Norðurslóð - 31.07.2002, Blaðsíða 1
Knattspyrna
Hallar undan
fæti í deildinni
Leiftur/Dalvík komið ífallsæti í 1. deildinni og er
fallið út úr bikarkeppninni
26. ÁRGANGUR
MlðVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002
7. TÖLUBLAÐ
■ r jj . i fff AS.'f • ,s 4 •- . .15,
:fr,'-Y' ■
. V ■■ -
;}
Heldur hefur hallað undan fæti
hjá hinu sameinaða knatt-
spyrnuliði Dalvíkur og Leifturs í
Islandsmóti 1. deildar. Liðið er í
níunda og næstneðsta sæti deild-
arinnar með tíu stig eftir 11 leiki.
Þá er liðið fallið úr bikarkeppn-
inni eftir frækilega frammistöðu
þar sem liðið komst á fjórðungs-
úrslit.
Síðast þegar við sögðum frétt-
ir af okkar mönnum voru þeir á
blússandi siglingu: sátu í 2. sæti
deildarinnar og voru komnir í
16-liða úrslit bikarkeppninnar.
Eftir það hefur ekkert gengið
eftir og afrakstur mánaðarins í
deildinni er eitt jafntefli og fjórir
ósigrar.
Heimavöllurinn reyndist lið-
inu betri þennan mánuðinn því
þar fékkst eina stigið í 1:1 jafn-
tefli gegn Þrótti R. í 10. umferð.
Einnig átti liðið skilið að ná
amk. jafntefli gegn Breiðabliki
en gestirnir nöppuðu sigrinum
með því að skora á lokamínút-
um leiksins.
Gísli Jóhannsson
Gerir það gott í sveitatónlistinni
Hljómsveit hans, Big City, verður á hljómleikaferð um landið um verslunarmannahelgina
Það hefur lengi verið hald manna
að Skagstrendingar ættu einu
kántrýstjörnu landsins. Því fer
þó víðs fjarri því vestur í Banda-
ríkjunum í borg englanna, Los
Angeles, starfar svarfdælskur
tónlistarmaður, Gísli Jóhanns-
son (Daníelssonar) og heldur
þar úti vinsælli country and
western sveit er nefnist Big City.
Gísli er staddur hér á landi með
sveit sinni og gerir víðreist nú
um verslunarmannahelgina.
Fyrsta dansleik sinn hélt
sveitin á Players í Kópavogi s.l.
föstudagskveld, var þar rífandi
stemmning og línudans dansað-
ur um öll gólf. A sunnudags-
kvöldið var hún á Gauki á Stöng
við góðar undirtektir og nú gefst
okkur sveitungum Gísla sem og
öðrum Norðlendingum kostur á
að berja sveitina augum og eyr-
um því á fimmtudagskveldið
spila þeir félagar við Pollinn á
Akureyri. Síðan tekur við látlaus
spilamennska á verslunar-
mannahelgarhátíðum bæði á
Akureyri og að sjálfsögðu á
Kántrýhátíð í Mekka íslenskrar
kántrýtónlistar, Skagaströnd. Þá
liggur leiðin aftur suður yfir fjöll
á Gaukinn mánudagskvöldið
eftir verslunarmannahelgi en
tónleikaferðinni lýkur svo með
miklum hljómleikum í Stapa í
Reykjanesbæ.
Gísli eða Gis eins og Amer-
íkumenn nefna hann er 35 ára
og hefur verið búsettur vestra
undanfarin 13 ár. Hann hefur
lagt gjörva hönd á margt á þeim
tíma en einkum hefur hann þó
fengist við tónlist af ýmsum
toga. Hann lagði stund á jass-
gítarleik og hefur þó hin síðustu
ár jöfnum höndum fengist við
rokk og sveitatónlist og haldið
úti sitthvorri hljómsveitinni.
Jafnframt hefur hann haft ofan
af fyrir sér með uppsetningu á
hljóðkerfum fyrir tónleika og
ráðstefnur og tekið sér ýmislegt
annað fyrir hendur sem of langt
mál yrði upp að telja. Frá árinu
1999 hefur þó kántrýhljómsveit
hans, Big City, átt stöðugt meiri
vinsældum að fagna og spila þeir
nú jafnaðarlega þrjú kvöld í viku
í stórum danshöllum þar vestra
og hafa af því dágóðar tekjur.
Jafnhliða spilamennskunni
hefur Gísli alla tíð fengist við
lagasmíðar bæði fyrir sjálfan sig
og aðra og með í fórum sínum til
íslands hefur hann nú nýja plötu
með eigin lögum og textum.
Platan heitir BRING ME YOU
og geta þeir sem enn hafa ekki
haft tækifæri til að kaupa hana
heyrt sýnishorn af henni á
heimasíðu Gísla:
www.giscountry. com
hjhj
Þrír útileikir hafa hins vegar
farið illa. Fyrst var farið í Garða-
bæinn þar sem Stjarnan vann
okkar menn 2:0. Þá voru það
Mosfellingarnir í Aftureldingu
sem unnu 4:2 og loks tapaði lið-
ið stórt fyrir Val í höfuðborginni
á föstudaginn var, 4:0.
Valsmenn höfðu reyndar
harma að hefna í þeim leik því í
16-liða úrslitum bikarkeppninn-
ar gerðu okkar menn sér lítið
fyrir og unnu Sigurbjörn Hreið-
arsson og félaga hans 2:1.
í fjórðungsúrslitum dróst lið-
ið á móti ÍBV í Eyjum og taldist
óheppið að hafa ekki komist
lengra. Eyjapeyjar náðu að merja
sigur með einu marki gegn engu
og var markið skorað úr víta-
spyrnu fyrir atvik sem sumir
töldu að hefði frekar átt heima á
leiksviði en knattspyrnuvelli. En
þannig ganga kaupin á eyrinni
og okkar menn geta huggað sig
við að hafa komist lengra en
Dalvíkingar hafa komist áður
(Leiftur mun hafa komist
lengra).
Staðan í 1. deildinni er þessi
að 11 umferðum loknum:
Valur 11 10 1 0 25: 3 31
Afturelding 11 5 3 3 19: 18 18
Breiðablik 11 5 1 5 19: 17 16
Þróttur R.
Stjarnan
Haukar
Víkingur R.
ÍR
Leiftur/Dalv.ll
Sindri 11
11
11
11
11
11
19: 17 15
19: 21 15
17: 16 14
16: 16 14
9: 20 12
15: 20 10
11:21 8
Heldur er farið að teygjast úr
deildinni og staða Vals er hreint
ævintýraleg. Liðið hefur bara
stigið eitt feilspor í sumar, það
var bikarleikurinn gegn Leiftri/
Dalvík.
En okkar menn verða nú að
spýta í lófana í næstu leikjum.
Nú er að duga eða drepast.
-ÞH
Fiskídagurínn mikli
Á heimasíðu Gísla eða GisCountry er að finna upplýsingar um hann,
hljómsveitina og heimalandið.
10. ágúst verður mikil fiskveisla á Dalvík og búist við þúsundum gesta
Fiskidagurinn mikli er að bresta
á í annað sinn en hann verður
haldinn hátíðlegur laugardaginn
10. ágúst nk. Þá munu fiskverk-
endur og fleiri aðilar í Dalvíkur-
byggð bjóða gestum og gang-
andi upp á gómsæta fiskrétti á
hafnarsvæðinu á Dalvík.
Fiskidagurinn var fyrst hald-
inn í fyrra og þá fylltist bærinn af
gestum. Að sögn Júlíusar Júlíus-
sonar sem er framkvæmdastjóri
hátíðarinnar var gaman að sjá
hversu margir brottfluttir Dal-
víkingar komu í heimsókn. „Hér
hittist fólk sem hafði ekki sést
árum eða áratugum saman,“
sagði hann.
Júlíus leggur áherslu á að hér
sé ekki um auglýsingu að ræða
Fiskmetið fœrt upp á diska á
Fiskideginum mikla í fyrra. Þá
komu um 6.000 manns tilDalvík-
ur og skemmtu sér konunglega.
fyrir aðstandendur því einungis
einn þeirra selur fisk á innan-
landsmarkaði. „Þetta er fyrst og
fremst gert til að styrkja ímynd
fyrirtækja og íbúa byggðarlags-
ins,“ segir hann og bætir því við
að heimamenn bregðist vel við
þegar leitað sé eftir aðstoð við
undirbúning dagsins. Þegar
blaðamaður heimsótti Júlíus
stoppaði síminn varla. „Við aug-
lýstum eftir fólki sem vildi baka
fyrir okkur rúgbrauð með síld-
inni og það er fjöldi kvenna bú-
inn að hringja, bæði héðan af
Dalvík og langt framan úr dal,“
segir hann.
Að sjálfsögðu verður ýmis-
legt fleira gert til að skemmta
fólki annað en að gefa því að
borða. Boðið verður upp á söng
og dans og siglingu um fjörðinn
en um matreiðsluna sér einvala-
lið undir forystu Úlfars Ey-
steinssonar listakokks.
Opnunartími:
Mán.-fös. 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1200