Norðurslóð - 31.07.2002, Qupperneq 3

Norðurslóð - 31.07.2002, Qupperneq 3
Norðurslóð - 3 Þessi mynd er tekin á nyröra planinu eins og Múlaplanið var stundum kallað. Sérstök kúnst var að velta tómum tunnum og sumir náðu góðri leikni og hraða við það. Sólberg var sérstaklega laginn við þetta og hér er hann að nú tunnu á ferð. Við söltunina má þekka Jóhönnu í Ártúni nœst á myndinni og aftan við hana Stínu Steina Kidda sund, og það sést í Stínu Páls á bak við nöfnu hennar. Bróðurdœtur Stínu Páls (dœt- ur Gunnars), Sissa og Hrafnhildur eru þarna í kringum frœnku sína. Eifitt er að segja til um fleiri á myndinni. Hér að neðan er enn ein myndin af Múlaplaninu. Tobba í Tungu, eða Sœgrund, er hér að salta. Hún var alltaf í plássi númer 30 sem var einmittfyrir miðju plani. Ester Lárusar er hœgt að þekkja líka. Glaðlegir beikjar, Guji Lofts og Ámi í Reykholti. Þeirsettu alltaf svip á lífið á Múlaplaninu á þessum tíma. Guddi í Svœði í tunnuhrúgunni. Tómar tunnur voru fluttar á vörubíl- um innan frá Krossanesi og sturtað fram af bakkanum við Hafnar- brautina. Hér hefur safnast upp haugur af tunnum sem Guddi er byrj- aður að slá upp. Síðan voru tunnumar vatnaðar eins og það var kall- að; vatn látið standa í þeim til að þœr þéttust. Baldvin Þorvaldsson EA 24 kemur hlaðinn aþ landi. Myndin er tekin sumarið 1956 sem var fyrsta sumar skipsins á síld. Stjáni í Sól- heitt\um var með skipið og er hann vafalaust í stýrishúsinu. Hœgt er að þekkja Árna í Sœ- baklja við stýrishúsið og sennilega Ragga 'óns bograndi fyrir framan hann. I stafni má þekkja sfýrimanninn Gunna Krist, Kidda í rbakkaÁið hliðina á honum og síðan Óla 'ikki í Ásbyrgi er síðan út við prðstokkinn bakborðsmegin. 32321 Eitthvað er að nótinni af Baldvin Þorvaldssyni EA 24 og er hún dregin upp á litlubryggjuna til viðgerðar. Það eru skipverjarnir sem eru að draga hana á höndum sér. Hœgt er að þekkja bakhluta Árna Hermanns í Sœbakka og Gunni Krist er líka þekkjanlegur uppi á bryggjunni. Óli Jakobs er í nótabátnum fyrir enda bryggjunnar. Gömul augnablik Eins og í síðasta blaði eru hér á síðunni síldarmynd- ir úr safni Dengsa (Lofts Baldvinssonar) frá því á sjötta áratugnum. Það var mikið líf á Dalvík þau sumur sem síldin veiddist vel. Að þessu sinni var leitað til ýmissa aðila til að bera kennsl á fólkið á myndunum og yrði of langt mál að telja þá alla upp. Á þessari mynd sést vel fjöldinn sem saltaði á hverju plani. Myndin er tekin á Múlaplaninu og nœr svo til alla lengjuna sunnan frá og norður. Anna Amgríms og Ámý Frímanns sjást hér nœst á myndinni en erfitt er að þekkja fleiri. Það sem er hins vegar athyglisverðast á myndinni eru kassarnir sem síldin er í á bílnum. Þetta voru álkassar sem notaðir voru við löndun í stað tunnanna sem sagt var frá í síðasta blaði. Það var lok á hlið kassans sem opnað var svo síldin rann hœgt og rólega niður í kassann fyrirframan söltunarstúlk- umar. Hér er verið að salta á syðra planinu (Söltunarfélagi Dalvíkur). Svan- borg Jóns er lengst til vinstri. Kolla í Laxamýri setur hring á tunnu þar við hliðina. Fríða í Laxamýri mamma Kollu er að hausa fremst á myndinni og við hlið hennar Sína (Jóhannessína) kona Tryggva Jóns og síðan líklega Svanhvít dóttir hennar. Drengurinn framan við kass- ann er þá að öllum líkindum Jóhannes Tryggvi sonur Svanhvítar.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.