Norðurslóð - 31.07.2002, Qupperneq 6
6 - Norðurslóð
Tímamót
Skírnir
Þann 21. júní var skírð á Dalvík Lovísa Rut. Foreldrar hennar eru
Friðrikka Jakobsdóttir og Aðalsteinn Már Þorsteinsson (Aðal-
steinssonar), til heimilis að Svarfaðarbraut 17.
Þann 7. júlí var skírð í Dalvíkurkirkju Valgerður María. Foreldr-
ar hennar eru Júlíus Júlíusson og Gréta Arngrímsdóttir, til heim-
ilis að Karlsrauðatorgi 26, Dalvík. Séra Þorgrímur Daníelsson á
Grenjaðarstað skírði.
Þann 13. júlí sl. var skírð í Dalvíkurkirkju Kristrún Lilja. Foreldr-
ar hennar eru Sveinn Torfason og Guðrún Anna Oskarsdóttir.
Séra Elínborg Gísladóttir skírði.
Munir og minjar
Á byggðasafninu í Hvoli er fjöldi muna sem bera
vitni um horfna starfshætti og margir þeirra
koma nútímabörnum ef til vill spanskt fyrir sjón-
ir. Iris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggða-
safnsins í Hvoli gerir hér lítilleg skil munum og
minjum af safninu, auk þess sem birtar eru
myndir af skrýtnum hlutum sem lesendur mega
ráða í til hvers voru notaðir. Ef þið hafið ein-
hverjar upplýsingar um munina hvetjum við ykk-
ur til að hafa samband við Irisi á byggðasafninu í
síma 466-1497 eða 892-1497.
Nr. 215 - Eldingarvari
Gefandi: Pálmi Guðmundsson, Dalvík
Eldingarvarinn kom í veg fyrir að elding hlypi í
gegnum síma. Honum var komið upp innanhúss
við hlið símans og lá símalínan í gegnum hann.
Mynd 3. Hvað er þetta?
Brúðkaup
Þann 15. júní sl. gengu í hjónaband
Harpa Rún Jóhannsdóttir frá Atla-
stöðum og Kristján Örn Ólafsson,
Reykjavík. Athöfnin fór fram í Urða-
kirkju. Séra Jón Helgi Þórarinsson gaf
brúðhjónin saman. Heimili þeirra er í
Ljósuvík 52, Grafarvogi.
Þann 15. júní sl. voru gefin saman í
hjónaband í Stærri-Árskógskirkju
Gréta Björg Grétarsdóttir og Gunnar
Rafnsson. Heimili þeirra er að Öldu-
götu 21, Árskógssandi. Sr. Hulda Hrönn
gifti.
Þann 29. júní sl. voru gefin saman í
hjónaband í Stærri-Árskógskirkju
Berglind Rut Gunnarsdóttir (Gunnars
Antonssonar og Hafdísar á Hauganesi)
og Delton St. Louis. Heimili þeirra
verður að 32 Winthrop St„ Brooklyn,
NY 11225, USA. Sr. Hulda Hrönn gifti.
Þann 12. júlí sl. voru gefin saman í
hjónaband íTjarnarkirkju Petra Hrönn
Garðarsdóttir frá Kópaskeri og Örn
Kristjánsson,Tjörn. Harpa Ævarsdóttir
gaf brúðhjónin saman. Heimili þeirra er
í Kópavogi.
Þann 20. júlí voru gefin saman í Dalvíkurkirkju Gísli Bjarnason
og Margrét Líney Laxdal Bjarnadóttir, til heimilis að Bögggvis-
braut 12, Dalvík. -------------------------------
Bæjarpóst-
ur og TT í
eina sæng
Bæjarpósturinn á Dalvík og
Tröllaskagatíðindi, sameigin-
legt fréttablað fyrir Ólafsfjörð
og Dalvíkurbyggð, hafa nú rugl-
að saman reitum sínum og hófst
útgáfa á nýju sameinuðu frétta-
blaði þann 11. júlí sl.
Bæjarpósturinn hefur komið
út á Dalvík síðan 1985 en TT
hóf göngu sína á síðasta ári.
Fyrst í stað mun blaðið koma út
undir báðum nöfnunum eins og
segir í ritstjórnargrein. Að sögn
Guðmundar Inga Jónatans-
sonar ritstjóra er hér fyrst og
fremst um hagkvæmnisráðstöf-
un að ræða og heilbrigða skyn-
semi. Ekki verði teljandi breyt-
ingar á ritstjórnarstefnu blað-
anna en hann vonast til að það
þjóni nú enn betur en áður
kaupendum og auglýsendum.
Ritstjórar og blaðamenn
verða þrír, þeir Helgi Jónsson á
Ólafsfirði og Guðmundur Ingi
og Halldór Ingi Ásgeirsson á
Dalvík. Blaðið kemur út viku-
lega og er prentað í Víkurprenti
á Dalvík.
LlSTHANDVERK Á NORÖURSLÓð
Nostrur
Það eru textíllistakonurnar Ester Antonsdóttir og Greta Arn-
grímsdóttir sem kalla sig Nostrur og það ekki að ástæðulausu, því
þær vinna nostursamlega sína vöru. Þær hafa sérhæft sig í nytjahlut-
um til heimilisnota og prýði og vinna einungis í hör. Þær hanna meðal
annars svuntur, dúka, tehettur, gardínur, pottaleppa og fleira nytsam-
legt sem þær síðan skreyta með þrykki og útsaumi. Það sem gerir
muni þeirra svo sérstaka eru smekklegir litir og form auk þess sem
handbragðið er óaðfinnanlegt.
Þær eru búsettar á Dalvík og eru þar með vinnustofu. Þær taka við
sérpöntunum en selja auk þess vörur sínar í smærri galleríum.
Þann 20. júlí voru gefin sam-
an í Dalvíkurkirkju Jónína
Guðrún Jónsdóttir og Sig-
urður Rúnar Sigfússon, til
heimilis að Skógarhólum 20,
Dalvík.
Afmæli
Þann 2. júlí sl. varð 80 ára
Marinó Sigurðsson frá Búr-
felli, Svarfaðardal.
Þann 13. júlí sl. varð 80 ára
Björn Þorleifsson, Báru-
götu 12, Dalvík.
Norðurslóð árnar heilla.
Frá sóknarpresti
Þann 18. ágúst er fyrirhug-
uð messa í Hánefsstaðareit,
kl. 14:00.
íslensk útimálning
m
á frábæru verði
---—Hl
wPr ra
10 lítra útimálning
4.390
kr.
HUSASMIÐJAN
Sími 466 3204 • www.husa.is
Andlát - sjá bls. 4.
Verið velkomin...