Norðurslóð - 18.12.2002, Side 13
Norðurslóð -13
Gömlu hljóðfœriit í landinu voru íslenska fiðlan og langspilið. Þetta langspil átti Jón
Stefánsson í Hjarðarhaga en nú Níels Kristinsson, dóttursonur hans. Frímann Sigurðsson
smíðaði.
bóndi á Hóli. Þorleifur kemur við hljóð-
færasögu Svarfdæla sem brátt verður
drepið á. Hann spilaði á orgel en ekki
kom það að gagni því ekkert var kirkju-
orgelið á Upsum fyrr en 1916. Angantýr
Arngrímsson í Sandgerði var um skeið
forsöngvari í kirkjunni. Angantýr var son-
ur Arngríms málara í Gullbringu og Þór-
unnar Hjörleifsdóttur, mikill og góður
raddmaður.
Sá forsöngvari í Vallakirkju sem mest
orð fór af á 19. öld var Jónas Rögnvalds-
son, bóndi á Uppsölum, Hjaltastöðum,
Þverá í Skíðadal og víðar. I Svarfdœling-
um (I, 294) segir svo: „Þótti hann ágætur
söngmaður og ljóðaunnandi mikill ...
Hann var meðhjálpari við Vallakirkju um
árabil og forsöngvari um 30 ára skeið.“
Árið 1879 flutti Jónas til Skagafjarðar.
Stefán sonur hans mun hafa verið fyrsti
kirkjuorganisti í Skagafirði, segir Krist-
mundur í Sögu Dalvíkur (I, 216). Þegar
Jónas hvarf úr sókninni mun Eiríkur Páls-
son í Uppsölum, sem var mágur hans, hafa
gerst forsöngvari í kirkjunni (Vallakirkja,
13). En þá var þess skammt að bíða að
keypt yrði í hana orgel, fyrsta orgelið í
svarfdælskri kirkju, svo sem brátt mun
sagt veða.
Kvöldvökur og langspil
Stutt skoðun á söngmálum Svarfdælinga
styður ekki hugmyndina um sönglausan
tíma í dalnum. Búningur söngsins hefur
vissulega verið allur annar en sá sem við
þekkjum en söng hafa menn stundað
engu að síður. í ræðu sem áður er til vitn-
að sagði Þórarinn Kr. Eldjárn:
Er ég renni huganum til æsku minnar
og uppvaxtarára er það áberandi hvað
söngur var almennt iðkaður á heimil-
um... Við húslestra þótti eigi til hlýða
að nokkur sæti hjá sem annars hafði
nokkra söngrödd. Ekki var þetta þjálf-
aður söngur en söngur var það samt og
raddþjálfun því hver gerði sitt besta til
að samræmast hinum.
Snúum okkur þá að hljóðfæraslætti hér
í byggðinni á fyrri tíð. Lengi vel var ekki
um auðugan garð að gresja í því efni með
þjóðinni. Það sem einkenndi íslenska tón-
list a.m.k. fram á seinni hluta 19. aldar var
einmitt hljóðfæraleysið. Þau hljóðfæri sem
fram að því voru til í landinu voru ís-
lenska fiðlan sem þá var orðin mjög sjald-
séð og langspilið sem var nokkru algeng-
ara en líklega fremur sjaldgæft þó. Eg hef
litlar heimildir um langspil í Svarfaðardal.
Jóhann bóndi á Ingvörum spilaði þó á
langspil sem áður segir. Jón Stefánsson á
Hánefsstöðum og síðar í Hjarðarholti
smíðaði sér tvö eða þrjú langspil og er til
mynd af honum spilandi á það hljóðfæri
um 1940. Langspilin hafa sjálfsagt verið
fleiri þótt mig skorti heimildir um þau.
Þau voru hins vegar lítt notuð til undir-
leiks við söng svo varla hafa þau haft mik-
il áhrif á tónlistarlífið almennt.
Tónlistarbyltingin í landinu
Nú er þess að geta að Svarfaðardalur er
dalur á landinu, ekki eyja í hafinu. Allt
sem gerðist hér í tónlistarlegum efnum,
þá sem nú, var nátengt því sem var að ger-
ast í landinu að öðru leyti. Breytingarnar
gátu verið tiltölulega snemma eða tiltölu-
lega seint á ferðinni og einstakir þættir
þróunarinnar gátu gerst í annarri röð hér
en annars staðar.
Lítum fyrst á hverjar voru þær helstu
breytingar í tónlist sem gengu yfir landið.
Þær voru róttækar. Það er óhætt að tala
um byltingu svo gagngera að innreið
rokks og bítlatónlistar á 6. og 7. áratugn-
um var smátæk og íhaldssöm í saman-
burði við hana. Bylting þessi reið hér um
garða á seinni hluta 19. aldar og í ýmsum
hlutum landsins ekki fyrr en á 20. öld. Það
má kalla hana „byltingu hins nýja tóns“.
Bylting þessi var auðvitað fjarska víð-
tæk og margþætt. Ég ætla að nefna 4 þætti
sem eru meginþættir þótt önnur atriði séu
kannski jafn mikilvæg.
1. Gamla söngnum og gömlu lögunum
var steypt af stóli. Þá er átt við rímna-
lögin, íslenska tvísönginn, Grallarasöng-
inn, gömlu sálmalögin, t.d. við Passíu-
sálmana, sem varðveist höfðu í munn-
legri geymd eða afskræmst eins og
menn nýja tímans sögðu.
2. Tilkoma hljóðfæra. Hljóðfærin sem hér
um ræðir voru fyrst einkum fiðlur og
flautur til einkaaðila og orgel til kirkna.
Nokkru seinna breiðast út harmonik-
ur, píanó og málmblásturshljóðfæri.
3. Tilkoma nýrra laga. Þau lög voru að
mestu innflutt frá Danmörku og Þýska-
landi. Þau voru í öðrum tóntegundum
en gamli söngurinn, tóntegundum sem
voru orðnar ríkjandi í Evrópu. Sum
gömlu sálma- og messusöngslögin voru
„leiðrétt“ hvað tóntegund snerti.
Vörður á þessari leið voru útgáfa Pét-
urs Guðjohnsens, dómkirkjuorganista
á sálmasöngsbók árið 1861 með nótum
og annarri árið 1878, ennfremur sex
sönghefti Jónasar Helgasonar með
mörgum veraldlegum erlendum söng-
lögum á árunum 1874-88 og síðan má
nefna hinar vinsælu bækur Islenskt
söngvasafn Sigfúsar Einarssonar og
Halldórs Jónassonar („fjárlögin") frá
árunum 1915-16.
4. Útbreiðsla fjölraddaðs söngs samhliða
útbreiðslu hljóðfœra með margraddaða
hljóma. Þá gerðist a.m.k. það tvennt
samhliða að gefnar voru út söngbækur
með nótum og fjölrödduðum útsetn-
ingum og stofnaðir voru kórar, fyrst í
Reykjavík og seinna vítt um land, eink-
um karlakórar framan af. Fyrsta sálma-
söngsbók Péturs Guðjohnsens var með
nótum fyrir eina rödd en seinni sálma-
söngsbók hans, sem og bækur Jónasar
Helgasonar og „fjárlög“ þeirra Sigfús-
ar og Halldórs, voru prentaðar með
nótum fyrir þrjár og fjórar raddir.
Þetta eru meginþættir í tónlistarbylt-
ingunni sem varð. Svo má huga lítillega
að því á hvern hátt og eftir hvaða leiðum
hinn nýi tónn breiddist
út, hvernig hann t.d.
gerði sig gildandi hér í
Svarfaðardal.
Ef litið er á útbreiðslu
hinna nýju sönglaga á
seinni hluta 19. aldar þá
er það ljóst að mikilvæg-
ustu boðberar þeirra
voru hinir ungu prestar.
Það á eðlilega sérdeilis
við um ný sálmalög en
einnig veraldleg lög.
Þegar Lærði skólinn
fluttist frá Bessastöðum
til Reykjavíkur árið 1846
var tekin þar upp söng-
kennsla. Kennsluna hafði
með höndum Pétur Guð-
johnsen, en hann er
stundum nefndur faðir
hins nýja söngs á íslandi.
Fjórum árum síðar tók
Pétur einnig að kenna
söng við hinn nýstofnaða
Prestaskóla.
Pétur Guðjohnsen
hafði orðið dómkirkju-
organisti árið 1840, sama
ár og kirkjan fékk orgel,
fyrsta kirkjuorgel á Is-
landi. Pétur var nýkom-
inn frá námi í Danmörku
og hafði tileinkað sér
þann smekk og þá tón-
listarstrauma sem þar
voru ríkjandi en jafn-
framt hafði hann nokkra
skömm á tónlistinni sem
áður réði ríkjum hér á
landi, rímnakveðanda
eða grallarasöng, bæði
tóntegundunum sem þar
var fylgt og flutningsmát-
Pétur Guðjohnsen, Dómkirkjuorganisti,
„faðir hins nýja söngs“.
anum. Hugsjón Péturs var einmitt sú að
breyta fegurðarskyni skólapilta Lærða
skólans og opna hug þeirra fyrir hinni
dansk-þýsku tónlist sem hann hafði sjálf-
ur kynnst.
Auk þess að kenna söng stofnaði Pétur
fyrsta karlakór landsins meðal skólapilta
og hélt sá sinn fyrsta opinbera samsöng
árið 1854. Sönglífið blómstraði í skólan-
um, sem varð vísir að því að sönglíf greri
og efldist í öllu landinu. Söngurinn varð
smám saman mjög snar þáttur í þeirri
menningarlegu uppvakningu sem fylgdi
sjálfstæðisbaráttunni og í sönglífinu urðu
einmitt karlakórarnir mest áberandi. Þeg-
ar söngglaðir nemendur Lærða skólans
og Prestaskólans héldu út í prestsembætti
sín vítt um land höfðu þeir umtalsverða
kunnáttu í tónlist og söng. Ennfremur
voru þeir staðfastir fylgismenn hins nýja
tóns. Þetta var eina skipulega tónlistar-
nám sem þá fór fram í landinu og má af
því ráða í hvílíkri lykilstöðu Pétur Guð-
johnsen var. Hann vann stórvirki til efl-
ingar tónlistinni, en nú er að vísu um það
deilt hversu heppileg tónlistarforysta hans
var, sérstaklega viðhorf hans til hins þjóð-
lega arfs. Það viðhorf - að gera þann arf
að stjúpbarni - varð reyndar mjög ríkj-
andi í tónlistarlífi þjóðarinnar eftir daga
Péturs og alveg fram undir hin síðustu ár,
en viðhorfsbreyting að því leyti sýnist nú
smám saman vera á leiðinni - sem betur
fer.
Síðustu kvæðamenn í dalnum
Þá er að skoða innreið þessarar umræddu
tónlistarbyltingar hér í Svarfaðardal. Eins
og víðar hófst hún á seinni helmingi 19.
aldar. Ég hef ekki nothæfar heimildir um
alla þætti hennar, t.d. engar heimildir um
útbreiðslu nýrra sönglaga hér um slóðir,
hvenær menn eignuðust hinar nýju söng-
bækur og lærðu úr þeirn lögin.
Eins hef ég mjög litlar heimildir urn
rímnaflutning í Svarfaðardal, hvenær
menn t.d. hættu hér almennt að kveða
rímur á kvöldvökunni. Það er ljóst að
Svarfaðardalur var ekki meðal þeirra
byggða þar sem rímnakveðandi lifði bein-
línis góðu lífi fram á 20. öld. Það getur
bent til þess að við höfurn tekið tiltölu-
lega snemma við ýmsum þeim nýjungum
sem tónlistarbyltingunni fylgdu.
Við athugun hef ég þó komist á spor
einstakra kvæðamanna hér um slóðir eftir
að kom fram á 20. öld. Stefán hét maður
Árnason. Hann var tvö ár bóndi á Kóngs-
stöðum, 1922-24, en átti síðan lengst af
heima á Lækjarbakka við Dalvík. Það
segir mér Birna Friðriksdóttir að Stefán
hafi þótt mjög góður kvæðamaður og
raddmikill. Hún man aðeins eftir að hann
kvæði á bæjum frammi í Skíðadal, og
seinna, þegar hún var ung vinnukona á
Hamri kom Stefán þangað á hverjum
fimmtudegi og kvað fyrir gamla konu þar
á bænurn. Stefán var hlédrægur maður og
ekki vitað til að hann hafi komið fram og
kveðið eftir að hann fluttist til Dalvíkur.
Að minnsta kosti ein stemma er þó við
Stefán Árnason kennd í safni Kvæða-
mannafélagsins Iðunnar. Nú hagar tilvilj-
unin því svo til að það var fyrsta stenrma
sem kvæðamaðurinn Steindór Andersen
valdi til að kveða með hljómsveitinni
Sigur Rós og þar með hefur stemman nú
farið víðar um heirn en nokkur önnur ís-
lensk stemma. Mikill vinur Stefáns var
Haraldur Zophoníasson í Jaðri. Hann var
einnig góður kvæðamaður og kvað stund-
urn rímur á mannamótum hér á árum
áður. Það gerði sömuleiðis Lárus Frí-
mannsson, Húnvetningur sem fluttist
hingað 1932. Sonur hans, Árni Lárusson,
segir mér að Lárus faðir hans og einnig
Haraldur Zophoníasson hafi kveðið rím-
ur á samkomum Verkalýðsfélags Dalvík-
ur á árunum fyrir seinna stríð. Fjórði
kvæðamaðurinn sem ég hef heyrt nefnd-
an hét Halldór Jónsson og var kenndur
við Holtið. Loks má nefna áðurnefnda
Birnu Friðriksdóttur sem bæði yrkir
langa sagnabálka undir rímnaháttum og
kveður. Kvað hún m.a. á skemmtun hjá
Kvenfélaginu Tilraun um 1980.
*
Happdrætli SIBS sendir Norðlendingum bestu jóla- og nýársóskir
með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum.
Happdrxtti SÍBS - fyrir lífið sjalft
Umboðsmenn Happdrættis SÍBS á Norðurlandi:
Hvammstangi:
Blönduós:
Skagaströnd:
Sauðárkrókur:
Hofsós:
Varmahlíð:
Siglufjörður:
Grímsey:
Ólafsfjörður:
Hrísey:
Dalvík:
Akureyri:
Neðri-Dálksstaðir:
Grenivík:
Laugar:
Mývatnssveit:
Aðaldalur:
Húsavík:
Kópasker:
Raufarhöfn:
Þórshöfn:
Kaupfélag V-Húnvetninga, byggingavörudeild, Strandgötu 1,
sími 451-2370
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi, sími 455-9000
Guðrún Pálsdóttir, Bogabraut 27, sími 452-2772
Anna Sigríður Friðriksdóttir, Aðalgötu 3, sími 453-5115
Ásdís Garðarsdóttir, Kirkjugötu 19, sími 453-7305
Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Lundi, sími 453-8031
Guðrún Ólöf Pálsdóttir, Aðalgötu 14, sími 467-1228
Steinunn Stefánsdóttir, Hátúni, sími 467-3125
Valbúð ehf., Aðalgötu 16, sími 466-2420
Erla Sigurðardóttir, sími 466-1733
Kristján Ólafsson, Kaupfélagshúsi, Hafnarbraut, sími 466-1434
Björg Kristjánsdóttir, Strandgötu 17, sími 462-3265
Anna Petra Hermannsdóttir, sími 462-4984
Brynhildur Friðbjörnsdóttir, Túngötu 13B, sími 463-3227
Rannveig H. Ólafsdóttir, Hólavegi 3, sími 464-3191
Hólmfríður Pétursdóttir, Víðihlíð, sími 464-4145
Guðrún Sigurðardóttir, Hafralækjarskóla, sími 464-3585
Skóbúð Húsavíkur, Reynir Jónasson, sími 464-1337
Skúli Þór Jónsson, Boðagerði 6, sími 465-2144
Svava Árnadóttir,Tjarnarholti 3, sími 465-1314
Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis, sími 468-1300