Norðurslóð - 18.12.2002, Síða 3
Norðurslóð - 3
Danskur teiknari í Eyjafírði
íciknaði lands-
lag íslendinga-
sagnanna
Myndir þessar af Stólnum í
Svarfaðardal og Hraundröngum
í Öxnadal eru pennateikningar
eftir danska málarann Johannes
Larsen frá árinu 1930. Á þessar
slóðir var málarinn kominn vegna
myndskreytinga hans á úrvali ís-
lendingasagna sem kom út í Dan-
mörku á árunum 1930-32. Tvö
sumur, 1927 og 1930, ferðaðist
hann um ísland, að nokkru á bíl
en þó meira ríðandi. Hann
teiknaði ekki persónur Islend-
ingasagna heldur það landslag
sem var sögusvið þeirra og stóð
þarna óbreytt. Par á meðal var
/V 5 "
r
' ) v ■■
* •» ■ á 1 A
1 V 'i
\ \ \ f
\ J \ ’ \ ■ * J \
\ ' '
: ' í ‘ , *-V L ( \ -Á *
Þaö eru ekki bara rithöfundar sem mœra hesta í verkum sínum
eins og þessi mynd Louisu Matthíasdóttur er til vitnis um.
Bókmenntagetraun Norðurslóðar
Hestur er nefndur
En hver er knapinn?
Bókmenntagetraun Norðurslóðar tengist að þessu sinni
hestamennsku. Hestar hafa jafnan skipað veiganrikinn sess
í bókmenntum heimsins. íslenskum skáldum er hesturinn
einstaklega hugleikið yrkisefni enda hafa mörg þjóðskáld ort
fallega um reiðskjóta sína. Getraunin felst að þessu sinni í því að
nefndur er til skjalanna hestur og er þá ykkar, lesendur góðir, að
þekkja við hvaða hest er átt og nefna til skjalanna knapann (sem í
mörgum tilvikum er skáldið sjálft) og hvert bókmenntaverkið
(sagan eða kvæðið) er senr vitnað er til.
Tökum dæmi.
Hestur er nefndur Sleipnir-knapinn er að sjálfsögðu Óðinn og
bókmenntaverkið væri þá e.t.v. Gylfaginning Snorra Sturlusonar.
1. Kópur
2. Léttir
3. Grani
4. Baldur
5. Löpp
6. Vakri-Skjóni
7. Sörli
8. Freyfaxi
9. Gamli sorrí Gráni
10. Skjóna
Fyrri partar
Og botnið þið nú!
Eftir jólin oftast nær Víst er úti veður blítt
Árainótin verða Varla snjór á tjölluni.
myndin úr Svarfaðardal en ekki
kom hún í verkinu þar sem ekki
varð af útgáfu neinnar svarf-
dælskrar sögu.
Johannes Larsen (1867-1961)
var með þekktustu listamönnum
Dana um sína daga, sem málari,
teiknari og grafíker. Heimabær
hans var Kerteminde á Fjóni,
hann sótti myndefni sitt í jiiann
bæ og næsta nágrenni, alveg sér-
staklega ströndina með sitt ríka
fuglalíf. Auk annars fékkst hann
við skreytingar stássbygginga og
einnig myndskreytingar bóka.
Árið 1999 kom sonarsonur
málarans, Jens S. Larsen, í heim-
sókn. Hann setti upp sýningar á
myndum afa síns, í Reykjavík og
á Akureyri. Þá kom hann einnig
út í Svarfaðardal. Með í för voru
vinafólk hans, Hans og Vibeke
Nprgárd Nielsen frá smábænum
Nim á Jótlandi. Vibeke var þá
þegar kunnug hér, upphaflega
gegnum Einar Petersen á Kleif í
Þorvaldsdal, en kynntist síðan
Eddu Jensen frá Rauðuvík og
fleiri Árskógsstrendingum. Sá
vinskapur þróaðist m.a. upp í
gagnkvæmar heimsóknir kirkju-
kóranna af Nim og Árskógs-
strönd. Síðan hafa þau Vibeke
og Hans í Nim kynnst Kristjáni
og Kristjönu frá Tjörn sem nú
búa í Árósum.
Þau Vibeke og Hans sendu
Norðurslóð þessar teikningar
eftir Johannes Larsen, og með
þeim brot úr dagbók hans úr ís-
landsförinni 1930. Þar segir hann
frá gistingu sinni á Völlum í
Svarfaðardal, en þaðan teiknaði
hann Stólinn. Þar kemur fram að
bílfær vegur er hálfnaður frá Ak-
ureyri um þetta leyti. Ennfremur
er Ijóst að listamaðurinn hefur
verið mjög vakandi fyrir fuglalífi
og séð m.a.s. mjög fáséðan fugl
hér um slóðir, krossnef. Lítum
að endingu á þessa glefsu úr
dagbók Johannes Larsen.
23. ágúst.
Skýjað, sólskin. Ek með Ágústi í
Fagraskóg og fæ þaðan hesta út í
Velli í Svarfaðardal. Svartbakur
og æðarfuglar í þyrpingum á
firðinum. Teikna þúfutittling,
maríuerlu, smyril. Teikna fjallið
Stólinn, borða kvöldverð og gisti
á prestsetrinu að Völlum. Fagur
dalur. Falleg trékirkja frá fimmta
áratugnum, vel viðhaldin eins og
íbúðarhúsið. Hlaðið stórt. Skýj-
að er á leið daginn.
24. ágúst. Sunnudagur.
Teikna frá kl. 6 og fram að morg-
unmat. Þegar við leggjum af stað
með prófastinum sem á að
messa í Hrísey kemur krossnef-
ur, rauður L. curvirostra, og sest
í runna og birkitré við kirkjuna,
flýgur burt en snýr stax aftur á
sama stað. Við borðum súpu,
nautakjöt og rófur í hádegismat
og ríðum svo til Þorvaldsdals þar
sem ég teikna, þá í Fagraskóg og
drekkum þar kaffi en keyrum
síðan í Bægisá þar sem ég teikna
Öxnadal. Þ.Hj.
Tveir
nýir
diskar
Komin er út ný geislaplata
með upptökum af söng
Gests Guðmundssonar frá Gull-
bringu og síðar Karlsá. Upptök-
urnar eru flestar frá árunum
1963 til 1970. Þá eru á plötunni
nýlegar upptökur á lögum eftir
Gest sungnum af Karlakór Ból-
staðahlíðarhrepps sem Gestur
stjórnaði um árabil, einnig af
Svönu B. Karlsdóttur og af Gesti
sjálfum. Diskurinn verður til
sölu í Urvali á Dalvík og hjá
Friðriki Friðrikssyni, í Reykja-
vík hjá Kára Gestssyni og Brynju
Grétarsdóttur og hjá Gesti sjálf-
um á Blönduósi.
Og meira af plötuútgáfu.
Hljómsveitin Hundur í
óskilum hefur sent frá fér nýja
hljómplötu. Hljómsveitina skipa
þeir Eiríkur Stephensen og
Hjörleifur Hjartarson og hafa
þeir til margra ára haldið uppi
allsérstæðum tónlistarflutningi
víða um lönd. Platan er öll tekin
upp á einum tónleikum sem
hljómsveitin hélt í Laugaborg,
Eyjafjarðarsveit í júní í sumar.
Hún er til sölu í öllum betri
hljómplötuverslunum en einnig
má nálgast hana í Urvali og svo
heima hjá hljómsveitarmeðlim-
um.
Um síðustu helgi opnaði
Stefán Björnsson myndlist-
arsýningun í Ráðhúsinu á Dal-
vík. Myndirnar eru unnar með
blandaðri tækni á mörkum
skúlptúrs og málverks. Stefán
hefur um árabil gælt við mynd-
listina en ekki fengist mikið um
að sýna verk sín. Sýningin mun
standa út árið í það minnsta og
eru myndirnar allar til sölu.
Tónleikar
Karlakórs
Dalvíkur
Karlakór Dalvíkur heldur ór-
lega jólatónleika sína föstu-
dagskvöldið 27. desember. kl
20:30. Ásamt kórnum koma
fram tréblósararnir Vigdís
Klara Aradóttir og Guido
Baumer og harmónikkuleik-
arinn Kristof Olczek. Stjórn-
andi Karlakórsins er Guð-
mundur Óli Gunnarsson.
Sendum viðskiptavinum okkar og
velunnurum bestu óskir um
gleðileg jól ogfarsœld
á komandi ári
Happdrætti Háskóla íslands
vænlegast til vinnings!
Umboðið á Dalvík:
/
Röðull - Kristján Olafsson - Hafnarbraut 5 - S. 466 1434