Burðar-
þolshönnun: Davíð Arnljótsson Dal-
vík. Framkvæmd: Tréverk Dalvík.
Framkvæmdir hófust við Ráðhúsið
1975 og það var tekið í notkun 1980.
Við uppslárr voru noruð krossviðs-
mót, en veggir síðan pokapússaðir og
málaðir. Hér er nútíma stcinstcypu-
hús á fallegum stað. I því eru Bæjar-
skrifstofur Dalvíkur, Sparisjóður
Svarfdæla og skrifstofur lleiri aðila. 1
kjallara er Héraðsskjalasafn og Bóka-
safn Dalvíkur. Fundarherbcrgi cru á
efstu hæðinni, sem er inndregin.
Lífsval
Sparnaðarform 21. aldarinnar
• Séreign sem erfist
Framlög hvers sjóðfélaga eru séreign hans, auk vaxta og
verðbóta. Við fráfall sjóðfélaga gengur séreign í erfðir.
• Viðbót á lífeyri
Allir hafa möguleika á því að greiða í séreignarsjóð og
bæta lífeyriskjör sín með tiltölulega lágu mánaðarlegu
viðbótariðgjaidi.
• Skattalegt hagræði
Iðgjald í séreignarlífeyrisjóð er frádráttarbært frá tekju-
skattsstofni og hvorki þarf að greiða fjármagnstekju-
skatt né eignarskatt af inneigninni. Skattgreiðslum er
frestað til efri áranna þegar persónuafsláttur nýtist
yfirleitt betur.
• Sveigjanlegur útgreiðslutlmi
Útgreiðsla getur hafist hvenær sem er eftir sextugt og
skal dreifast jafnt fram til 67 ára aldurs. Við 67 ára aldur
er hægt að fá allan sparnaðinn greiddan út í einu ef
óskað er.
Áskriftarreikningur
Hentar þeim sem vilja stunda reglubundinn sparnað og njóta góðrar ávöxt-
unar - án nokkurs kostnaðar. Áskrift ber háa vexti og er hentug fyrir þá sem
þurfa aðhald við langtímasparnað. Engar kröfur eru gerða um lágmarks-
upphæð þannig að reikningseigandi sparar þá upphæð sem honum hentar.
SPARlSJÓðUR SVARFDÆLA
Dalvík hrísey
460 1800 466 1700