Norðurslóð - 26.06.2002, Qupperneq 6
6 - Norðurslóð
Tímamót
Skírnir
Þann 25. maí var skírður í Vallakirkju Alexander EIí. Foreldrar
hans eru Anna Berglind Sveinbjörnsdóttir og Sigvaldi Gunn-
laugsson, Bjarkarbraut 1, Dalvík.
Þann 31. maj var skírður í Dalvíkurkirkju Viktor Smári. Foreldr-
ar hans eru Össur Willardsson og Halldóra Smáradóttir til heim-
ilis að Vestursíðu 20, Akureyri.
Þann 6. júní var skírður í Dalvíkurkirkju Viktor Máni. Foreldrar
hans eru Magdalena Ýr Valdimarsdóttir og Davíð Eggertsson,
Ásgarði, Dalvík.
Afmæli
Þann 11. júní varð 75 ára Almar Jónsson,
Karlsrauðatorgi 12, Dalvík.
Norðurslóð árnar heilla.
Andlát
Þann 22. maí sl. andaðist á Dvalarheimilinu á Grund í Reykjavík
Jófríður Hulldórsdóttir hjúkrunarkona. Jófríður fæddist í Svarf-
aðardal 2. janúar 1915. Foreldrar hennar voru hjónin Halldór
Sigfússon múrari á Dalvík og Guðrún Júlíusdóttir frá Syðra
Garðshorni.
Þann 16. maí sl. andaðist á heimili sínu í Hafnarfirði Eiríkur Páls-
son fv. bæjarstjóri þar og síðar skattstjóri um árabil. Eiríkur var
fæddur í Ölduhrygg í Svarfaðardal 22. apríl 1911. Foreldrar hans
voru Páll Hjartarson og Filippía Margrét Þorsteinsdóttir. Þau
bjuggu í Ölduhrygg 1909-1933.
Þann 4. júní sl. lést í Dalbæ Aðalheiður Þor-
leifsdóttir. A11 a eins og hún var j afnan kölluð
« fæddist þann 12. september 1918 á Hóli á
■ » Upsaströnd. Foreldrar hennar voru hjónin
n Svanhildur Björnsdóttir frá Selaklöpp í Hrís-
1 ey og Þorleifur Kristinn Þorleifsson frá Hóli.
: Alla var þriðja í röð átta systkina. Systkini
hennar eru: Guðrún Margrét, látin, Þórgunn-
| ur Amalía, látin, Dagmann, látinn, Björn,
smiður á Dalvík, Kristinn Hartmann, neta-
gerðarmaður á Dalvík, Karl Vernharð, látinn og Krislín, hús-
móðir á Dalvík.
Alla naut hefðbundinnar skólagöngu á æskuárum en byrjaði
fljótlega að vinna fyrir sér. Þegar hún er um tvítugt er á Hóli
vinnumaður, Gunnar Kristinn Guðlaugsson. Þau felldu hugi
saman og gengu í heilagt hjónaband þann 2. apríl 1940. Gunnar
Kristinn er fæddur þann 19. maí 1917. Hann er lærður múrari.
Kristinn og Alla unnu saman á vertíðum í Sandgerði um þriggja
ára skeið en komu norður aftur er þau eignuðust soninn Atla
Rafn árið 1947. Hann var kvæntur Guðrúnu Ernu Hreiðars-
dóttur, þau slitu samvistum; börn þeirra eru: Þórdís Björk, fædd
1971, hún býr í Reykjavík, Aðalheiður f. 1975, er við nám í arki-
tektúr í Þýskalandi, Kristinn Gunnar, f. 1982, stundar nám við
Kvennaskólann í Reykjavík. Alla og Kristinn byggðu sér hús að
Karlsbraut 6 á Dalvíic og fluttu þar inn árið 1950.
Alla starfaði lengstum ásamt húsmóðurstörfum við fiskverk-
un, lengstaf hjá frystihúsi KEA hér í bæ en þar mun hún hafa
starfað rúm fjörutíu ár. í nóvember síðastliðnum fluttist hún að
Dvalarheimili aldraðra í Ólafsfirði, Hornbrekku, en þann 8. jan-
úar síðastliðinn fluttu þau Alla og Kiddi á Dalbæ þar sem Álla
lést þann 4. júní síðastliðinn. Útför hennar fór fram frá Dalvíkur-
kirkju 15. júnf.
Þann 17. júní sl. andaðist á dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri Jóhanncs Haraldsson.
Jóhannes fæddist að Þorleifsstöðum 13.
ágúst 1916. Foreldrar hans voru hjónin Har-
aldur Stefánsson og Anna Jóhannesdóttir
lengst af bændur í Ytra Garðshorni. Jóhann-
es kvæntist 7. nóv. 1942 Steinnunni Péturs-
dóttur frá Brekkukoti. Þau bjuggu í Lauga-
hlíð 1947-1958 en fluttu þá til Dalvíkur þar
sem hann var lengst af starfsmaður hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga. Börn þeirra eru:
Kristinn, f. 1953 lektor við háskólann í Gautaborg, Pétur f. 1947
fulltrúi hjá alþýðuleikhúsinu í Gautaborg, Sigurjóna f. 1951 leik-
skólakennari á Akureyri og Anna, f. 1959 leikskólasérkennari á
Akureyri. Jóhannes og Steinunn fluttu til Akureyrar 2002. Útför
hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. júní kl. 13:30.
í síðasta blaði misritaðist nafn brúðgumans Svavars Arnar Sig-
urðssonar og hann sagður heita Sævar. Biðjum við Svavar og
Nenitu konu hans velvirðingar.
Fréiiai ioiln
Lína viö skenkinn með starfsstúlkum sínum, Díönu Hrund Jónsdóttur
og Ingibjörgu Elínu Halldórsdóttur.
Kaffihúsið
Sogn hef-
ur störf
Kaffihúsið Sogn opnaði dyr sín-
ar fyrir soltnum og þyrstum á
sjómannadaginn síðasta eftir
gagngerar brcytingar á húsnæð-
inu sem eitt sinn hýsti Bárubúð
og síðar Sollubúð og síðan fleiri
verslanir. Sigurlín Kjartansdóttir
veitingakona sagði undirtektir
bæjarbúa hafa verið afar já-
kvæðar og hvetjandi en líklega
tekur tíma að venja Dalvíkinga
á kaffihúsasetur.
I Sogni er boðið upp á heita
súpu og salatbar auk kaffi-
drykkja af margvíslegum toga
og bakkelsis í mörgum sortum.
Þá stefnir Lína að því að bjóða
upp á heitan rétt í hádeginu en á
kvöldin geta einstaklingar og
hópar hringt og pantað sér mat
og verður þá við því brugðist.
Kaffihúsið er opið frá 11-9 virka
daga og frá 2-11 um helgar en
engum er þó beinlínis bolað út
þó komið sé fram yfir lokun.
Lína stefnir á ýmsar uppá-
komur svo sem gestakokka og
að listamenn troði upp. Þann 17.
júní var boðið upp á pizzahlað-
borð í samvinnu við Tommuna
og voru undirtektir slíkar að
sögn Línu að áreiðanlega verður
á því framhald. Sæti eru fyrir 55
manns í salnum en auðveldlega
má koma 70 manns að borðum
ef þannig ber undir.
Nú þegar hafa farið þar fram
skírnarveisla og fermingarveisla
en auk þess hefur Lína haft í
nógu að snúast í veisluþjónust-
unni sem hún starfrækir sam-
hliða veitingarekstrinum. Salur-
inn varð reyndar fyrir nokkru
áfalli í vatnsviðrinu aðfararnótt
18. júní en stafn hússins þoldi
ekki vatnsganginn. Það verður
vonandi bætt, sagði Lína. Norð-
urslóð óskar Línu til hamingju
með staðinn og hvetur bæjarbúa
og gesti þeirra til að notfæra sér
þessa kærkomnu viðbót við
mann- og menningarlífið hér á
staðnum.
Helgi litli Halldórsson fékk að fara á bak með Daníel bróður sínum
og Guðrún Magnúsdóttir teymdi.
Leiklistarskóli Bandalags ís-
lenskra leikfélaga var starf-
ræktur á Húsabakka í byrjun
júnímánaðar eins og undanfarin
ár og voru nemendur skólans nú
ríflega 40 á þrem námskeiðum.
Einn hópur lærði leiklist hjá
Ástu Arnardóttur, annar lagði
stund á leikstjórn undir stjórn
Sigrúnar Valbergsdóttur en
þriðji hópurinn fékkst við leik-
ritun undir leiðsögn Karls
Ágústs Úlfssonar. Á lokahátíð
skólans voru svo frumfluttir 12
nýir íslenskir stuttir einþáttung-
ar eftir nemendur leiksmiðjunn-
ar í leikstjórn nemenda leik-
stjórnarnámskeiðsins leiknir af
þátttakendum í leiklistarnám-
skeiðinu og fleirum nemum
skólans. Bæjarsljórn Dalvíkur-
byggðar bauð svo þátttakendum
til kvökdverðar að Rimum.
júní var heldur kalsasam-
• ur þetta árið og báru há-
tíðarhöld í tilefni dagsins svip af
því. Hið árlega 17. júní hlaup fór
fram á íþróttavellinum en að
lokinni skrúðgöngu var hátíðar-
dagskrá með ávarpi fjallkonunn-
ar og hátíðarræðu dagsins fyrir
ofan kirkjuna. Hátíðarræðuna
að þessu sinni flutti Valdimar
Bragason bæjarstjóri. Skátar
buðu upp á tívolí í nepjunni og
hestamannafélagið leyfði krökk-
unum að stíga á bak en síðan var
fjölskylduskemmtun í Víkurröst.
Dagskrá dagsins lauk svo með
sundlaugarpartíi í sundlaug Dal-
víkur.
Munir og minjar
Á byggðasafninu í Hvoli er fjöldi muna sem bera
vitni um horfna starfshætti og margir þeirra
koma nútímabörnum ef til vill spanskt fyrir sjón-
ir. Iris Olöf Sigurjónsdúttir nýr safnstjóri byggða-
safnsins verður framvegis með fastan þátt í blað-
inu þar sem munum og minjum af safninu verða
gerð lítilleg skil. Einnig verða birtar myndir af
skrýtnum hlutum sem lesendur mega ráða í til
hvers voru notaðir. Ef þið hafið einhverjar upp-
lýsingar um munina hvetjum við ykkur til að hafa
samband við Irisi á byggðasafninu í síma 466-
1497 eða 892-1497.
Nr. 1340 - Sápuþeytari
Gefandi: Hallfríður Sigurjónsdóttir, Dalvík
Sápuþeytarar voru algengir á miðri 20.öld. Þá var
var sápan gjarnan í föstu formi og var hún oft
mjög hörð og sterk. Þá var gott að eiga sápuþeyt-
ara sem sápumolarnir voru settir í og síðan var
þeytt í vatni. Þannig var hægt að stjórna styrk-
leika sápuvatnsns og koma í veg fyrir að sápan
væri í kögglum í vatninu. Einkum notað við upp-
þvott á leirtaui.
Mynd 2. Hvað er þetta?